Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 25
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 25
– Steinsagir, kjarnaborvélar, gólf- og vegsagir
MHG Verslun ehf | Víkurhvarf 8 | 203 Kópavogi | Sími 544-4656 | www.mhg.is
ALLT FYRIR ATVINNUMANNINN
HUSQVARNA
FS 400 LV
Sögunardýpt 16,5 sm
HUSQVARNA
K 770
Sögunardýpt 12,5 sm
HUSQVARNA
K 2500
Sögunardýpt 14,5 sm
HUSQVARNA
DM 230
HUSQVARNA
K 3600 MK II
Sögunardýpt 27 sm
HUSQVARNA
Steinsagarblöð
og kjarnaborar
í Adamsborg nokkru áður en
viðskiptin hófust og sinntu
stjórnarmennirnir afgreiðslustörfum.
Á fyrsta starfsdegi sjóðsins var
lagt inn á 43 sparisjóðsbækur auk
þess sem sjóðurinn keypti tvo víxla
á 100 kr hvorn. Inn á sparisjóðs
bækurnar var alls lagt 4039,05 kr
þennan dag og voru upphæðirnar
æði mismunandi eða frá 2 kr og upp
í 1250 kr.
Sparisjóður Norðfjarðar þótti
fara vel af stað og fljótlega sann
aðist að hér var um mikilvæga
stofnun að ræða í byggðarlaginu.
Sjóðurinn aflaði sér snemma trausts
og þess vegna efldist hann jafnt og
þétt. Almenningur og smærri fyr
irtæki á Norðfirði gátu nánast haft
öll sín viðskipti við sjóðinn þegar
hann hafði fest rætur en stærri fyr
irtæki þurftu hins vegar áfram að
nýta þjónustu banka og þá einkum
útibús Landsbankans á Eskifirði.
Fljótlega hóf sparisjóðurinn að
gegna eins konar umboðshlutverki
fyrir útibúið á Eskifirði og var
þá til dæmis algengt að víxlar frá
Landsbankanum væru fengnir fyrir
milligöngu sparisjóðsins og þá var
unnt að greiða þá og framlengja í
sjóðnum. Ef norðfirskir atvinnurek
endur þurftu hins vegar á meiriháttar
peningafyrirgreiðslu að halda eins
og þegar ráðist var í bátakaup þá var
nauðsynlegt að ganga á fund útibús
stjóra bankans á Eskifirði.
Sparisjóður Norðfjarðar byrjaði
snemma að auglýsa þjónustu sína og
hvetja fólk til að ávaxta sparifé sitt í
sjóðnum. Frá fyrsta degi veitti sjóð
urinn viðskiptavinum sínum víxillán
og á árinu 1923 hóf hann að bjóða
upp á hlaupareikningsviðskipti.
Eins og fyrr greinir var
afgreiðsla sjóðsins í upphafi
opin í eina klukkustund á viku, á
miðvikudögum á milli kl. 14 og 15.
Þegar á árinu 1921 var ákveðið að
breyta opnunartímanum og lengja
hann. Þá var afgreiðslan opin í tvo
tíma á laugardögum og var það
álitið henta viðskiptavinum betur.
Opnunartímanum var ekki breytt á ný
fyrr en á árinu 1927 en þá var farið að
hafa afgreiðsluna opna tvisvar í viku;
á miðvikudögum og laugardögum á
milli kl. 16 og 18.
Mikilvægi sparisjóðsins í
byggðarlaginu
Tilkoma sparisjóðsins skipti miklu
máli fyrir norðfirskt samfélag, bæði
fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Hægt
og bítandi jókst fjölbreytni þeirra
viðskipta sem sjóðurinn bauð upp
á og kunnu viðskiptavinirnir vel að
meta það. Sjóðurinn efldist ár frá
ári og var það í góðu samræmi við
vaxandi athafnalíf í byggðarlaginu
þar sem útgerð og fiskvinnsla gekk
vel.
