Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202014
Aðsóknin aldrei verið meiri
á Fræðasetur um forystufé
Aðsóknin að Fræðasetri um
forystufé í Þistilfirði hefur aldrei
verið meiri en í sumar. Að sögn
Daníels Hansen forstöðumanns
eru gestir nánast allir Íslendingar.
Hann segir að þegar COVID-
fárinu léttir muni sjónum einnig í
meira mæli verða beint að erlendum
ferðamönnum í markaðssetningu
á þessu einstaka fjárkyni. Í litlu
sýningarrými inn af móttökurými
setursins hefur listsýning verið
í gangi í sumar, þar sem Gunnar
Karlsson sýnir leirhrúta, og eru
þeir til sölu. „Næsta sumar verður
Pétur Magnús son með sýningu á
ljósmyndum af forystufé. Pétur býr
bæði í Reykjavík og á Raufarhöfn.
Gaman er að geta þess að þetta gallerí
er bókað til ársins 2032,“ segir Daníel.
Þrennir tónleikar haldnir í sumar
„Í sumar hafa verið haldnir þrennir
tónleikar þar sem listafólk í
heimabyggð hefur spilað og sungið.
Áætlað var að hafa þrenna tónleika í
ágúst en þeim verður frestað vegna
ástandsins í landinu,“ bætir hann við.
Pylsur, kerti og ullarband
Alls kyns varningur er jafnan á
boðstólum í fræðasetrinu, allt sem
er unnið úr afurðum forystufjár
eða tengt forystufé á einhvern hátt;
kerti, pylsur, horn og svo ullarband
af forystufé, sem Daníel segir að sé
mýkra en annað band og það sé mjög
vinsælt. /smh
HLUNNINDI&VEIÐI
FRÉTTIR
Daníel Hansen er forstöðumaður fræðasetursins. Myndir / smh
Uppstoppaðir hausar prýða vegg í
aðalrými sýningarsalarins.
Einstakt ullarband af forystufé er til
sölu á setrinu.
„Ef þú klæðist fatnaði úr ull af
forystu fé þá ratar þú alltaf heim“,
stendur hér fyrir ofan varninginn í
versluninni.
Sýningarrýmið þar sem Gunnar Karlsson sýnir leirhrúta.
Ársfundur Samtaka norrænna bændasamtaka (NBC):
Sjálfbær og holl matvæli
eru í forgrunni
Á dögunum héldu Samtök nor
rænna bændasamtaka (NBC)
stóran ársfund sinn sem að þessu
sinni fór fram rafrænt. Til stóð
að halda fundinn í Brumunddal
í Noregi en vegna kórónakrísunn
ar var það ekki unnt á þessu ári.
Fyrirferðarmestu málefni fundar
ins voru áhrif COVID19 á land
búnað á Norðurlöndunum ásamt
umhverfis og loftslagsmálefnum,
en formenn norrænu bænda
samtakanna sendu í framhaldi af
fundinum ályktun í þeim efnum til
Norðurlandaráðs.
Kórónukrísan hefur kastað nýju
ljósi á mikilvægi matvælakerfa um
allan heim og eru neytendur nú
meðvitaðri um hvaða gildi norræn
matvælaframleiðsla hefur. Á þessum
erfiðum tímum hafa norrænir bændur
og samvinnufélög þeirra sýnt hvað
í þeim býr við að afhenda örugg,
sjálfbær og holl matvæli. Hér að
neðan má sjá brot úr ályktun sem
formenn norrænu bændasamtakanna
undirrituðu í kjölfarið af fundinum
sem sent var til Norðurlandaráðs:
„Norrænn landbúnaður og
skógariðnaður eru í fararbroddi þegar
kemur að sjálfbærri framleiðslu. Við
höfum heilbrigð dýr, minnstu notkun
á sýklalyfjum í Evrópu, ákjósanlega
notkun varnarefna og áburðar ásamt
loftslagsskilvirkri framleiðslu.
Bændur og skógareigendur stjórna
stórum landsvæðum sem fanga upp
og geyma kolefni og starfsemin leiðir
af sér líffræðilegan fjölbreytileika og
hreint vatn. Loftslagsbreytingarnar
eru hnattræn ógnun sem eykur
varnarleysi í matvælaframleiðslu.
Bændur og skógareigendur verða
fyrir áhrifum vegna þessa en oft og
tíðum eru það þessir aðilar sem hafa
lausnir til að minnka losun. Norrænir
bændur og samvinnufélög þeirra eru
leiðandi þegar kemur að minnkun
á losun gróðurhúsalofttegunda sem
hefur verið á bilinu 6–17 prósentum
minna frá árinu 1990.
