Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202010
FRÉTTIR
Ull úr Uppspuna notuð til landgræðslu
Hulda Brynjólfsdóttir, sauð fjár
bóndi í Lækjartúni á austur
bökkum Þjórsár, á og rekur
smáspunaverksmiðjuna Upp
spuna. Í byrjun ágústmánaðar
stóð hún fyrir nokkuð nýstárlegri
land græðsluferð þegar afgangsull
frá verksmiðjunni var dreift
á malarkamb nálægt Heklu í
landgræðsluskyni.
Um tilraunaverkefni er að ræða og
unnið í samstarfi við Landgræðsluna
og Hekluskóga. „Við nýtum orðið
nánast alla okkar ull hjá okkur. Alltaf
er þó eitthvað sem nýtist ekki í garn
eða aðrar afurðir sem við gerum. Það
geta verið sneplar á haustullinni sem
orsakast af leifum frá rúningi vorsins
á undan; hún getur verið full af
sandi eða grasi og lyngi. Svo er það
hárskiljan okkar sem hreinsar togið,
grófu hárin, frá þelinu, þeim fínni,
og með því fer einnig sandur og fræ.
Ef það er hreint getum við notað það
í vörur, en ef það er óhreint, notum
við það ekki í garn heldur höfum
safnað því með það að markmiði að
nýta til landgræðslu,“ segir Hulda
um þessa afgangsull.
Áburðarkögglar úr ull
Hún segir nokkrar ástæður fyrir
því að ákveðið var að prófa að
nota afgangsullina í Uppspuna til
landgræðslu. „Við vitum að ull er
lífrænt efni sem brotnar niður með
tímanum. Flest allt sem brotnar
niður getur gert jarðveg frjósamari
og við höfum ávallt veitt því athygli
að kringum ull, vex gras vel. Við
vitum af dæmum um að ull hafi verið
notuð með góðum árangri til upp
græðslu, bæði hér á Íslandi og í út
löndum í rofabörð og á steinklappir.
Ég heyrði fyrir nokkrum árum af
strák í Austurríki sem var að þróa
áburðarköggla úr ull, ásamt því
að gera ábreiður yfir beð og utan
um viðkvæm tré. Fáum árum síðar
heyrði ég að þessi áburður hefði
verið tekinn til tilrauna í grasa
garðinum í Vín.
Þetta þótti mér afar áhugavert og
langaði að gera tilraunir með hvort
ekki mætti nýta afgangsullina okkar
á gróðursnautt land einhvers stað
ar til að hjálpa til við uppgræðslu
eins og gert er með úrgangshey. Ég
hef svo sem ekki mörg slík svæði á
minni jörð, sem er öll grasi gróin,
en afréttur okkar er ansi hrjóstrugur
víða og Sprengisandur sem umlykur
hann er náttúrlega að megninu til
grjót og hraun.
Ég talaði því við Landgræðsluna
til að vita hvort ekki væri svæði
einhvers staðar sem þyrfti úrbóta
með, þar sem kindur væru helst ekki.
Eftir að hafa talað við nágranna mína
um hvort og þá hvert væri heppilegt
að fara með slíka ull – þar sem ekki
væru kindur – ræddi ég við fólk hjá
Landgræðslunni og Hekluskógum.
Í kjölfarið var okkur úthlutað svæði
innan landgræðslugirðingar rétt
innan við Heklu sem við máttum
nota til að prófa okkur áfram með
þetta verkefni.
Þetta er fyrsta ferð okkar með
svona, en við munum fylgjast með
hvernig gengur og bæta við blettinn
eftir þörfum. Við höfum fulla trú á
að þetta verði til bóta.“
Vel fylgst með áhrifunum
Hulda gerir sér ekki alveg grein
fyrir því hversu lengi ullin verði
að brotna niður. „Ég veit það ekki
þar sem við höfum ekki gert þetta
áður, en ég geri ráð fyrir að það
taki ekki nema ár að verða bundið
jarðveginum og væntanlega bætir
það hann í einhver ár á eftir. Það er
í rauninni margt sem við erum að
athuga með þessu. Þó ég sé ekki að
fara í vísindalega rannsókn á þessu,
þá er markmiðið að fara reglulega
og taka myndir og meta framfarir
og ég á von á að Garðar og Hrönn
muni fylgjast með þessu líka. Það
sem ég vil athuga er hvort þetta bæti
jarðveginn og þá hversu lengi hún
gerir það – eða hvort þetta fjúki bara
allt í burtu í vetur.“
Gæti nýst í trjárækt
„Við fórum með um 1.000 kíló á
kerrum og dreifðum á malarkamb
með litlum gróðri sem sneri frá
veginum og blasir því ekki við
þeim sem leið eiga um veginn,“
svarar Hulda þegar hún er spurð
um mögulega sjónmengun af
ullinni. „Það er vissulega sjón
mengun af ull sem dreift er á opið
svæði – sérstaklega af þeirri hvítu.
