Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202038
Víkurvagnar ehf. – Hyrjarhöfði 8. – 110 Reykjavík
Sími 577-1090 – www.vikurvagnar.is – sala@vikurvagnar.is
STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
MIKIÐ ÚRVAL KERRUVARAHLUTA
VÍKURVAGNAR EHF.
RAFMAGNSBÚNAÐUR
BREMSUR
BEISLI
DEKK
LJÓS
LED LJÓS
LESENDABÁS
Afnema einokun Reykvíkinga á handritunum
Jakob Birgisson og Snorri
Másson eru um þessar mund-
ir að leggja upp í ferð um allt
landið og eru væntanlegir á
Vestfirði nú undir lok septem-
ber, þar sem þeir munu fræða
grunnskólanema um íslensk
miðaldahandrit og ævintýri
Árna Magnússonar.
Sumarlangt hafa þeir garfað í
fornum skinnhandritum í dýpstu
hvelfingum Árnastofnunar í
Vesturbæ Reykjavíkur og eftir þær
rannsóknir sínar liggur þeim mikið
á hjarta, að eigin sögn. „Það er
náttúrlega viðvarandi skandall að
önnur eins krúnudjásn liggi þarna
í felum frá öllum almenningi, þó
að mér skiljist reyndar að það
séu mjög góðar og vísindalegar
ástæður fyrir að svo sé. Eftir að
hafa legið yfir þessu í sumar er ég
sannfærður um nauðsyn þess að
færa börnunum handritin, enda er
þetta náttúrlega það merkilegasta
sem Íslendingar eiga,“ segir
Snorri.
Fræða æsku landsins
um fornan bókmenntaarf
Markmið ungu fræðaranna er að
fræða æsku landsins um þennan
forna bókmenntaarf. Jakob segir
ærið tilefni til.
„Það verður auðvitað að forða
þessu frá gleymsku. Þetta má ekki
bara liggja inni á söfnum í klóm
fræðimanna heldur þarf að bera
út fagnaðarerindið til fólksins. Til
þess að sýna hvað þetta stendur
okkur nærri erum við líka með
allar græjur með okkur og kenn
um börnunum hvernig á að skrifa
miðaldahandrit eftir fornri aðferð.
Þar fá þau innsýn í horfinn heim
og máta sig við það svið lista þar
sem Íslendingar hafa afrekað hvað
mest,“ segir Jakob.
„Og þau læra líka hvað það
er yndislega flókið að skrifa á
kálfskinn,“ bætir Snorri við.
Drifnir áfram af samviskubiti
Vestfirðir eru fyrstir á dagskrá en
farið verður í alla landsfjórðunga í
50–60 skóla, allt í nafni verkefnis
Árnastofnunar, sem heitir
Handritin til barnanna, og er ýtt
úr vör í tilefni þess að hálf öld er
liðin frá því að fyrstu handritin
komu heim 21. apríl 1971.
„Það er auðvitað í hæsta
máta viðeigandi að við byrjum
á Vestfjörðum. Árni Magnússon
handritasafnari, sem er að okkar
mati merkasti maður í sögu
landsins, ferðaðist hér um sumarið
1710 til að safna gögnum um
jarðeignir en nýtti tækifærið til
að safna handritum. Hann sagðist
reyndar ekki geta haft vetrarsetu
á svæðinu án þess að heilsa hans
biði skaða og ég skal ekki segja
um hvað ég þyldi í þeim efnum.
Það reynir sem betur fer ekki á það
í vetur enda er dagskráin stíf fram
að jólum í skólaheimsóknum víða
um land,“ segir Snorri.
„Eins og Snorri segir felst
mikið réttlæti í að byrja á
Vestfjörðum. Við erum sjálfir
með annan fótinn hérna á sumrin.
Forfeður mínir byggðu Engidal
og Arnardal, en samt er ég ekki
maður til að setjast þar að, frekar
en Árni. Því er svo sem eins farið
um fjölda Reykvíkinga sem liggja
hér í makindum á sumrin, jafnvel
fjötraðir í garði Gunnlaðar eins og
segir í Konungsbók, en eru síðan
horfnir við fyrsta snjó á heiðum,“
segir Jakob.
Snorri tekur undir og kveðst
þjakaður af sama samviskubiti
„Það minnsta sem við getum gert
er að koma hérna færandi hendi
með handritin, þó að við séum
því miður ekki með upprunalegu
eintökin með okkur af því að við
megum það ekki. Reykvíkingar
hafa í raun og veru einokað þetta
gersamlega í hálfa öld og aðrir
landshlutar setið eftir með sárt
ennið. Með okkar ferðum og
kynningum fyrir börnin erum við
loksins að afnema einokunina og
frelsa handritin. Eða sú er alla
vega hugsjónin,“ segir Snorri.
Hann segir að Árnastofnun taki
miðlunarhlutverk sitt alvarlega
og þegar það sé í þokkabót gert
skemmtilega séu börnin þau sem
njóti mest góðs af. /HKr.
Jakob Birgisson og Snorri Másson eru um þessar mundir að leggja upp í
ferð um allt landið til að fræða grunnskólanema um íslensk miðaldahandrit.
Eru þeir félagar væntanlegir á Vestfirði nú undir lok september.
