Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 70

Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 70
Fimleikar Þær eiga eftir að verða góðar þessar! Liprar og fimar stúlkur — einbeitingin skín úr andlitunum. Fimleikadeild Stjörnunnar er einungis fimm ára en árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Anna: „Það er alveg rétt að við ís- lendingar gætum verið betri í fimleik- um en staðreyndin er sú að aðstöðu- leysið sem við búum við er fyrir neðan allar hellur. Fyrir það fyrsta þá vantar fimleikahús í landinu. Ef við tölum í minni einingum þá vantar okkur hér í Stjörnunni tíma í sal til að æfa og af þeim stutta tíma sem við höfum fer allt of langur tími í að taka áhöldin saman. Við erum einungis með átta tíma í sal á móti tuttugu tímum hjá þeim sem æfa mest. Ekki nóg með að það vanti að- stöðu heldur vantar okkur einnig áhöld, t.d. vantar dýnur, stökkbretti, stökkgólf og gryfjur svo eitthvað sé nefnt. Það er rétt að það eru fáir sem horfa á fimleikamót og ástæðan er ósköp einföld: við eru ekki nógu góð. Af hverju erum við ekki nógu góð ? Góð aðstaða þýðir framfarir sem getur af sér gott fólk. Gott íþróttafólk þýðir fleiri áhorfendur. Fleiri áhorfendur gera það að verkum að greinin verður sterkari, nýtur meiri vinsælda, verður útbreiddari og afleiðing þess er enn meira úrval góðs íþróttafólks." Kristín: „Ég held að við megum ekki vanmeta þátt þjálfara í þessu sam- bandi. Hér á ísiandi vantar góða þjálf- ara sem hafa þekkingu, þ.e.a.s þjálfara sem eru menntaðir til slíkra hluta. Þetta er allt meira og minna áhugafólk sem er að þjálfa því ekki er hægt að læra fimleikaþjálfun hér á landi. í gegn- um tíðina hefur verið boðið upp á námskeið hér á landi svo og hafa kom- ið nokkrir erlendir þjálfarar og haldið námskeið bæði í þjálfun og dómgæslu. T.d. fór ég á námskeið hjá Kínverja sem kom hingað og lærði heilmikið en þetta er engan veginn fullnægjandi." Anna: „Þegar verið er að tala um að við íslendingar séum lélegir í fimleik- um þá má heldur ekki gleyma því að við eigum góðar fimleikakonur og með árunum verðum við sífellt betri. Miðað við aðstöðu erum við nokkuð góðar. Ég get nefnt sem dæmi að það fóru nokkrar stelpur í æfingabúðir til Þýskalands síðasta sumar og árangur- inn var geysilegur. Þær komu með ýmisleg ný átriði heim sem ekki hefur verið hægt að gera hér vegna skorts á aðstöðu. Aðal vandinn er að hafa ekki gryfju þar sem hún er öryggisatriði. Þá má heldur ekki gleyma að þegar verið er að gera ýmsar æfingar þá verður að nota þykka dýnu upp á öryggið og þá 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.