Bændablaðið - 10.09.2020, Side 37

Bændablaðið - 10.09.2020, Side 37
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 37 Gabion grjóthleðslu körfur Nokkrar stærðir til á lager GABION KÖRFUR TÖLVUPÓSTUR sala@bkhonnun . is SÍMI 865-9277 VEFFANG www .bkhonnun . is - Hentar vel íslenskum aðstæðum - - Hagstætt verð - Sími 480 5600 Gunnbjarnarholti, 804 Selfossi Fylgstu með okkur á FACEBOOK Sími 480 5610 Kaupvangi 10, 700 Egilsstöðum Landstólpi - Traust í 20 ár Loftræstimænir fyrir gripahús Finnsk gæði sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður VETRARBÚNAÐUR HILLTIP Tangarhöfða 1, 110 Reykjavík 551 5464 / wendel.is UTAN ÚR HEIMI Sameinuðu þjóðirnar með yfirlýsingu vegna COVID-19 og matvælaöryggis: Ákall um matvælakerfi til þjóða heimsins Aðalframkvæmdastjóri Samein­ uðu þjóðanna, António Guterres, hefur birt yfirlýsingu vegna kór­ ónukrísunnar og matvælaörygg­ is í heiminum. Hann beinir því til þjóða heims að nú þurfi að bregðast hratt og vel við gagn­ vart matvæla framleiðslu um gjörvallan heim til að styðja við græna um breytingu og sjálfbærni. António Guterres er níundi aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og hóf störf í upphafi ársins 2017. Nú hefur hann gefið út ákall til þjóða heims um að hlúa verði enn betur en áður að matvælakerfum, sérstaklega í kjölfar COVID-19. 820 milljónir manna lifa við hungurmörk „Það er nægilegur matur í heiminum til að fæða þá tæpu átta milljarða manns sem búa á jörðinni. Í dag eru samt sem áður 820 milljónir manna sem lifa við hungurmörk og um 144 milljónir barna undir fimm ára aldri sem eru vannærð, meira en einn fimmti allra barna í heiminum. Matvælakerfi okkar eru að bregðast og með kórónuveirunni fer ástandið versnandi. Ef ekki verður gripið strax til aðgerða er ljóst að yfirvofandi er neyðarástand sem gæti haft langtímaáhrif á hundruð milljóna barna og fullorðinna. Á þessu ári er áætlað að um 49 milljónir manna bætist í hóp mjög fátækra vegna krísunnar. Fjöldi fólks sem þarf nægilega fæðu og næringu mun aukast verulega. Við hvert prósentustig sem lækkar í vergri landsframleiðslu þjóða má áætla að bætist við 0,7 milljónir vannærða barna. Jafnvel í löndum með nægilegan mat sjáum við hættu á truflun í fæðubirgðakeðjunni. Við verðum að bregðast við núna til að forðast verstu áhrif af viðleitni okkar til að ná stjórn á alheimsfaraldrinum.“ Matvæli, næring og lífsviðurværi Í ákalli sínu gaf António út stefnu um áhrif COVID-19 á matvælaöryggi og næringu sem hefur þrjá meginþætti: Í fyrsta lagi verðum við að virkja þjóðir heims til að bjarga mannslífum og lífsviðurværi fólks, einblína á þau svæði þar sem hættan er mest. Það þýðir að tilnefna matvæla- og næringarkerfi sem nauðsynleg á sama tíma og hrint er í framkvæmd viðunandi vörnum fyrir starfsfólk í matvælageiranum. Einnig að varðveita mannúðaraðstoð á sviði matvæla, lífsviðurværis og næringar til varnarlausra hópa. Það þarf að staðsetja matvæli í löndum þar sem ríkir matvælakreppa til að styrkja og auka félagsleg verndunarkerfi. Lönd heimsins þurfa að styrkja stuðning til matvælavinnslu, flutnings og svæðisbundinna matarmarkaða og þau verða að halda viðskiptaglufum opnum til að tryggja stöðuga virkni matvælakerfa. Enn fremur þurfa þau að tryggja að hjálpar- og hvatapakkar nái til þeirra sem eru mest varnarlausir sem nær til þarfa lausafjárstöðu smáframleiðenda og fyrirtækja í dreifbýli. Við höfum tækifæri á að byggja sjálfbærari heim. Í öðru lagi verðum við að styrkja verndun félagslegra kerfa næringar. Lönd heimsins verða að vernda aðgang að öruggum og næringarríkum matvælum, sérstak- lega fyrir ung börn, ófrískar konur og konur með börn á brjósti, elli- lífeyrisþega og aðra áhættuhópa. Þau þurfa einnig að aðlaga og útvíkka verndun félagslegra kerfa sem gagnast næringarfræðilegum áhættuhópum. Þetta þýðir jafnframt stuðning við börn sem hafa ekki lengur aðgang að skólamáltíðum. Í þriðja lagi verðum við að fjárfesta í framtíðinni. Við höfum möguleika á að byggja innihalds- ríkari og sjálfbærari heim. Við verðum að byggja matvælakerfi sem taka betur á þörfum mat- vælaframleiðenda og starfsfólki í matvælaiðnaði. Við verðum að útvega greiðari aðgang að heilnæm- um og næringarríkum matvælum þannig að við getum útrýmt hungri. Einnig þurfum við að endurheimta jafnvægi milli matvælakerfa og náttúrulegs umhverfis með því að umbreyta þeim til að starfa betur saman með náttúrunni og fyrir loftslagið. Við getum ekki horft fram hjá því að matvælakerfi leggja til allt að 29 prósent af allri losun gróðurhúsalofttegunda sem inniheldur 44 prósent af metani og hafa neikvæð áhrif á líffræði- legan fjölbreytileika. Ef við gerum þessa hluti og fleiri sem koma fram í þessu ákalli getum við komið í veg fyrir verstu afleiðingar mat- vælaöryggis og næringar vegna COVID-19 og við getum gert það á þann hátt að það styðji við grænu umbreytinguna sem við þurfum að ganga í gegnum. /ehg António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Samein uðu þjóðanna. Matarskömmtun. Mynd / UN

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.