LÍF&STARF
Skrúðgarðyrkja
er iðnnám
Nú þegar umræðan um nýjan
garðyrkjuskóla er komin í gang
er ekki úr vegi að huga að einni
iðnnámsgrein sem er kennd í
Garðyrkjuskóla ríkisins og er að
verða utangátta í námskerfinu
en þar er um skrúðgarðyrkjunám
að ræða.
Skrúðgarðyrkja er lögbundin
iðngrein og verða allir er nema
skrúðgarðyrkju að vera á samn
ingi hjá skrúðgarðyrkjumeistara
og gangast undir sveinspróf og
síðan meistarapróf til að öðlast
nafnbótina meistari. Samanber
húsasmíðameistari, rafvirkja
meistari, sem og öðrum iðgrein
um. Hvernig stendur á því að
þessi iðngrein er enn þá kennd í
landbúnaðar skóla? Er ekki verið
að brjóta á rétti þessarar iðgreinar
þar sem þessi iðngrein er sú eina
af öllum iðngreinum sem ekki er
kennd við Tækniskólann? Hún á
enga samleið með landbúnaði, það
er svipað og kúasmalatækni væri
skylt að stunda nám í sjómanna
skóla eða skósmiður væri við nám
við landbúnaðarskóla vegna þess
að hann vinnur með leður.
Þó svo við skrúðgarðyrkjumenn
gróðursetjum nokkrar plöntur
réttlætir það ekki að við skulum
vera skikkaðir til að stunda nám
við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Þannig atvikaðist það að
skrúðgarðyrkjan lokaðist inni í
Garðyrkjuskóla ríkisins og kemst
ekki þaðan út, það er hrópað á
hjálp. Hvaða samleið hefur þessi
iðngrein með ylrækt, skógarfræði,
eða meðblómaskreytingar að gera?
Akkúrat enga.
Skrúðgarðyrkja er iðnnám sem
á að kenna við Tækniskólann þar
sem við eigum samleið með öðrum
iðngreinum í byggingariðnaði,
samanber húsasmiðum, pípurum
og rafvirkjum.
Þessar greinar haldast í hendur
þegar kemur að því að gera garða
umhverfis lóðir og opin svæði
og því nauðsynlegt að fólk innan
þessara iðngreina stundi nám í
sama skóla og hafi kynni hvert
af öðru með framtíðarsamvinnu í
huga.
Það er á engan hátt hægt að
réttlæta það að kenna skrúðgarðyrkju
við Landbúnaðarháskólann þar
sem hann er sveitaskóli og þar af
leiðandi er hann heimavistarskóli,
það hefur í för með sér að nemendur
í skrúðgarðyrkju þurfa að greiða
húsaleigu og vera fjarverandi frá
fjölskyldu sem skapar vandamál
fyrir námsmenn.
Um 80% af þeim nemendum
sem stunda nám í skrúðgarðyrkju
koma frá höfuðborarsvæðinu sem
segir að nám við Tækniskólann sé
mun hagstæðara fyrir nemendur þar
sem þeir búa á svæðinu Þess utan
er gott aðgengi að öllum fagaðilum
sem koma að garðahönnun og
framkvæmdaraðilum, stutt
að fara í skoðunarferðir því
Reykjavíkursvæðið er mekka
garðmenningar á Íslandi. Hér má
finna allt sem vel er gert og miður
hefur farið, endalaus lærdómur
fyrir nemendur í skrúðgarðyrkju,
en því er ekki að heilsa uppi í sveit,
þar er ekkert af þessu tagi.
Nú er lag í þessari tilvistarkreppu
í skólamálum skrúðgarðyrkjunnar,
því skora ég á Lilju Alfreðsdóttur
menntamálaráðherra að bjarga
skrúðgarðyrkjunni úr þessari
kreppu og koma iðngreininni úr
viðjum Garðyrkjuskólans og koma
skrúðgarðyrkjunni í Tækniskólann
þar sem námið á heima meðal
jafningja sem iðngrein. Henni til
vegs og virðingar.
Kristján Vídalín
garðameistari
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
50,0%
Bændablaðið Fréttablaðið Morgunblaðið Stundin DV Viðskiptablaðið Mannlíf
20
15
4
5,
0%
20
16
4
3,
8%
20
17
4
3,
1%
20
18
4
5,
6%
20
19
4
1,
9%
20
14
3
3,
9%
20
16
28
,6
%
20
17
27
,3
%
20
18
2
4,
6%
20
19
2
1,
9%
20
14
2
7,
8%
20
15
2
6,
0%
20
16
2
5,
3%
20
17
2
2,
0%
20
18
2
2,
1%
20
19
1
9,
0%
20
19
5
,8
%
20
15
7
,0
%
20
16
1
0,
8%
20
17
1
1,
2%
20
18
1
0,
8%
20
19
9
,1
%
20
14
5
,7
%
20
15
1
0,
0%
20
16
7
,3
%
20
17
1
1,
2%
20
18
5
,1
%
20
19
5
,2
%
20
19
2
,2
%
Meðallestur prentmiðla á landsbyggðinni
þróun lestrar síðastliðin sex ár, 2014-2019, samkvæmt könnunum Gallup
20
14
4
3,
3%
20
15
3
1,
0%
20
18
9
,1
%
20
14
1
1,
3%