Íþróttablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 71
Fimleikar
Sunneva Sólversdóttir er 14 ára og unglingameistari í sínum flokki. Hún hefur
æft í 3 ár og er hér í æfingu á tvíslá.
Sigurbjörg Ólafsdóttir 11 ára hefur æft með Stjörnunni frá upphafi fimleika-
deildarinnar. Spígat — var ekki mikið mál hjá henni, tærnar læstar við jafnvæg-
isslána.
neyðast stelpurnar að stökkva allt að
hálfum metra hærra en ella sem auðvit-
að gengur ekki. Þetta gerir það að
verkum að það er útilokað að æfa ýms-
ar æfingar hér á landi.“
GÍFURLEGUR ÁHUGI
Nú er fimieikadeildin ykkar hér í
Stjörnunni ung. Er áhuginn á fimleik-
um mikill?
Kristín: „Það er geysilegur áhugi og
hann er engu minni en þegar við byrj-
uðum á sínum tíma. Það vantaði sár-
lega fimleikadeild hér í Garðabæ. Stelp-
urnar hafa þurft að fara í bæinn til að
æfa. Við Rósa höfðum mikinn áhuga á
að stofna deild og þar sem þetta tvennt
fór saman; okkar áhugi og stelpnanna í
Garðabæ, þá ákváðum við að stofna
deild sem við og gerðum haustið 1981.
Þá strax innrituðu sig um sextíu stelp-
ur í deildina og af þeim hópi eru um
þrjátíu stelpur enn. Nú fimm árum síð-
ar eru eitt hundrað og sjötíu stelpur
skráðar í fimleikadeild Stjörnunnar.
Það er óhætt að fullyrða að í gegnum
tíðina hafa færri komist að en hægt
hefur verið að taka inn. Við fengum nú
í ár fleiri tíma í sal, tveggja tíma aukn-
ing á viku, svo við gátum tekið allar
inn sem vildu.“
Kristín Ragna er 22 ára Garðbæing-
ur. Hún er stúdent úr Fjölbrautaskól-
anum en þar var hún á íþróttabraut.
Hún bjó í eitt ár í Þýskalandi og segir
hún að nú langi hana út aftur í íþrótta-
háskóla og taka fimleika sem sérgrein.
Aðspurð sagðist hún ekki hafa verið
mikið í fimleikum sjálf. „Ég æfði eitt-
hvað með Björkunum en ekki mikið.
Það þarf ekki endilega að fara saman
að vera góður í greininni og að vera
góður þjálfari. Það sem skiptir máli er
að afla sér þekkingar til að þjálfa.“
Anna Borg er 20 ára og varð stúdent
í fyrra. Hún byrjaði með Stjörnunni um
áramótin 1981/1982 og hefur verið
með síðan. Anna segist stefna að því að
komast til Bandaríkjanna í íþróttahá-
skóla. Hún var í sex ár i fimleikum hjá
Gerplu „en ég gat aldrei neitt. Það var
mjög gaman, ég æfði mikið en það var
ekki nóg. Ég fæ heilmikið út úr því að
þjálfa í fimleikunum, er með allt að
fimmtán tíma á viku en að auki kenni
ég einnig eróbik. Mér finnst þetta mjög
gaman en þetta er tímafrekt."
71