En það verður líka spennandi að
fylgjast með hversu lengi hún sker
í augun. Ég mun fara aftur fljót
lega inn úr og skoða þetta, þá er
um mánuður liðinn frá dreifingu
og verður fróðlegt að sjá þá
hvernig þetta lítur út.
Við erum svo sem engir frum
kvöðlar í því að nýta ullina til
landgræðslustarfa, en okkur þykir
þetta samt spennandi. Við höfum
líka lagt hana í þykkum lögum í
kringum berjarunna sem eru að
kafna í grasi, þannig að hún heldur
grasinu niðri og einnig heldur hún
rakanum betur í jarðveginum við
trén. Við höfum sett skjólbelti á
nokkra staði í okkar land í sam
starfi við Suðurlandsskóga og þá
höfum við fengið plastrenning til
að setja yfir ræmuna sem plægð er
fyrir skjólbeltið. Ég spurði hvort
ekki væri hægt að nota eitthvað
annað efni en að setja plast út í
náttúruna með þessum hætti, en
þeir töldu ekki að neitt annað gæti
hamið grasvöxtinn að gagni.
Okkar reynsla af þessu er að
blessað grasið er ansi ákaft að
bora sér upp um plastið og eiga
trén erfitt sums staðar þrátt fyrir
það, þó það hjálpi vissulega, en
okkur grunar að ef trjám er plant
að í plægða reiti og ull lögð með
þeim, þá muni hún ekki síður
aðstoða við að halda niðri gras
vexti á meðan trén eru að ná sér af
stað og auka síðan gæði jarðvegar
þegar hún brotnar niður og hjálpi
þá trjánum jafnframt að vaxa í
framhaldinu.“ /smh
Ullin frá Uppspuna komin á malarkamb við Heklu.
Hulda Brynjólfsdóttir, sauðfjárbóndi á Tyrfingsstöðum og verksmiðjustjóri
í Uppspuna.
Teigskógarmálið enn í kæruferli:
Eitt tilboð barst í lagningu
6,6 km kafla í Gufudalssveit
Tilboð í endurbyggingu og breikk
un Vestfjarðavegar (6028) á um
6,6 km kafla frá Gufu dalsá að
Skálanesi var opnað 14. ágúst.
Aðeins eitt verktakafyrirtæki,
Borgarverk ehf. í Borgarnesi, bauð
í verkið og var mjög nálægt kostn
aðaráætlun Vegagerðarinnar.
Þarna er um að ræða hluta af
vegi sem tilheyrir fyrirhugaðri
vegalagningu um Teigskógarsvæðið
í Gufudalssveit.
Verkið skiptist í tvo kafla, annars
vegar um 5,4 km langan kafla frá
Gufudalsá að Melanesi. Sá kafli er
ekki hluti af framtíðar Vestfjarðavegi
en mun þjóna umferð um Gufudal
þar til þverun Gufufjarðar og
Djúpafjarðar verður framkvæmd.
Hins vegar um 1,2 km langan kafla
frá Melanesi að Skálanesi, en sá kafli
er hluti af framtíðar Vestfjarðavegi.
Skal verkinu að fullu lokið 15. júlí
2021.
Borgarverk ehf. í Borgarnesi
bauð 305.563.000 krónur í verkið,
sem er 5,8% yfir kostnaðaráætlun
Vegagerðarinnar. Munurinn er upp
á 16,7 milljónir króna.
Tafir og endalausar kærur
Veglagning um Teigsskóg sem verið
hefur í endalausu kæruferli fellur
ekki undir þann hluta verksins sem
boðinn var út í sumar. Kærurnar hafa
verið knúnar áfram af Landvernd
og hins vegar landeigendum að
Hallsteinsnesi og Gröf. Einnig hafa
Náttúruverndarsamtök Íslands og
Fuglaverndarfélag Íslands komið
að kærum vegna fyrirhugaðrar
vegalagningar sem tafið hefur
samgöngubætur við suðurhluta
Vestfjarða um áratugi. Hafa
fjölmargir íbúar og sveitarfélög
á Vestfjörðum marglýst megnri
vanþóknun sinni á framgöngu
kærenda sem gangi þvert á
hagsmuni íbúa fjórðungsins og skaði
uppbyggingu á svæðinu.
