Bændablaðið - 10.09.2020, Side 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202018
HROSS&HESTAMENNSKA
FRÉTTIR
Áhættumat erfðablöndunar útskýrt
Valdimar Ingi Gunnarsson birti
grein um Áhættumat erfðablönd
unar í Bændablaðinu þann 27.
ágúst og af því tilefni teljum við
hjá Hafrannsóknastofnun nauðsyn
legt að skýra út í almennum orðum
hvernig áhættumat erfða blöndunar
er notað sem stjórn tæki til að koma
í veg fyrir hugsanleg spjöll á villt
um nytjastofnum af völdum eldis á
frjóum Atlantshafslaxi í sjó.
Áhættumat erfðablöndunar er tví
þætt, annars vegar líkan sem reiknar
áætlaðan meðaltalsfjölda storkulaxa
sem ganga í hverja laxveiðiá og hins
vegar vöktun í veiðiám og öðrum ám
til að spá fyrir um fjölda eldislaxa í
göngum ár frá ári.
Miðað er við að fjöldi eldislaxa
fari ekki yfir 4% af fjölda göngulaxa
og var það viðmið tekið í samráði
við færa erlenda sérfræðinga á sviði
erfðablöndunar. Erfðablöndun yrði
við slíkt innstreymi mun lægri vegna
minni tímgunargetu eldislaxa.
Út frá fyrrnefndum vöktunar
gögnum ásamt nýjustu gögnum
úr ritrýndum rannsóknum er síðan
líkanið leiðrétt með reglubundnum
hætti, eigi sjaldnar en á þriggja ára
fresti.
Áhættumat sem stjórntæki
Á grundvelli þess gerir Haf
rannsókna stofnun síðan tillögu til
ráðherra um það magn frjórra laxa
sem heimila skal að ala í sjó hverju
sinni á tilteknu hafsvæði, og getur
sú tillaga falist í minnkun, óbreyttu
magni eða aukningu eldis eftir því
sem niðurstöður gefa tilefni til.
Því má segja að stýring fiskeldis
á Íslandi, í þá veru að lágmarka
spjöll á villtum nytjastofnum, sé
svokölluð forvarnarlausn (e. front
end solution) en ekki viðbragðslausn
(e. endofthepipe solution).
Ráðleggingar byggja því á hvernig
fiskeldisfyrirtæki hafa staðið sig við
að lágmarka strok frjórra eldislaxa
úr eldinu og er því jákvæður hvati
til fyrirtækja að nýta ávallt bestu
aðferðir við eldi í sjó sem tryggja
að strok haldist í lágmarki.
Vöktunaraðferðir
Þær aðferðir sem notaðar eru til að
meta fjölda eldislaxa er þríþætt:
1. Vöktun með Árvaka. Í ám
næst eldissvæðum og í vísiám
í hverjum landshluta er komið
fyrir Árvaka sem er búnaður
sem tekur myndband af hverjum
fiski sem syndir upp (eða niður)
ána. Út frá mynd má greina
hvort um er að ræða eldisfisk
eða náttúrulegan fisk í rauntíma.
Stefnt er að því að 12 vatnsföll
verði vöktuð með þessum
hætti. Hægt er að fylgjast
með gögnum á heimasíðu
Hafrannsóknastofnunar.
2. Arfgerðagreining á grunuðum
eldislöxum sem veiðast í ám.
Allir grunaðir eldislaxar eru til
kynntir til veiðifélags, Fiskistofu
og Hafrannsóknastofunar.
Þessir fiskar eru arfgerðagreind
ir og bornir saman við gagna
grunn yfir alla hænga sem not
aðir hafa verið í íslensku eldi.
Faðernis greiningin gefur kost
á því að rekja þessa strokulaxa
til eldisfyrirtækja og kvíastæðu.
Í heild hafa nú 18 eldisfiskar
verið greindir, þar af 15 með
þekktan uppruna, einn lax lík
lega úr íslensku eldi og tveir úr
eldi erlendis. Þar sem veiði álag
er um 50% í íslenskum ám er því
áætlaður samanlagður heildar
fjöldi eldislaxa í íslenskum ám
2018 og 2019 sé um 30. Enn
er beðið eftir tilkynningum um
eldislaxa á yfirstandandi ári
en þær hafa verið fáar fram að
þessu.
3. Rafveiðar á seiðum úr um 20
ám. Leitað er eftir eldisseiðum
eða blendingum. Fram að
þessu hafa ekki fundist seiði
með eldisuppruna í íslenskum
laxveiðiám.
Með þessum aðferðum telur Haf
rannsóknastofnun að gott mat fáist
á fjölda strokulaxa sem ganga í
laxveiðiár og telur ekki að frekari
aðgerða, svo sem köfun í ám, sé þörf.
Ritrýni áhættumats
Áhættumatið hefur verið sent til
samráðsnefndar vísindamanna á
sviði fiskifræði og stofnerfðafræði
eins og tilgreint er í 24. gr. laga nr.
101/2019.
Að mati nefndarinnar var það talið
heppilegt að Hafrannsóknastofnun
skuli hafa hugað gaumgæfilega að
þessu viðgangsefni með þessum
hætti. Vísindanefndin telur líkanið
um erfðablöndun nýstárlegt og
nytsamlegt til þess að leggja mat á
áætlaðan fjölda laxa sem kunni að
sleppa út í náttúruna og finna sér leið
upp í ár.
Þó að breyturnar í líkaninu séu
háðar óvissu, eru þær stikaðar með
gildum úr fræðiritum og/eða viðeig
andi heimildum. Nefndin benti á
mögulegar umbætur á líkan inu, m.a.
fínstillingu nokkurra breyta. Tillit
verður tekið til þess í næstu endur
skoðun áhættumatsins.
