Spássían - 2010, Síða 53

Spássían - 2010, Síða 53
53 sem horft var til, heldur framsetning hreyfingarinnar í kúbíska málverkinu Nakinn maður á leið niður stiga, raunverulegar hreyfingar Rotorelief verkanna og skákborðið sem viðmót. Sé litið til sjöunda áratugarins voru það ekki lengur Andy Warhol, Donald Judd og Joseph Kosuth sem voru til umræðu heldur Völvan eftir Robert Rauschenberg, Níu kvöld E.A.T. samtakanna í New York og sýning Jasiu Reichardts, Cybernetics Serendipity, í London. Óbein áhrif og sérstaða Nýmiðlalistin eignaðist fljótt sínar eigin kanónur. Mikilvægan þátt í að skapa þær áttu Þjóðverjar, sem fyrstir þjóða í Evrópu settu á stofn sérstakt miðlalistasafn, Zentrum für Kunst und Medienteknologie, eða ZKM, sem opnaði í Karlsruhe árið 1997. Því er nú stjórnað af Peter Weibel fyrrum samstarfsmanni Vasulka hjónanna við miðlalistadeild Buffalo háskólans í New York fylki. Weibel, sem áður var listrænn stjórnandi Ars Electronica, hefur sett upp hverja stórsýninguna á fætur annarri síðasta áratuginn í ZKM og þannig tekið þátt í að rita sögu miðlalista. Safnið á einnig verk frá níunda og tíunda áratugnum sem minnst er á í öllum uppflettiritum er gefin hafa verið út á undanförnum árum um sögu þessara lista. Þar á meðal eru gagnvirkar innsetningar á borð við Handan við síðurnar eftir Masaki Fujihata, Andlitsmynd nr. 1 eftir Luc Courschesne, Lesanlegar borgir eftir Jeffrey Shaw og Gagnvirk spretta eftir Christu Sommerer og Laurent Mignonneau. Hver er þá staða miðlalista í dag? Miðlarnir eru orðnir hluti af meginstraumnum en ekki er þar með sagt að orðið hafi endanlegur samruni milli hans og miðlalistheimsins. Þetta kom vel fram í pallborðsumræðum sem bandaríski listfræðingurinn Edward Shanken efndi til á Art Basel kaupstefnunni í sumar, en þar ræddust við þeir Peter Weibel og Nicolas Bourriaud. Báðir hafa haft gríðarleg áhrif með skrifum sínum og sýningarstjórn og báðir þekkja vel til beggja heimanna. En hvar greinir á milli? Sem fulltrúi meginstraumsins í umræðunni sagði Bourriaud að áhrif nýmiðlanna á list samtímans væri af sama toga og áhrif ljósmyndarinnar á málverk impressjónistanna, þ.e.a.s. óbein. Þessi afstaða birtist í kenningum hans um fagurfræði tengslanna sem hann byggir á grundvallarhugmyndum internetsins. Peter Weibel heldur því hins vegar fram að afstaða Bourriauds sé ekkert ósvipuð afstöðu þeirra sem neituðu að samþykkja fyrir 100 árum að ljósmyndin væri sjálfstæður listmiðill. Með sjálfstæði miðilsins er átt við að miðillinn hafi ákveðna eiginleika sem listamenn þurfa að vera meðvitaðir um. Þetta getur átt við um alla miðla, en þegar nýmiðlar eru annars vegar þarf að hafa í huga að þeir eru ekki upphaflega ætlaðir til listsköpunar. Það þýðir að eiginleikar þeirra geta aldrei verið hlutlausir og hljóta því alltaf að fela í sér félagslega og pólitíska merkingu. Kornax-hveiti er framleitt með mismunandi baksturseiginleika í huga sem byggja á próteininnihaldi hveitisins. Próteinríkt hveiti hentar t.d. vel í pizzur og brauð en hveiti sem innheldur minna prótein hentar betur í kökur og kex. Kornax framleiðir 2 gerðir af hveiti ásamt heilhveiti og rúgmjöli. Á heimasíðu Kornax, www.kornax.is, má finna ýmsan fróðleik, hollráð og uppskriftir sem falla vel að bakstri úr Kornax-hveiti. Veldu íslenska gæðaframleiðslu! Ferskasta hveitiÐ! - alltaf nýmalaÐ Kornax hveitimylla | Korngörðum 11 - 104 Reykjavík | Sími: 540 8700 | kornax@kornax.is | www.kornax.is Margrét Elísabet Ólafsdóttir Courchesne: Áhorfandinn getur átt samræður við myndina af Maire.

x

Spássían

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.