Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 13

Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 13
Jón Páll þannig að liðið gæti hlegið sig mátt- laust. Nú ég tók þetta alvarlega eins og allt sem ég geri en fljótlega eftir að ég setti kraft í þetta, hurfu aðstoðar- mennimir eins og dögg fyrir sólu. Þeim leist víst ekkert á blikuna. — Nú varst þú aftur með í ár eins og frægt er orðið. Varstu sár yfir því að vinna ekki ? — Ég ætlaði mér aldrei í þetta mót. Ég ætlaði á íslandsmótið í kraftlyfting- un en varð að hætta við vegna meiðsla. Ég ákvað því að drífa mig í „sköfun" og taka þátt í vaxtarræktarmótinu. Ég þótti víst hvorki nógu „skafinn" né neinum feluleik og sýndi allar mínar bestu hliðar. — Hyggstu keppa aftur í vaxtar- rækt eða ertu hættur keppni í þessari grein ? — Það getur vel verið að ég verði með aftur en það verður þá eins og venjulega „tékkað inn á síðustu mín- útu“. FJÖÐUR SEM VARÐ AÐ HÆNSNAKOFA — Nú var talsvert fjallað um það eftir að þú vannst íslandsmeistaratitil- inn í vaxtarrækt um árið, að þú hefðir Hér skokka þeir síðasta spölinn í síðustu grein í keppninni í Nice á dögunum, Jón Páll og „fjandvinur" hans Geoff Capes. nógu góður fyrir neðan mitti! - en auð- vitað þýðir ekkert að deila við dómar- ann og ég varð að sætta mig við niður- stöðurnar. Það gerðu áhorfendur hins vegar ekki og menn eins og Guðmund- ur Sigurðsson sem hefur æft Iyftingar og vaxtarrækt um 20 ára skeið og hef- ur að mínu viti mun meiri þekkingu á íþróttinni en flestir þeir dómarar sem þarna dæmdu. — Nú benti Sigurður Gestsson, ís- landsmeistari í vaxtarrækt á það að það væri ekki nóg að vera stór og með stóra vöðva, það væri samræmið sem skipti máli. Er ekki þetta það sem dóm- ararnir lögðu til grundvallar ? — Það má vel vera en ég bendi líka á það að Sigurður sagði fyrir mótið að hann ætlaði að fela sínar veikustu hlið- ar fyrir dómurunum. Það hefur senni- lega tekist. Ég var hins vegar ekki í komið fram og sýnt vöðvana í sauma- klúbbum víðs vegar um bæinn? Nú skellir Jón Páll upp úr fyrir alvöru. Þegar hann hefur jafnað sig, segir hann: — Þetta var mögnuð kjaftasaga en því miður bara Qöður sem varð að heilum hænsnakofa. Stað- reyndin er sú að ég kom fram í einu partýi og hafði gaman af en síðan ekki söguna meir. Það líður nú að Iokum viðtalsins en vegna þess að það hefur vart farið framhjá neinum að Jón Páll er einstak- lega vinsæll meðal barna og unglinga, þá spyrjum við hvort hann hafi gaman af því að umgangast börn ? — Ég veit ekki hvort ég sé einhver sérstök barnagæla en ég neita því ekki að ég hef gaman af því að tuskast á við krakkana. Sonur minn, Sigmar Freyr sem nú er þriggja ára er sennilega besti vinur minn og ég læt mig framtíð hans og annara barna miklu varða. Öll höf- um við verið börn - því megum við ekki gleyma. Allavega geri ég það ekki og á ég því auðvelt með að setja mig í þeirra spor. Ég man þá tíð er ég leit upp til þeirra sem sköruðu fram úr. Ég vona líka að ég sé góð fyrirmynd og því reyki ég ekki og áfengisneyslan er um það bil ein fingurbjörg á ári. Sannast sagna fer fátt meira í taugarnar á mér en fólk sem heldur á litlum börnum í annarri hendinni en sígarettu í hinni og blæs reyknum yfir þessi litlu grey. Þetta sama fólk kvartar svo stöðugt yfir því að barnið sé svo og svo slæmt til heilsunnar. Nei, ég er sennilega einn alharðasti liðsmaðurinn í „Reyklausa liðinu“ og vil gjarnan leggja mitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir að börn og unglingar leiðist út í þá hættulegu vitleysu að reykja, segir Jón Páll en þess má geta að hann vonast til þess að Sigmar Freyr leggi stund á íþróttir í framtíðinni. Jón Páll segist ekki ætla að hafa áhrif á strákinn held- ur verði hann sjálfur að ákveða hvaða grein hann vill stunda. Reyndar kynnt- ist sá stutti kraftlyftingunum snemma því pabbinn tók hann með á Norður- landamót í Laugardalshöllinni þegar hann var aðeins 10 eða 11 mánaða og hann fékk einnig stundum að fljóta með á æfingar. — Ég varð að setja handlóð ofan á burðarrúmið til þess að hann færi sér ekki að voða, segir Jón Páll en hann fær nú dágóðan bunka af aðdáenda- bréfum frá börnum og unglingum, aðallega erlendis frá, á ári hverju. — En að lokum. Hvað er framund- an hjá manninum, sem margir telja þann sterkasta í heimi ? — Það er fjöldinn allur af Hálanda- mótum og kraftakeppnum á næsta ári og við Capes eru t.a.m. að hugsa um að skella okkur til Japan í mars og taka aðeins á kraftajötnum þar í landi. Þeir eru vel „massaðir" sumo- glímumenn- irnir og hver veit nema maður fái að taka á þeim, segir Jón Páll og sýnir hrammana. Hann vildi að lokum skora á fólk að hugsa meira um líkamann og holla hreyfmgu. — Syndið, hlaupið og takið á lóð- um! Það er ekkert mál fyrir þjóðina og Jón Pál, sagði þessi arftaki Grettis, Jón Páll Sigmarsson, að lokum. 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.