Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 1
17. tölublað 2020 ▯ Fimmtudagur 10. september ▯ Blað nr. 570 ▯ 26. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Langt er síðan að svona fátt fólk hefur verið á réttardegi í Undirfellsrétt í Vatnsdal sem er ein fjárflesta rétt landsins, með um 15–17 þúsund fjár. Á innfelldu myndinni má sjá að vel rigndi á
gangnamenn og mannskap sem kominn var til að draga fé í dilka, en allt gekk þetta samt vel. – Sjá nánar á bls. 2 Myndir / Hjörtur Leonard Jónsson
Garðyrkjubændur vilja aðskilja starfsmenntanám greinarinnar frá Landbúnaðarháskóla Íslands:
Unnið að stofnun Garðyrkjuskóla Íslands
sem gæti tekið til starfa um næstu áramót
Fulltrúar græna geirans sem vilja
setja á stofn nýjan garðyrkjuskóla
sem leggur áherslu á og tryggir
starfs menntanám í garðyrkju á
landinu mættu á fund mennta
málaráðherra í síðustu viku til að
viðra hugmyndir sínar. Gunnar
Þorgeirsson, formaður Bænda
samtaka Íslands, og Samband
garð yrkjubænda segir að ábyrgð
ráðherra á starfs menntanámi garð
yrkjunnar sé mikil.
Gunnar segir að stór hluti græna
geirans í landinu standi að baki þeirri
hugmynd að stofna Garðyrkjuskóla
Íslands og efla þannig starfsmenntanám
í garðyrkju á landinu.
„Það er búið að stofna kennitölu og
við sem stöndum að stofnun skólans
erum búin að hitta mennta málaráðherra
og leggja fyrir hana okkar hugmyndir.“
Fundur með ráðherra
Að sögn Gunnars voru á fundinum,
auk fulltrúa félagsins um nýja skól-
ann, ráðherra og fulltrúar háskóla-
og framhaldsskólasviðs og fjármála-
sviðs mennta mála ráðuneytisins,
lögmenn og báðir aðstoðarmenn ráð-
herra og fleiri. „Það er því greinilegt
að ráðuneytið lítur málið alvarlegum
augum.“
Nauðsynlegt að halda
framhaldsskólastiginu sér
„Eins og staðan er í dag er
Garðyrkjuskóli ríkisins hluti af
Landbúnaðarháskóla Íslands og
að mínu mati og fleiri innan græna
geirans fer ekki vel að vista fram-
haldsskólanám undir háskóla. Það er
einu sinni þannig að þótt við séum
metnaðarfull hvað varðar rannsóknir
í garðyrkju á Íslandi þá eiga þær
ekki heima á framhaldsskólastigi.
Að okkar mati er því nauðsynlegt að
halda framhaldsskóla- og háskóla-
stiginu aðskildu.
Í mínum huga er það svipað, að
setja framhaldsskólastig á garðyrkju
undir háskólanám og að setja alla
nema í húsasmíði beint í verkfræði
í háskóla.“
Ábyrgð ráðherra mikil
Gunnar segir að ábyrgð ráðherra á
starfsmenntanámi garðyrkjunnar sé
mikið og ekki síst ef það á að fara
fram á háskólastigi og það verði að
gæta þess vel að það sitji ekki á hak-
anum og verði einhvers konar bast-
arður innan Landbúnaðarháskólans.
Allt í járnum
Gunnar segir að því miður virðist
ekki vera sátt í sjónmáli hvað varðar
framhald Garðyrkjuskóla ríkisins og
hvernig kennsla í honum á að vera
í framtíðinni.
„Því miður er allt í járnum og við
hjá græna geiranum sáum okkur ekki
annað fært en að leita leiða með því
að stofna nýjan garðyrkjuskóla þar
sem lögð verður áhersla á starfs-
menntanám.“
Skólinn geti tekið til starfa
um næstu áramót
„Það er nú þegar búið að bjóða
Garðyrkjuskóla Íslands aðstöðu á
tveimur stöðum en við lögðum til
við ráðherra að skólinn tæki við að-
stöðunni að Reykjum og að hann yrði
til húsa þar, án þess að nokkuð hafi
enn verið ákveðið í því sambandi.
Ef það verður ekki þannig, þurfum
við fljótlega að fara að huga að öðru
húsnæði svo að skólinn geti tekið
til starfa um næstu áramót,“ segir
Gunnar.
Kennsla fer fram á Keldum
eins og er
Vegna slæms ástands húsnæðis
Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum
í Ölfusi fer öll kennsla við skólann
fram að Keldum á Keldnaholti í
Reykjavík. Eftir að garðskáli við
skólann skemmdist í vondu veðri í
vor var hann rifinn. Í framhaldi af því
komu fram meiri skemmdir, auk þess
sem ýmsir innviðir garðskálans fóru
illa í veðrum eftir að hann var rifinn
og það rigndi inn í kennslustofur.
Samkvæmt heimildum Bænda-
blaðsins er vonast til að viðgerðum
á Reykjum ljúki um áramótin og að
þá verði hægt að taka upp kennslu
þar að nýju. /VH
Gunnar Þorgeirsson. Mynd / HKr.
Ull úr Uppspuna notuð
til uppgræðslu
10 30–31
Eini íslenski garðyrkubóndinn
sem ræktar sellerí til sölu
í stórmörkuðum
Borgarbýli í Reykjavík
gefur ríkulega uppskeru
34