Bændablaðið - 10.09.2020, Page 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202040
LANDSSAMTÖK SKÓGAREIGENDA
Það er ágætt að árétta það strax í
upphafi að allar aðgerðir sem draga
úr áhrifum loftslagsbreytinga eru
af hinu góða. Með breyttri neyslu
má draga úr ýmsum óþarfa eins
og matarsóun og brennslu á
jarðefnaeldsneyti. Landeigendur
verða einnig að huga að sinni
landnotkun með það í huga að
draga úr loftslagsáhrifum hennar.
Þá er yfirleitt talað um skógrækt,
landgræðslu og endurheimt
votlendis.
Hér verður stiklað á stóru um
aðstæður hverrar aðgerðar fyrir
sig ásamt nokkrum atriðum sem
vert er að hafa í huga.
Fuglalíf og fleira
Allar landgerðirnar eru búsvæði fyrir
fugla. Smáfuglar eru ein kennandi
fyrir skóga. Í móum og graslendi
(t.d. framræstu landi) eru allmargar
tegundir áberandi og jafn vel gróður
lausir melar og sandar skarta nokkru
fuglalífi en fábreyttu. Allmargir
fuglar sækja líka í votlendi, vötn
og strandsvæði. Sumar tegundir
votlendisfugla gera sér óðöl á
tjörnum og vötnum þar sem einungis
er pláss fyrir eitt fuglapar á stóru
svæði. Munar þá um hvern poll.
Ákvarðanir um landnotkun hafa
áhrif á fugla, spendýr, plöntur, sveppi
og reyndar allt í náttúrunni. Þær hafa
einnig áhrif á kolefnisjöfnuð, frjó
semi, vatnsbúskap, jarðvegsrof og
margt fleira. Allt skiptir þetta máli,
en náttúruvernd, loftslagsvernd,
vatnsvernd, jarðvegsvernd, fornleifa
vernd o.fl. hafa síður en svo í för
með sér að viðhalda þurfi óbreyttu
ástandi eða að það eina rétta sé að
endurheimta eitthvað fyrra ástand.
Skógrækt
Ef ætlunin er að rækta skóg skal
taka inn ótal atriði. Það þarf að friða
svæði fyrir lausagöngufé. Það þarf að
skipuleggja og gróðursetja í svæðið.
Það þarf að hirða um svæðið svo
það fari ekki í órækt, svo fátt eitt
sé nefnt. Skógurinn nýtist aftur á
móti til timburframleiðslu og lífríki
í jarðvegi batnar þegar árin líða svo
auðveldara er að hefja skógrækt að
nýju eftir að trén hafa verið felld til
nytja. Um fáum árum frá gróður
setningu er hægt að nýta skóga til
beitar. Auk alls þess hagræna, um
hverfislega og félagslega ágóða sem
skógar hafa í för með sér er ljóst að
skógrækt getur verið öflugasta leiðin
sem raunveruleg völ er á til að binda
CO2 úr andrúmsloftinu sé rétt staðið
að málum.
Landgræðsla
Landgræðsla og skógrækt hafa mis
jafnar áherslur en eiga það sameigin
legt að efla gróður. Á rofnu landi sem
friðað er fyrir beit má nota ýmsar
trjátegundir, ásamt öðrum gróðri, til
uppgræðslu lands. Landgræðsla fæst
þó að mestu við meðferð beitilands
þar sem tré nýtast ekki og þar sem
loftslagsávinningur uppgræðsluað
gerða með áburðargjöf eða grassán
ingu er misjafn, t.d. eftir því hversu
beitarálagið er mikið. Þar eru þó tals
verðir möguleikar á að bæta kolefn
isforða jarðvegs á stórum svæðum ef
rétt er að málum staðið.