G. Pétur Matthíasson, upp lýsinga
fulltrúi Vegagerðarinnar, segir að
enn sé beðið niðurstöðu úr skurðar
nefndar umhverfis og auðlindamála
sem gaf út að úrskurður kæmi núna
í haust. Nefndin hafði þegar hafnað
því að fallast á stöðvunarkröfu þar
sem Vegagerðin væri ekki að fara á
þessu ári í framkvæmdir á umdeildu
svæði.
Samkvæmt úttekt nefndarinnar
sjálfrar, sem samanstendur af sjö
fulltrúum, var meðal vinnsluhraði
á málum sem nefndin fékk til
umfjöllunar á síðustu tveim árum
um 9 til 14 mánuðir. Hefur þessi
seinagangur verið gagnrýndur,
en í upphafi ársins 2020 voru 83
óafgreidd mál hjá nefndinni.
„Það sem var boðið út núna
mun nýtast, hvað sem verður, og
mun nýtast í nokkur ár sem hluti
Vestfjarðavegar og því akkur í því
að leggja hann,“ segir G. Pétur
Matthíasson.
Hann segir að verið sé að vinna
í samningsmálum við landeigendur,
en reiknar með að ekki gerist mikið
í því fyrr en nefndin hefur skilað
úrskurði sínum. Áframhald miðist
síðan allt við hver úrskurðurinn
verður.
/HKr.
Landbúnaðarráð Dalvíkur byggð
ar ályktaði á dögunum um það
ófremdarástand sem uppi er vegna
óheftrar útbreiðslu á mink. Er villi
minkur orðinn mikill skaðvaldur
í fuglavarpi og víða farið að sjá
verulega á fuglalífi, ekki síst í
friðuðu landi. Í ályktuninni segir:
„Til umræðu minka og
refaveiðar í Dalvíkurbyggð 2020.
Landbúnaðaráð Dalvíkurbyggðar
leggur til að sótt verði um aukið
fjármagn til Umhverfisstofnunar
vegna eyðingar minks í sveitar
félaginu sem nú er farinn að gera
allt of mikið vart við sig eftir að
átaki nokkurra sveitarfélaga lauk sem
miðaðist við að útrýma villimink,
þessu átaki lauk of snemma með
þeim afleiðingum að minkurinn er
farinn að vaða upp á nýjan leik með
tilheyrandi eyðileggingu á lífríki
sveitarfélagsins.“
Útrýming villiminks stór
umhverfismál
„Landbúnaðarráð telur skipulagða
útrýmingu villiminks vera eitt af
stærri umhverfismálum margra
sveitarfélaga, þess vegna þurfi
ríkisvaldið að bregðast við með
stórauknu fjármagni í málaflokkinn.
Ráðið felur sviðsstjóra að senda inn
umsókn til Umhverfisstofnunar.“
Alvarleg áhrif á fuglalíf
Jón Þórarinsson á Hnjúki í Skíðadal,
formaður Landbúnaðarráðs, segir
ástandið víða orðið mjög dapurlegt.
Minkurinn drepi mó og vaðfugla
í stórum stíl og því sé það mjög
aðkallandi fuglaverndarmál að halda
villta minkastofninum í skefjum.
Á vef Náttúruverndarstofnunar
Íslands segir að minkur hafi átt þátt
í að útrýma keldusvíninu hér á landi.
Þá sé minkur skilgreindur sem ágeng
tegund á Íslandi og í fleiri löndum þar
sem hann er talinn hafa valdið usla í
vistkerfum. Minkur hefur t.d. valdið
miklum skaða þar sem hann hefur
komist í lundabyggð eins og greint
var frá í Skessuhorni fyrir nokkrum
árum. Þá drap minkur lunda í tugatali
í Kjarrarnesi á Mýrum og hirti egg.
Aðskotadýr í íslenskri náttúru
Jón segir að minkur sé líka mikill
skaðvaldur í lax og silungsveiðiám.
Hann sé aðskotadýr í íslenskri náttúru
sem eigi sér enga náttúrulega óvini
hér á landi, frekar en refurinn.
/HKr.
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar:
Skorar á yfirvöld að bregðast við
óheftri útbreiðslu á villimink
– Formaður segir mink hafa alvarleg áhrif á fuglalíf og veiðiár víða um land
Minkur drepur mikið af fugli í náttúrunni ekki síður en refurinn. Þá er mink-
urinn líka afburða sunddýr og sækir mikið í veiðiár, vötn og fjörur þar sem
hann veldur oft miklum usla. Hann hikar heldur ekkert þó bráðin sé mun
stærri en hann sjálfur. Á þessari mynd, sem er úr myndbandi sem tekið var
af David Suggitt á Ontariovatni í Kanada 2014 og finna má á YouTube, sést
minkur í átökum við máv.
Minkur með lax.