Losun gróðurhúsalofttegunda frá
jórturdýrum er hluti af náttúrulegu
ferli og horfa verður á það á
annan hátt en losun vegna vinnslu
og brennslu á jarðefnaeldsneyti.
Ekki er hægt að koma í veg fyrir
losun gróðurhúsalofttegunda frá
líffræðilegum kerfum, þar á meðal
landbúnaði. Norrænir bændur
hafa í stórum mæli skuldbundið
sig til að halda áfram með enn
umhverfisvænni framleiðslu en áður.
Nú þegar er unnið með verkfæri til að
bæta fóðrun og uppskeru, skipta út
jarðefnaeldsneyti fyrir líforku ásamt
framleiðslu á lífgasi úr búfjáráburði.“
/ehg
Um 60 manns sem starfa við landbúnað frá Norðurlöndunum komu saman
þann 20. ágúst síðastliðinn á ársfundi NBC-samtakanna þar sem staða
landbúnaðar vegna COVID-ástandsins var rædd ásamt loftslagsmálefnum.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, var fulltrúi íslenskra
bænda á fundinum.
Kveikur seldur til Danmerkur
Stóðhesturinn Kveikur frá Stangar
læk hefur verið seldur til Dan
merkur en eigendur hestsins, þau
Birgir Leó Ólafsson og Ragna
Björnsdóttir, segja kaupverðið
trún aða rmál.
Kveikur hefur verið einn af allra
vinsælustu stóðhestum landsins en
hann hlaut m.a. 10.0 fyrir tölt og
vilja og geðslag á Landsmóti 2018.
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir
og Kveikur hafa gert það gott
saman á keppnisvellinum og náð
frábærum árangri á alls konar
mótum. Faðir Kveiks er Sjóður
frá Kirkjubæ og móðir hans er
Raketta frá Kjarnholtum.
/MHH
Kveikur að störfum, Birgir Leó heldur í merina og Aðalheiður Anna í Kveik.
Nýir eigendur taka við honum í Danmörku í haust. Mynd / Magnús Hlynur Hreiðarsson
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs:
Borea Adventure og verndun
fjallarefsins fær tilnefningu
Ferðaskrifstofan Borea Advent
ures á Ísafirði er tilnefnd til
umhverfisverðlauna Norður
landa ráðs árið 2020 en þar er
stunduð sjálfbær ferðamennska
sem verndar fjallarefinn. Þema
umhverfisverðlaunanna í ár
er líffræðileg fjölbreytni og
endurspeglar og styður við 14. og
15. Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna um líf í hafi og á landi.
Í tilkynningu frá Norðurlandaráði
segir að líffræðileg fjölbreytni sé
undirstaða velferðar og grundvöllur
tilveru okkar og þess vegna renna
umhverfisverðlaun ráðsins í ár til
einhvers sem hefur lagt eitthvað
sérstakt af mörkum til verndar
fjölbreytileika í náttúrunni.
Borea Adventures vinnur með
vísindafólki frá Náttúrufræðistofnun
og Melrakkasetri Íslands (The Arctic
Fox Centre) til þess að tryggja að
starfsemin fari fram bæði á faglegan
og sjálfbæran hátt. Fjallarefurinn,
einnig nefndur heimskautarefur
(Vulpes lagopus), er eina upprunalega
landspendýrið á Íslandi. Hann gegnir
mikilvægu hlutverki í íslenskri náttúru
vegna þess að hann er eina rándýrið
sem er til staðar á náttúrulegum
forsendum. Ferðaskrifstofan hefur
sýnt að með starfsemi sinni geti
verndun líffræðilegrar fjölbreytni og
sjálfbær ferðamennska farið saman.
Með því að leggja áherslu á mikilvægi
tegundarinnar fyrir vistkerfið á
Íslandi og takast á við fordóma
um að fjallarefurinn sé meindýr
sem eyðileggi náttúruna vill Borea
Adventures snúa almenningsálitinu
á sveif með þessu litla rándýri.
Ti lkynnt verður um
verðlaunahafann 27. október
næstkomandi og hlýtur
vinningshafinn að launum 350.000
danskar krónur. Aðrar tilnefningar í
ár eru eftirfarandi:
• Dag O. Hessen – Noregi
• Jens-Kjeld Jensen – Færeyjum
• YLE fyrir herferðina „Bjargið
frjóberunum“ – Finnlandi
• Lystbækgaard – Danmörku
• Torbjörn Eckerman –
Álandseyjum
• Samband félagasamtaka
lífrænna bænda á Norðurlöndum
– Svíþjóð. /ehg