Bændablaðið - 10.09.2020, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 20204
Feðgarnir Ólafur Eggertsson og
Páll Eggert Ólafsson, bændur á
Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum,
segja ræktun á repju og korni hafa
gengið mjög vel í sumar. Þeir hófu
þreskingu á repju í þurrki og góðu
veðri 27. ágúst. Síðan kom smá
stopp vegna rigningar en 4. og 5.
september létti til og var þá hægt
að halda áfram og í bygginu líka.
Ólafur segir að þeir hafi sáð
haustafbrigði af repju 15. júlí 2019.
Það hafi lifað af veturinn og komið
snemma til þannig að uppskeran er
nú mun fyrr á ferðinni en annars
væri með repju sem sáð er að vori.
Slíkt afbrigði er vart hæft til þresk-
ingar fyrr en í október.
Með 5 hektara af repj
og 40 hektarar af byggi
„Haustrepjan tekur landið að vísu
frá í tvö ár þar sem henni er sáð um
mitt sumar, en hún gefur hins vegar
mun meira af sér í uppskeru. Við
erum með fimm hektara undir af
vetrarrepjunni og tæpa 40 í korninu.
Þetta kemur allt saman mjög vel út
núna og ágústmánuður hefur gert
útslagið á þetta bæði með hita og
rekju,“ sagði Ólafur í samtali við
Bændablaðið.
Hann sagði að kornaxið hafi verið
orðið vel þroskað um mánaðamótin
ágúst-september og biðu þeir feðgar
þá bara eftir að það þornaði. Á föstu-
dag í síðustu viku brast hann á með
þurrk og sólskini og var þá hafist
handa við þreskingu.
Sjálfbærir með allt fóður
Ólafur segir að á Þorvaldseyri
væru þeir nú orðnir nær algjörlega
sjálfbærir með fóður fyrir skepnur.
Repjan er öll pressuð og unnin úr
henni olía. Hratið, eða mjölið sem
þar fellur til, er síðan notað í fóður
fyrir kýrnar á bænum ásamt bygginu
sem þeir rækta.
„Við höfum ekki keypt neitt erlent
fóður fyrir búið í tvö ár. Kornið er
kjarngott og repjumjölið inniheldur
30% prótein og kemur mjög vel út.
Við kaupum svo bara steinefni og
blöndum fóðrið allt saman heima
á búinu.“
Kornið fyrr á ferðinni en oft áður
„Varðandi byggið þá höfum við svo
sem áður byrjað að þreskja í lok
ágúst, en núna virðist þetta allt vera
að færast framar sem betur fer. Þá
reynum við forðast að geyma allt
á akrinum fram í október til að ná
meiri þroska, því það er svo mikil
hætta á slæmum veðrum í septem-
ber.“
Ólafur segir að þeir noti mest
núna íslenskt afbrigði af byggi sem
heitir Kría og Jónatan Hermannsson
hjá Landbúnaðarháskóla Íslands
hafi þróað. Það sé oft tilbúið til
þreskingar um mánaðamótin ágúst-
september. Krían gefi um 3 til 4
tonn á hektara, en vissulega séu til
afbrigði sem gefi af sér meira, en þau
séu ekki eins veðurþolin og heldur
ekki eins kjarngóð.
„Annars er ágætt að vera með
tvær til þrjár tegundir af korni.
Undanfarin ár höfum við notað
startáburð með sáningunni sem gefur
rótarkerfinu aukinn kraft þannig að
kornið þroskast fyrr. Annars fer
þetta allt eftir veðrinu, sumarið
núna er jafnbetra en í fyrra þegar
það sviðnaði gras hér á túnum sem
var mjög sérstakt.“ /HKr.
Framsýn og Fjallalamb hafa
gengið frá nýjum sérkjarasamn
ingi fyrir starfsfólk við sauðfjár
slátrun í haust. Samningurinn
byggir á gildandi kjarasamningi
Samtaka atvinnulífsins og Starfs
greina sambands Íslands sem
Framsýn á aðild að.
Til stendur að slátra um þrjátíu
þúsund fjár hjá Fjallalambi í haust.
Sláturtíðin hefst 15. september og
er ætlað að hún standa yfir í um
sex vikur.
Ekki tókst að manna sláturhúsið
með Íslendingum
Í heildina koma um sjötíu starfsmenn
að slátruninni. Búið er að fullmanna
sláturhúsið. Þrátt fyrir mikið atvinnu-
leysi á Íslandi tókst ekki að manna
sláturhúsið nema með því að flytja inn
um tuttugu starfsmenn. Fram að þessu
hefur þurft að ráða um 40 erlenda
starfsmenn til starfa hjá Fjallalambi en
í ár verða þeir helmingi færri þar sem
um 20 starfsmenn á íslenskum vinnu-
markaði réðu sig til starfa á Kópaskeri
í haust „sem er að sjálfsögðu jákvætt“,
segir í frétt á vefsíðu stéttarfélagsins
Framsýnar. /MÞÞ
FRÉTTIR
PIR og steinullar yleiningar
Stuttur afgreiðslutími
YLEININGAR
TÖLVUPÓSTUR
sala@bkhonnun . is
SÍMI
865-9277
VEFFANG
www .bkhonnun . is
Bændur á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum orðnir mjög sjálfbærir og loftslagsvænir í sinni framleiðslu:
Góð uppskera í repju og byggi
– Nýta repjuolíuna til manneldis og í eldsneyti, hratið fer í skepnufóður og hálmurinn í svepparækt – Byggið fer m.a. til bjórgerðar
Páll Eggert Ólafsson var á þreskivélinni í sólinni á laugardaginn. Mynd / HKr.
