Íþróttablaðið - 01.12.1986, Qupperneq 58
Texti: Hörður Hilmarsson.
íslandsmeistarar Akraness 1970 ásamt þjálfaranum Ríkharði Jónssyni. Þarna má kenna marga kunna
kappa s.s. landsliðsmennina Matthías Hallgrímsson, Eyleif Hafsteinsson, Teit Þórðarson, Jón Alfreðsson,
Jón Gunnlaugsson, Harald Sturlaugsson, Þröst Stefánsson fyrirliða o.fl.
Hvað skyldi flestum landsmönnum
detta í hug þegar staðarnafnið Akranes
ber á góma? Ætli menn sjái fyrir sér
Akrafjallið sem Sigurður Þórarinsson
gerði ódauðlegt í kvæði sínu Vorkvöld
í Reykjavík — eða kemur Sements-
verksmiðjan fyrst upp í hugann? Nei,
ætli flestir tengi Akranes ekki fyrst og
fremst fótbolta og þeim frábæru knatt-
spyrnumönnum sem borið hafa hróður
bæjarfélagsins langt út fyrir landstein-
ana.
Það er með ólíkindum hversu mikilli
velgengni knattspyrnulið íþrótta-
58
bandalags Akraness hafa átt að fagna.
Þótt menn hafi hætt eða farið og aðrir
tekið við hefur ÍA ávallt verið í fremstu
röð í íslenskri knattspyrnu.
ÍA tók fyrst þátt í íslandsmóti meist-
araflokks árið 1946 og fyrstu 5 árin var
frammistaðan slök. En fall er fararheill
og fyrsti íslandsmeistaratitillinn vannst
1951 - GULLÖLDIN var hafin. Á 8 ára
tímabili 1951-1958 varð ÍA 5 sinnum
meistari, tvisvar í öðru sæti og einu
sinni í því þriðja. Menn eins og Rikki,
Donni, Þórður Þórðar, Svenni Teits,
Þórður Jóns, Nonni Leós, Gaui Finn-
boga, Helgi Dan o.fl. „urðu heimsfræg-
ir á íslandi“ — eins og sagt er um
menn sem verða landsþekktir. íslenska
landsliðið var byggt í kringum Skaga-
liðið á árunum frá 1954 og fram undir
1960, voru iðulega 7 Skagamenn þá í
liðinu. Flestir urðu þeir 8 í byrjunarliði
íslands en þegar varamenn eru taldir
með kom fyrir að þetta litla bæjarfé-
lag átti 10 fulltrúa í landsliðshópnum.
Dæmi um slíkt er m.a. Bandaríkjaferð
landsliðsins 1956 þar sem 10 leikmenn
af 14 komu frá ÍA.