Endurheimt votlendis
Í gegnum tíðina hefur verið litið
á vot lendi sem lélega landnýtingu
enda var land ræst fram umvörpum
um drjúga hríð á seinni hluta síð ustu
aldar. Það er lítt aðgengilegt mann
kindinni sem öðrum kind um og þar
vex sér hæfður gróður sem nýtist
búpeningi
t a k m a r k a ð
til beitar, helst
þó hrossum. Þegar
votlendi er ræst fram geta
aðstæður breyst mikið á örfáum
árum. Jarðvegur sígur hægt og bít
andi með auknu niðurbroti lífræns
efnis. Grasspretta eykst. Landið
verður greiðfærara. Áður voru hins
vegar stór svæði ræst fram í engum
sérstökum tilgangi. Með endurheimt
votlendis er ætlunin að ná fram fyrra
ástandi og þar með draga úr niður
broti og meðfylgjandi losun CO2.
Eins og með skógrækt og land
græðslu er þar talsverður breytileiki
í árangri eftir aðstæðum en loftslags
ávinningur getur þó verið umtals
verður sé rétt staðið að málum.
Loftslagið
Allt eru þetta frábærar leiðir í barátt
unni við hlýnun jarðar. Endurheimt
votlendis krefst lítils undirbún
ings og árangur næst svo að segja
strax að lokinni skurðauppfyllingu.
Kostnaður fellst einkum í vinnu
vélum og tiltölulega lítilli vinnu
fólks og má ná drjúgum árangri á
fáum dögum. Ósamstaða virðist
vera um árangur samdráttar í kolefn
islosun enda eru aðstæður misjafnar.
Flestir virðast þó sammála um að
endurheimt votlendis sé skjót leið
til aðgerða við loftslagsbreytingar.
Undirbúningur landgræðslu er
mismikill. Einfaldar aðgerðir, t.d.
áburðardreifing, með nokkurra
ára eftirfylgni eru algengar í land
græðslu. Oft er um mikið landflæmi
að ræða og mikið undir. Þegar kemur
að mati á kolefnisbindingu þá fellst
árangur einkum í að auka kolefn
isforða jarðvegs. Uppbygging þess
kolefnisforða fylgir framvindu gróð
urs, sem er þó mjög mishröð eftir
aðstæðum.
Skógrækt er dýr á hvern hektara
lands samanborið við að dreifa áburði
eða fylla upp í skurði. Árangur í kolefn
isbindingu getur þó verið mun meiri
eftir tegundum og aðstæðum. Í ríku
landi með hraðsprottnar tegundir má
ná miklum árangri á skömmum tíma,
skógræktarlega séð, en í rýru landi
er bindingin minni. Skógrækt bindur
kolefni svo lengi sem ræktun stendur
yfir og ekki síður í jarðvegi en í trján
um sjálfum. Viðarvöxtur og kolefn
isbinding hangir saman og þar með
er auðvelt að sannreyna nákvæmni
kolefnisbindingar í skógum.
Munur á aðgerðum
Skógrækt og endurheimt votlendis
fer alls ekki vel saman á sama
blettinum. Endurheimt votlendis
hækkar grunnvatnsstöðu og í landi
þar sem grunnvatnsstaða er há er
ekki hægt að rækta tré með góðu
móti. Þegar ráðist er í viðamikla
skógrækt innan um votlendi og í
kringum tjarnir getur það haft þurrk
andi áhrif jarðveginn í skóginum en
reynslan hér á landi er sú að skógur
inn þurrkar ekki mýrarnar.
Endurheimt votlendis er vafalítið
gagnleg aðferð til að stemma sigu
við uppgufun gróðurhúsaloftegunda
þegar land er ekki í notkun og ætl
unin er að hafa það þannig. Það er
alltaf gott og göfugt af landeigendum
að nýta land sitt til að stemma stigu
við loftslagsbrjálæðinu, sama með
hvaða hætti það er gert og enn betra
er að landeigendur geri sér grein fyrir
öllum möguleikum sem eru í stöð
unni. Best er líklega að gera eitthvað
fremur en ekki neitt.
Hlynur Gauti
Sigurðsson,
framkvæmdastjóri
Landssamtaka
skógareigenda
Lerkiskógur umlykur náttúrulega tjörn. Myndir / HG
Glókollur á grænni grein á Íslandi.
Allt er betra en ekki neitt