Þess ber að geta að áhættu
matslíkanið hefur verið tekið upp
af Fisheries and Ocean Canada
(Hafrannsóknastofnun Kanada) við
skoðun á áhrifum eldis við strendur
Nýfundnalands og er í vinnslu fyrir
Nova Scotia. Um notkun áhættu
mats við strendur Nýfundnalands
var skrifuð ritrýnd vísindagrein í
tímaritið Aquaculture Environmental
Interactions í febrúar á þessu ári.
Bradbury, Ian R.; Duffy, Steve;
Lehnert, Sarah J.; et al Modelbased
evaluation of the genetic impacts of
farmescaped Atlantic salmon on
wild populations. Aquacult Environ
Interact Vol. 12: 45–59, 2020
Ragnar Jóhannsson,
sviðsstjóri fiskeldis hjá
Hafrannsóknastofnun.
NYTJAR HAFSINS
Friðþjófur Árnason, starfsmaður Hafró, við rafveiðar.
Ragnar Jóhannsson.
Erlendir ríkisborgarar sinntu 48,6% starfa í ferðaþjónustu á Suðurlandi á síðasta ári:
Ferðaþjónustustörfum í Mýrdalshreppi
fjölgaði um 634% frá 2009 til 2019
– Meðallaunin í ferðaþjónustu á Suðurlandi voru 498 þúsund á mánuði, eða 15% lægri en að meðaltali í öðrum atvinnugreinum
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
(SASS) hefur látið gera greiningu
á atvinnulífinu á svæðinu með sér
staka áherslu á ferða þjónustuna.
Þar kemur skýrt fram hvað vægi
ferðaþjónustu óx gríðarlega á
Suðurlandi frá 2008 til 2019, eða
úr 7% að meðaltali í 18,1%.
Um miðjan mars 2020, þegar
ljóst var að COVID19 myndi
hafa mikil áhrif á samfélag og
atvinnulíf á Suðurlandi, hófust
Samtök sunnlenskra sveitarfé
laga (SASS) handa við að greina
möguleg áhrif sem COVID19
gæti valdið. Frá þeim tíma hefur
stór hluti verkefna þróunarsviðs
SASS snúist um mótvægisaðgerð
ir og stuðning við atvinnulíf á
Suðurlandi. Sérstök áhersla hefur
verið lögð á ferðaþjónustuna, sem
hefur verið í miklum ólgusjó það
sem af er ári.
Rúmlega 55% nýrra starfa varð til
í ferðaþjónustu
Störfum í heild fjölgaði mikið á
Suðurlandi á tímabilinu 2012 til
2019, eða um 3.491 einstakling í
aðalstarfi. Störfum í ferðaþjónustu
fjölgaði um 1.937, eða 55,4% allra
nýrra starfa. Íbúum fjölgaði á sama
tíma um 4.834. Um 13% fyrirtækja á
Suðurlandi störfuðu í ferðaþjónustu
á árinu 2019.
Rúmlega helmingur starfa í
Mýrdalshreppi í ferðaþjónustu
Í þeim sveitarfélögum þar sem vægi
ferða þjónustunnar er hvað hæst er
mest fjölgun aðalstarfa á milli ára.
Ferðaþjónustustörfum fjölgaði sem
dæmi um 634% á milli áranna 2009–
2019 í Mýrdalshreppi. Árið 2019
var rúmlega helmingur aðalstarfa í
Mýrdalshreppi í ferðaþjónustu, eða
52,3%. Árið 2009 var hlutfallið þar
15,3%. Næsthæst, árið 2019, var
hlutfallið í Skaftárhreppi, 51,1%.
Lægst, árið 2019, var hlutfallið í
Ölfusi, 10,3%.
Nær helmingur starfsmanna
kemur frá útlöndum
Þessari miklu aukning í ferða þjónustu
hefur verið mætt að verulegu leyti
með erlendu vinnuafli. Þannig voru
41% ársverka erlendra ríkisborgara á
Suðurlandi á árinu 2019 í ferðaþjón
ustu. Ársverk í ferðaþjónustu voru
3.124 á árinu 2019. Þar af voru er
lendir ríkisborgarar 1.517 (48,6%) og
íslenskir ríkisborgarar 1.607 (51,4%).
Hlutfall erlendra ríkisborgara af öllu
atvinnulífinu á Suðurlandi er 21,4%.
Um 79% tekna atvinnugreina
í Mýrdalshreppi kom úr
ferðaþjónustu
Hlutfall rekstrartekna í ferðaþjónustu
af heildar rekstrartekjum allra
atvinnugreina á Suðurlandi á árinu
2018 var 17% á Suðurlandi. Hæst
var hlutfallið í Mýrdalshreppi,
78,7% og þar á eftir í Skaftárhreppi,
55,1%. Lægst var hlutfallið í
Vestmannaeyjum, 3,9%.
15% lægri meðallaun í
ferðaþjónustu en öðrum greinum
Ferðaþjónustan skapar 18,8% starfa á
Suðurlandi og 16% launa. Heildarlaun
í ferðaþjónustu 2019 voru tæpar 16
milljarðar króna. Meðallaun í þessari
grein á Suðurlandi voru 423 þúsund
krónur á mánuði árið 2019, eða um
15% lægri en meðallaun almennt á
Suðurlandi á sama tíma.
Hæst meðallaun í ferðaþjónustu
voru í Vestmannaeyjum, eða 513 þús.
á mánuði.
/HKr.
Í Vík í Mýrdal hefur verið mjög mikil uppbygging í ferðaþjónustu á síðustu árum. Mynd / HKr.