Framsýn og Fjallalamb með
nýjan sérkjarasamning
Nýr sérkjarasamningur var undir-
ritaður á Kópaskeri fyrir starfsfólk
við sauðfjárslátrun hjá Fjallalambi.
Um helmingur starfsfólks í sláturtíð hjá Norðlenska kemur frá útlöndum:
Umtalsverður kostnaður og óhagræði
vegna aukinna sóttvarna
„Það er erfitt að skjóta á eina
tölu varðandi kostnað en ljóst að
hann er umtalsverður og einnig
er óhagræði mikið. Þó ekkert í
líkingu við það sem yrði ef upp
kæmi hópsmit hjá okkur,“ segir
Jóna Jónsdóttir, starfsmannastjóri
hjá Norðlenska, en upphaf
sláturtíðar er með öðrum hætti
en vant er hjá fyrirtækinu vegna
aukinna sóttvarna í tengslum við
kórónuveirufaraldurinn.
Norðlenska ræður um 110
starfsmenn í sauðfjársláturtíð til
viðbótar við þá 50 sem starfa á
starfsstöð félagsins á Húsavík árið
um kring. Hlutfall starfsmanna sem
kemur erlendis frá hefur undanfarin
ár verið 80–85% en er í haust um
50%. „Það er þó ekki þannig að
allir þeir sem eru ráðnir innanlands
séu Íslendingar – margir hafa erlent
ríkisfang en eru með kennitölu og
hafa verið að vinna á Íslandi um
einhvern tíma,“ segir Jóna.
Fóru extra varlega þetta árið
Þeir sem komu erlendis frá luku
sóttkví í lok liðinnar viku. Þeir fóru í
seinni COVID-skimun á Húsavík og
enn sem komið er hefur enginn verið
mældur jákvæður að sögn Jónu.
„Við fórum extra varlega þetta árið.
Skiptum hópnum upp í 4–7 manna
hópa sem komu með bílaleigubílum
frá Keflavík og beint í það húsnæði
þar sem þau dvöldu í sóttkví. Farið
var eftir leiðbeiningum yfirvalda
varðandi fjarlægðartakmarkanir og
smitvarnir, fólkinu var færður matur
og aðrar nauðsynjavörur. Allt þetta
kallaði á mikla skipulagsvinnu og
gott upplýsingaflæði en sem betur
fer voru margir sem hjálpuðust að
og urðum við ekki vör við annað
en mikinn samstarfsvilja bæði hjá
starfsfólkinu okkar og öðrum sem
við höfum leitað til,“ segir Jóna.
Vegna þessa þurfti að seinka upphafi
sláturtíðar um nokkra daga en lítils
háttar forslátrun var tekin með því
starfsfólki sem komið var á staðinn.
Ráðstafanir áfram í gangi
Jóna segir að um síðustu helgi hafi
starfsfólk getað að lokinni sótt-
kví flutt sig í það húsnæði sem
það mun dvelja í yfir sláturtíð.
Þá mættu einnig þeir sem ráðnir
voru innanlands og eru í húsnæði
á vegum Norðlenska. „Sem betur
fer er samfélagssmit á Íslandi lítið
en við höfum að sjálfsögðu áhyggur
af því að smit geti borist í hópinn
innanlands. Þess vegna erum við
með ýmsar ráðstafanir áfram, tak-
mörkum gestakomur, takmörkum
fjölda í rýmum og umgengni hópa
sem og skiptum upp matar- og kaffi-
tímum,“ segir Jóna. /MÞÞ
Jóna Jónsdóttir starfsmannastjóri
hjá Norðlenska.
Repjufræ í tonnavís beint af akrinum
á Þorvaldseyri. Mynd / ÓE
Repjan á Þorvaldseyri gefur af sér dýrmæta jurtaolíu og um leið kjarngott
fóður handa kúnum. Þá veldur ræktun á repju mikilli kolefnisbindingu.
Ólafur segir kornið í sumar með
besta móti í gæðum.
Þriðjudaginn 8. september
undir rituðu forstjórar Isavia og
Sam göngustofu viljayfirlýsingu
um samstarf við tilraunaverk
efni um íblöndun repjuolíu í
tæki á Keflavíkurflugvelli.
Meðal gesta við undirritunina
voru Sigurður Ingi Jóhannsson
samgönguráðherra, Sveinbjörn
Indriðason, forstjóri Isavia,
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri
Samgöngustofu, og Ólafur
Eggertsson, bóndi á bænum
Þorvaldseyri. Afhenti Ólafur
repjuolíu við þetta tækifæri
til íblöndunar í dísilolíu
tækjabúnaðar flugvallarins.
Með íblöndu repjuolíunnar frá
þorvaldseyri er verið að búa til líf-
dísilolíu sem annars yrði að flytja
inn. Repjuolían leiðir til hreinni
bruna dísilolíunnar, en tilraunir á
Þorvaldseyri sýna að hrein repju-
olía veldur engri sótmengun við
bruna á dísilvélum. Það er einmitt
sótmengunin sem valdið hefur
hvað mestri andstöðu við notkun
dísilbíla í þéttbýli.
ISAVIA hyggst nýta repjuolíu frá
Þorvaldseyri á sinn tækjabúnað