Bændablaðið - 10.09.2020, Side 23
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 23
Alvarlegt ástand er
nú í Frakklandi og
Þýskalandi vegna
viðvarandi þurrka
tímabils framan af
sumri en í ágúst
mánuði tók ekki
betra við þegar
þrumu veður og flóð
geisuðu yfir fjöl
mörg lönd í Evrópu.
Þriðja árið í röð
þorna árfarvegir
upp og korn grær
ekki en í báðum
löndunum eru nú
strangar reglur um
notkun á vatni.
Júlímánuður var
sá heitasti í Frakk
landi síðan árið 1959
með miklum skorti á
rigningu. Hitastig frá
janúar til júlí var það heitasta síðan
mælingar hófust. Í ágúst fylgdi síðan
þrumuveður og flóð á Normandí
svæðinu og hafði mikil áhrif á sam
göngur. Á nokkrum klukkustundum
mældist úrkoma frá 28 mm og upp
í 60 mm. Ástandið er síst betra í
Þýskalandi en þar var þurrasta vor
í yfir 100 ár. Í júlí rigndi 40 prósent
minna en í venjulegu ári. Í stórum
hluta Evrópu hafa ekki verið viðlíka
þurrkar undanfarin þrjú ár á um 250
ára tímabili. Sérfræðingar segja að
bæði í Frakklandi og Þýskalandi sé
fólk nú að upplifa versta þurrka
tímabil síðan árið 1766.
Takmarka vatnsnotkun
Í bæði Þýskalandi og Frakklandi
voru á tímabili settar á takmarkanir á
vatnsnotkun en í Frakklandi átti þetta
við um 78 af 95 fylkjum landsins. Á
sama tíma gáfu stjórnvöld tilslakanir
á umhverfislögum til að hjálpa 450
þúsund bændum sem urðu fyrir
áhrifum vegna þurrkanna.
Í Þýskalandi eru nú í gildi strangar
reglur um hvenær fólk geti vökvað
garða sína og á Sachsensvæðinu
deyr eldisfiskur vegna súrefnisskorts
því vatn hverfur smám saman úr
uppeldisstöðvunum. Í kringum 250
eldisfyrirtæki eru í miklum vanda
stödd á svæðinu en vatnið lækkar um
tvo sentímetra á dag. Á þessu svæði
hefur eldisiðnaður verið stundaður
frá miðöldum en nú óttast menn að
þessi grein muni þurrkast út.
Skuggalegar hliðar
loftslagsbreytinga
Þar að auki hefur þetta viðvarandi
þurrkatímabil komið hart niður á
korn og vínuppskeru og þar af
leiðandi bændum sem stunda slíka
ræktun. Fréttamiðillinn Farmers
Weekly áætlar að kornframleiðsla
í Evrópu á þessu ári verði 13
prósentum minni en í venjulegu
árferði. Vegna nægilegrar uppskeru
í Rússlandi, Kanada og Ástralíu
verður ekki skortur á korni í heim
inum.
Sérfræðingar óttast að miklar
breytingar gætu verið í vændum
Sérfræðingar óttast að þurrkar
síðustu ára sé einungis viðvörun.
Útreikningar úr umhverfisverkefni
franska umhverfisráðuneytisins
sýna að miklar breytingar séu í
vændum. Næstu 50 ár er áætlað
að hitastig muni hækka á bilinu 1,4
til 3 gráður. Á sama tíma er reiknað
með að úrkoma minnki um 16 til 23
prósent. Vatnsrennsli í árfarvegum
mun lækka um 10 til 40 prósent.
Methiti í Dauðadalnum í
Kaliforníu
Nýlega mældist 54,4 stiga hiti í
Dauðadalnum (Death Valley) í
Kaliforníu í Bandaríkjunum en
þetta er með hæstu mælingum
sem mælst hafa á jörðinni. Mældist
hitinn í þjóðgarðinum Furnace
Creek á svæðinu. Ef mælingin
er rétt er þetta hæsta hitastig sem
mælst hefur á jörðinni síðan 1913
og hæsta hitastig nokkurn tíma í
ágúst. Fyrri mæling átti sér stað
í Dauðadalnum árið 1913 en þá
mældist þar 56,7 gráðu hiti, en
óvissa er um áreiðanleika mæl
ingarinnar fyrir 107 árum síðan.
/ehg – nrk.no
Tæki til á
lager og fleiri
á leiðinni!
HiSpec SA-R 2600 - Verð: 4.349.000 + vsk
Hugum að hausti
Sími 480 5600
Gunnbjarnarholti, 804 Selfossi
Sími 480 5610
Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum
- 11.800L
- 11.000L dæla
- 8” barki
- Sjálfvirkur
áfyllibúnaður
- Dekk: 800/65 R32
Kort frá franska umhverfisráðuneytinu sem birtist 20.
ágúst síðastliðinn. Hér má sjá takmarkanir við notkun
á vatni þar sem á rauðu svæðunum voru innleiddar
ströngustu reglurnar.
Frakkland og Þýskaland:
Mestu þurrkar í 250 ár
– Þrumuveður og flóð fylgdu í kjölfarið
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500
Hafnarstræti 91 | 600 Akureyri | Sími 535 5500
FRAMKVÆMDASJÓÐUR
FERÐAMANNASTAÐA AUGLÝSIR
EFTIR UMSÓKNUM UM STYRKI
FYRIR ÁRIÐ 2021
ICELANDIC
TOURIST
STOFA
BOARD
P
O
R
T
hö
nn
un
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum
og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
• Öryggi ferðamanna.
• Náttúruvernd og uppbyggingu.
• Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
• Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Sjóðnum er ekki heimilt að:
• Bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
• Fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru
og menningarsögulegum minjum.
Gæði umsókna
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög og reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar
í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt frekari
upplýsingum sem finna má á heimasíðu Ferðamálastofu www.ferdamalastofa.is/umsoknir.
Hvar ber að sækja um
Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum þjónustugátt Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is.
Þar er einnig að finna frekari upplýsingar um sjóðinn, skilyrði lánveitinga og umsóknarferlið.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabil er frá og með 8. september til kl. 12:00 á hádegi þann 6. október.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.
ATH! Breytt umsóknartímabil.
•
•
Bænda 24. september