Fjölrit RALA - 10.05.1988, Blaðsíða 124
120
þeim.
Veðurathuganir hafa verið gerðar daglega kl. 9 og 15 mánuðina apríl - október 1985
og óslitið frá 1. apríl 1986. Auk hefðbundinna athugana hefur verið maeldur jarðvegshiti í
5, 10, 20 og 50 sm dýpt og vökvaspenna i jarðvegi í þurrkum á sumrin.
Starfsfólk
Ásgrimur Jónsson tilraunastjóri lést 26. mars 1986. Þá hafði hann gegnt starfi
tilraunastjóra rúm 13 ár. Við stöðu hans tók Jónatan Hermannsson. Fleiri hafa ekki verið
fastráðnir á Korpu þessi þrjú ár.
Annað starfsfólk hefur verið ráðið til sumarvinnu og til skamms tíma. Undanfarin þrjú
ár hafa eftirtaldir unnið á Korpu:
1985 Einar Mántylá, Nanna Ingvadóttir, Narfi Stefánsson, Sigríður Valgeirsdóttir og
Þóroddur Sveinsson. Samtals 13 verkmánuðir.
1986 Emil Valgeirsson, Kristjana Bjarnadóttir, Narfi Stefánsson og Þóroddur Sveinsson.
Samtals 11 verkmánuðir.
1987 Bima Baldursdóttir, Emil Valgeirsson, Guðrún Harðardóttir, Helga Eiríksdóttir,
Kristín Lóa Ólafsdóttir, Liisa Wiik og Svandís Grétarsdóttir. Samtals 16
verkmánuðir.
Lokaprg
Tilraunastöðinni á Korpu er ætlað að vera starfsaðstaða fyrir sérfræðinga
jarðræktardeildar. Þeir, ásamt aðstoðarsérfræðingum, koma þar oft til að sinna verkefnum
sínum og stjórna vinnu við þau. Margir hafa því komið við sögu á Korpu síðustu þrjú ár, í
mismiklum mæli þó. Skulu þeim öllum, svo og sumarvinnufólki, færðar þakkir fyrir
samstarfið.