Bændablaðið - 10.09.2020, Blaðsíða 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202022
UTAN ÚR HEIMI
Norskir bændur hvetja til
landbúnaðar í þéttbýli
Samvinnufélag bænda í Noregi,
Felleskjøpet, hyggst nú feta
slóðir í að hvetja til meiri land
búnaðarframleiðslu í þétt býli.
Á dögunum keypti félagið 51
prósents hlut í fyrirtækinu U.Reist
sem hefur tekið þátt í nokkrum
verkefnum undanfarin ár til að þróa
landbúnað í borgum og bæjum.
Markaðurinn fyrir þéttbýlan
landbúnað eykst sífellt í Noregi og
áhugi á mat sem fólk ræktar sjálft
og er svæðisbundið er orðið mjög
vinsælt. Nú þegar hefur Felleskjøpet
hrint af stað nokkrum verkefnum sem
snúa að ræktun á þéttbýlum svæðum.
Félagið og U.Reist-fyrirtækið hafa
starfað saman undanfarin ár að
nokkrum verkefnum og hafa meðal
annars þróað deililandbúnaðarsvæði
á tveimur stöðum nálægt Osló sem
eru eins konar skólagarðar fyrir
almenning. Vinsældir matvæla
sem ferðast um stuttan veg hafa
verið miklar undanfarin ár og eftir
að kórónukrísan skall á hefur það
aukist enn frekar. Nú sjá fyrirtækin
að verktakar og sveitarfélög
eru sífellt að koma meira inn í
hugmyndafræðina, til dæmis með
grænum þökum í borgunum.
/ehg – Bondebladet
Alpakka-dýr eru suður-amerísk húsdýr af úlfaldaætt. Þau eru af ættkvíslinni
Vicugna. Dýrin eru náskyld lamadýrum og eru ræktuð vegna ullarinnar.
Noregur:
Vinsældir göngutúra með
alpakka-dýrum aukast
Náttúruleg búsvæði
alpakkadýra er í
Andes fjöllunum í Perú
í SuðurAmeríku en
í Noregi eru um þrjú
þúsund al pakkadýr
og vekja þau jafnan
áhuga heimamanna
og ferða manna.
Nú hafa nokkrir
bændur séð tækifæri í að
bjóða upp á gönguferðir
með kameldýrunum,
sem njóta mikilla
vinsælda. Um er að
ræða hálftíma göngutúra
þar sem hver og einn
þátttakandi fær sitt dýr
til að ganga með.
Á bænum Smedsrud
í Sørum er uppbókað í
allar alpakka-göngu-
ferðir sumarsins og nú
vinna eigendur sveita-
bæjarins að því að þróa
þennan nýja möguleika
enn frekar.
Hugmynd bænd anna
í byrjun með að fá sér
slík húsdýr var til að halda skógi í
skefjum og viðhalda menningarlands-
laginu. Einnig hafa margir alpakka-
bændur í Noregi búið til garn úr feldi
þeirra. Nú hafa alpakkaupplifanir
tekið við, svokallaðar gönguferðir
með dýrunum, en loftslagið í Noregi
passar einkar vel fyrir þessa tegund
dýra.
Alpakkadýrin ganga úti á sumrin
og á veturna geta þau gengið út og
inn eins og þau vilja. Þetta eru
félagslegar skepnur en hafa í raun
ekki mikinn áhuga á strokum eða
klappi og náttúrulegt eðli þeirra er
að vera í örlítilli fjarlægð frá fólki.
Þetta eru góðar skepnur og forvitnar
svo þau geta jafnframt sótt í að
koma nálægt fólki.
Dýrin hafa marga góða eiginleika
eins og að þau kasta alltaf snemma
dags þegar er gott veður og eftir
að nýr kálfur hefur litið dagsins
ljós kemur annað dýr úr flokknum
sem bregður sér í eins konar ljós-
móðurhlutverk fyrir það. Þau eru
umhyggjusöm og passa upp á hvað
annað og telja bændurnir að róandi
nálægðin við dýrin og náttúruna geri
vinsældir gönguferða með þau svo
vinsæla sem raun ber vitni.
/ehg - Bondebladet
Það fór greinilega vel á með Erlu Hjördísi Gunnars-
dóttur blaðamanni og þessu alpakka-dýri sem hún
heilsaði upp á Noregi.
Bænda
24. september
Húsgagnaframleiðandinn Vestre í Noregi:
Mun byggja umhverfisvænstu
húsgagnaverksmiðju í heimi
Húsgagnaframleiðandinn Vestre í Noregi fjárfestir nú fyrir 300 milljónir norskra króna í nýrri verksmiðju fyrirtækisins
sem verður sú umhverfisvænsta sinnar tegundar í heiminum.
Húsgagnaframleiðandinn Vestre
í Noregi fjárfestir nú fyrir 300
milljónir norskra króna í nýrri
verksmiðju sem staðsett verður í
Magnor, rétt við sænsku landamær
in. Verksmiðjan og umhverfi henn
ar hafa fengið nafnið „The Plus“
og verður hafist handa í haust við
bygginguna.
Danski arkitektinn Bjarke Ingels á
veg og vanda að hönnun en hann hefur
meðal annars hannað höfuðstöðvar
Google-fyrirtækisins í Kaliforníu.
Verksmiðja Vestre-fyrirtækisins
verður fyrsta iðnaðarbyggingin í
Noregi sem fær allra hæstu umhverfis-
vottun sem hægt er að ná þar sem
vélmenni og sjálfkeyrandi flutninga-
bílar verða notaðar við framleiðsluna
sem keyrir á endurvinnanlegri orku.
Verksmiðjan mun hafa helmingi minni
losun gróðurhúsalofttegunda en sam-
bærileg verk efni. Fjár fest ingin, upp
á 300 milljónir norskra króna, er sú
langstærsta í norskri húsgagnafram-
leiðslu til margra ára. Reiknað er með
að í nýju verksmiðjunni skapist um
það bil 70 ný störf.
Brú milli kynslóða
Vestre framleiðir útihúsgögn fyrir
hið opinbera og hefur fyrirtækið
vaxið hratt undanfarin ár eftir að
þeir hófu útflutning á vörum sínum.
Með nýju verksmiðjunni vilja
forsvarsmenn fyrirtækisins sýna
nýja mynd af því hvað iðnaður getur
verið. Um leið og ný störf munu
skapast er stefnt á enn frekari vöxt
fyrirtækisins um leið og hugað er
að umhverfinu.
Fyrirtækið stefnir á að skapa brú
á milli iðnaðar og Grétu Thunberg-
kynslóðarinnar. Verksmiðjan verður
nýstárleg á margan hátt þar sem verða
stórir sex metra háir gluggar, engar
girðingar verða umhverfis hana og
ætlunin er að byggja flotta byggingu
til að laða að yngra fólk til starfa.
Nemendum skóla verður boðið að
koma í heimsókn og frá þaki verk-
smiðjunnar getur fólk horft niður á
framleiðsluna í gegnum risastóran
glugga.
/ehg – nrk.no
Verksmiðjan verður mjög nýstárleg.
Frá þaki nýju byggingarinnar geta gestir og gangandi horft í gegnum risastóran þakglugga á það sem fram fer
innandyra.