Þegar sparisjóðurinn hafði starf
að í um það bil áratug skall heims
kreppan mikla á með öllum þeim erf
iðleikum sem henni fylgdu. Kreppan
leiddi til þess að það hægði á vexti
sjóðsins og einkenndust reyndar sum
kreppuáranna af verulegum sam
drætti. Síðari heimsstyrjöldin batt
enda á kreppuástandið og við tók
efnahagslegt góðæri sem sparisjóð
urinn naut góðs af. Innlán í sjóðnum
jukust og um leið jókst geta hans
til útlána. Sparisjóðurinn átti mik
inn þátt í uppbyggingu atvinnulífs í
byggðarlaginu og naut um leið góðs
af bættum efnahag fyrirtækja og íbúa.
Tilkoma bankaútibús –
endurskilgreining á starfssvæði
Lengi háði bæjarstjórn Neskaup
staðar barátta fyrir því að bankaútibú
yrði opnað í Neskaup stað, en tilkoma
slíks útibús var álitin mikilvæg
fyrir atvinnulífið í byggðarlaginu.
Umræðan um mikilvægi bankaútibús
endurtók sig með nokkru millibili og
að því kom árið 1970 að viðræður
við Landsbanka Íslands hófust fyrir
alvöru. Bankinn gerði í fyrstu yfirtöku
á Sparisjóði Norðfjarðar að skilyrði
fyrir því að útibú yrði sett á laggirnar.
Að því kom árið 1974 að Landsbanki
Íslands opnaði útibú í bænum en þá
hafði hann horfið frá skilyrðinu um
yfirtöku á sparisjóðnum.
Að sjálfsögðu hafði tilkoma
útibús Landsbankans veruleg áhrif
á starfsemi sparisjóðsins en engu að
síður hélt sjóðurinn áfram öflugu
starfi. Forsvarsmönnum sjóðsins
var strax fullljóst að hvergi mætti
slaka á þjónustunni því útibúið væri
sterkur og býsna erfiður keppinautur.
Til að standa vörð um hagsmuni
sparisjóðanna í landinu hafði
Samband íslenskra sparisjóða verið
stofnað árið 1967 og átti sambandið
eftir að styðja vel við bakið á
sjóðunum í því samkeppnisumhverfi
sem þeir bjuggu við.
Undir lok 20. aldarinnar hóf
Sparisjóður Norðfjarðar að endur
skilgreina starfssvæði sitt. Farið
var að horfa á það
sem markmið að
hafa viðskipti um
allt Austurland.
Bein afleiðing af
þessu var opnun
afgreiðslu á
Reyðarfirði árið
1998 og var hún
starfrækt til ársins
2012. Einnig stóð
til að afgreiðsla
yrði opnuð á Egils
stöðum en af því
varð ekki.
Góðæri, hrun og
endurreisn
Rekstur Sparisjóðs
Norðfjarðar gekk
vel á síðasta áratug
síðustu aldar. Á ár
unum 19902000
var hagnaður af
starfseminni öll árin og jókst eigið
fé sjóðsins jafnt og þétt. Þegar kom
fram á nýja öld einkenndist íslenskt
efnahagslíf af nánast ævintýralegum
uppgangi og hafði það skýr áhrif á
starfsemi sparisjóðsins; innlán jukust
mikið og einnig útlán.
Á þessum árum jókst hagnaður
sparisjóðsins ár frá ári og fjárfesti
hann meðal annars í hlutabréfum
sem gáfu góðan arð þó ekki
væru hlutabréfakaup sjóðsins
jafn mikil og hjá mörgum öðrum
fjármálastofnunum á þessum
tíma. Á árunum 2006 og 2007
hófu utanaðkomandi fjárfestar
að bjóða háar upphæðir í stofnfé
sjóðsins en stofnfjáreigendurnir eða
ábyrgðarmennirnir létu ekki freistast
og enginn þeirra seldi.
Mörgum þótti staða efnahags
málanna á Íslandi á þessum tíma vera
of góð til að vera sönn en að því kom
að áfallið dundi yfir. Það gerðist í
októbermánuði 2008, en þá hrundi
hið íslenska efnahagskerfi með
grafalvarlegum afleiðingum fyrir
fjármálastofnanir og samfélagið allt.
Sparisjóður Norðfjarðar tapaði
miklu í hruninu en fljótlega var
gripið til aðgerða til að forða sjóðnum
frá þroti. Þess var farið á leit við
ríkisvaldið að það kæmi að því að
laga eiginfjárstöðu sjóðsins en þá var
það skilyrði sett að sjóðurinn myndi
sjálfur útvega fjármuni til að bæta
stöðuna áður en til kasta ríkisins
kæmi. Leitað var til sveitarfélagsins
Fjarðabyggðar og fyrirtækja í
Neskaupstað og ollu viðbrögðin ekki
vonbrigðum. Þessari fjárhagslegu
endurskipulagningu Sparisjóðs
Norðfjarðar lauk árið 2010.
Á árinu 2011 fjallaði stjórn
sjóðsins mikið um stöðu hans og
komst hún að þeirri niðurstöðu að
skynsamlegast væri að selja hann.
Sparisjóðum hafði fækkað mikið og
Samband íslenskra sparisjóða veikst
að sama skapi þannig að hagsmunum
stofnfjáreigenda, starfsfólks og
viðskiptavina var álitið best borgið
með því að selja sjóðinn öflugum
banka. Loks var ákveðið að auglýsa
stofnfé sjóðsins til sölu í opnu
söluferli en eftir könnunarviðræður
við þrjá banka var fallið frá sölunni
og hélt því sjóðurinn áfram starfsemi
sinni.
Tillaga um að breyta sjóðnum í
hlutafélag var lögð fram á aðalfundi
sjóðsins árið 2015 og var tillagan
samþykkt. Með samþykkt tillögunnar
var nafni sjóðsins breytt í Sparisjóður
Austurlands og þannig lögð áhersla
á viljann til að líta á allt Austurland
sem starfssvæði sjóðsins.
Sterkur sjóður og
samfélagslega mikilvægur
Eftir hrunið var mikil vinna lögð
í rekstrarlega og fjárhagslega
endurskipulagningu sparisjóðsins og
hefur rekstur hans gengið ágætlega á
síðari árum. Þannig hefur hagnaður
fimm ára af síðustu átta verið yfir 50
milljónir króna en í þrjú ár á bilinu
1026 milljónir. Eigið fé sjóðsins
hefur aukist jafnt og þétt og í árslok
2019 var það 922 milljónir króna og
eiginfjárhlutfallið 24,6%.
Sparisjóðirnir almennt hafa ávallt
verið ötulir styrktaraðilar þeirra
samfélaga sem þeir hafa starfað í
og það á einnig við um Sparisjóð
Austurlands. Í samþykktum sjóðsins
er tekið fram að sjóðurinn skuli styrkja
verkefni á sviði velferðar, menningar
og íþrótta á starfssvæði sínu ásamt
því að styðja við atvinnulífið. Þá
ber að nefna að frá árinu 2012 hafa
verið í gildi lög um að sparisjóðir
einir fjármálafyrirtækja skuli
greiða 5% af hagnaði fyrir skatta í
samfélagsstyrki og það hafa þeir gert
með stolti. Á síðastliðnum átta árum
hefur Sparisjóður Austurlands greitt
um 25 milljónir króna í lögbundna
styrki en þar fyrir utan hefur hann lagt
mörgum góðum málum á starfssvæði
sínu lið.
Sparisjóður Norðfjarðar hóf starfsemi í símstöðinni í Adamsborg í Nesþorpi fyrir 100 árum, eða 1. september 1920.
Mynd / Skjala- og myndasafn Norðfjarðar
Afgreiðsla Sparisjóðs Norðfjarðar fyrir réttum 30 árum. Mynd / Ari Benediktsson