Bændablaðið - 10.09.2020, Page 43
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 43
í einhverjum mæli til berjafram-
leiðslu.
Áfeng bláberjasaft var hluti af mat-
arskammti hermanna Norðurríkjanna
í bandarísku borgarastyrjöldinni,
1861 til 1865. Á áttunda áratug 19.
aldar var farið að sjóða niður bláber
til að auka geymslu- og flutningsþol
þeirra.
Árið 1908 hóf bandaríski grasa-
fræðingurinn Frederick Vernon
Coville, uppi 1867 til 1937, að rann-
saka og gera tilraunir með ræktun
bláberja í samvinnu við Elizabeth
White, uppi 1871 til 1954. Coville
var um tíma yfirgrasafræðingur
Landbúnaðarstofnunar Banda-
ríkjanna og stjórnandi þjóðar-
trjásafns ríkjasambandsins. Auk
þess að vera höfundur fjölda bóka um
grasafræði og grasnytja indíána var
Coville stjórnarformaður National
Geographic Society í mörg ár. White
var sérfræðingur í ræktun nytjaplanta
og dóttir landeiganda sem ræktaði
trönuber í stórum stíl.
Coville og White voru fyrst til
að benda á nauðsyn súrs jarðvegs
fyrir bláber og að plantan væri ekki
sjálffrjóvgandi og saman tókst þeim
með bættum ræktunaraðferðum að
tvöfalda stærð berja í ræktun.
Sagan segir að liður í kynbóta-
starfi White hafi verið að biðja
Indíána að færa sér öll ber sem þeim
fannst óvenjulega stór og hún hafi
einungis tekið fræ til ræktunar úr
berjum sem ekki komust í gegnum
giftingarhring hennar. Ef berin voru
óvenju stór gerði hún sér ferð til að
sækja græðlinga af runnunum sem
þau uxu á.
Snemma á fjórða áratug síðustu
aldar fylgi Stanley Johnson, uppi
1898 til 1969, prófessor í garðyrkju
við Michigan Agricultural College í
kjölfar Coville og White og hóf til-
raunir með ræktun á bláberjum. Stór
svæði í kringum Michigan-vatn þóttu
ónothæf til ræktunar vegna þess að
jarðvegurinn var ófrjósamur og súr.
Jarðvegurinn hentaði því bláberja-
runnum ágætlega og var Michigan-
ríki lengi stærsti ræktandi bláberja í
Banda ríkjum Norður-Ameríku, eða
þar til Washington-ríki tók fram úr
því. Þrátt fyrir þetta er það borgin
Hammonton í New Jersey sem ber
heitið bláberjahöfuðborg heimsins
og þar í borg er árleg bláberjahátíð.
Samkvæmt hefð er 28. apríl banda-
ríski bláberjakökudagurinn og 11.
júlí bláberjamúffudagurinn.
Afbrigði og yrki í ræktun skipta
hundruðum. Þrátt fyrir að einhver
munur sé á stærð og bragðgæðum
ólíkra yrkja eru þau aðallega flokkuð
eftir því hversu snemmsprottin
þau eru. Dæmi um snemmsprottin
yrki eru 'Duke', 'Patriot', 'Reka' og
'Spartan'. Miðlungsfljótsprottin yrki
eru til dæmis 'Bluecrop', 'Blu-ray',
'KaBluey' og 'Northland'. Yrkin
'Aurora', 'Darrow' og 'Elliott' eru
aftur á móti seinsprottin.
Í suðurríkjum Bandaríkjanna
hefur blendingur af V. corymbosum
og V. darrowii gefið góða raun í
ræktun.
Ræktun á amerískum bláberjum
hófst í Evrópu um 1930.
Stjörnuber Andans mikla
Við þroska berjanna mynda bikar-
blöð blómanna fimm arma stjörnu á
efri enda þeirra. Samkvæmt þjóðtrú
Indíána Norður-Ameríku er stjarnan
tákn þess að hinn Mikli andi hafi fært
þeim ber til að sefa hungur barna
á harðindatímum. Aðrir segja að
stjarnan líkist auga kanínu og þaðan
er heiti á vinsælu yrki í ræktun,
'Rabbiteye', komið.
Indíánar nýttu plöntuna til lækn-
inga. Te sem sagt var gott fyrir blóðið
var soðið úr blöðum og rótum og blá-
berjasafi drukkinn til að stilla hósta.
Safinn var og er enn notaður til að
lita klæði og körfur.
Berin voru þurrkuð til geymslu
og notuð til að bragðbæta mat,
súpur og kássur. Muldum berj-
um var einnig nuddað í kjöt sem
krydd áður en það var þurrkað til
geymslu.
Nafnaspeki
Ættkvíslarheitið Vaccinium er
mögulega dregið af gríska orðinu
Hyacintos sem er heitið á spartneskri
hetju og elskhuga guðsins Apollo.
Tegundarheitið corymbosum vísar
aftur á móti til þess að berin vaxi
mörg saman í klasa.
Á ameríku-ensku á plantan
sér nokkur samheiti, eins og blue
huckleberry, tall huckleberry,
swamp huckleberry, high blueberry
og swamp blueberry. Frakkar kalla
hana og berin myrtille og bleuet,
Spánverjar arandano americano en
Finnar pensasmustikka. Í Svíþjóð
er talað um amerikanskt blåbär en
í Danmörku amerikansk blåbær. Á
Íslandi kallast plantan amerísk blá-
berjaplanta eða einfaldlega bláber.
Nytjar
Amerísk bláber innihalda 14% kol-
vetni, 0,7% prótein, 0,3% fitu og 84%
vatn. Í þeim er lítið af vítamínum og
í 100 grömmum af berjunum eru um
57 kaloríur. Berin eru sæt á bragðið
en missúr eftir afbrigðum, yrkjum
og efna samsetningu jarðvegsins sem
þau vaxa í.
Bláberja er neytt ferskra eins og
sér eða út á skyr og morgunkorn,
úr þeim er búin til sulta og sósa
og þau eru höfð í kökur og brauð.
Auk þess sem úr þeim er bruggað
bláberjavín.
Nauðsynlegt er að skola berin
vel fyrir neyslu þar sem við ræktun
þeirra er í flestum tilfellum notaður
talsverður efnahernaður gegn óværu
sem kann að sækja að plöntunum og
aldinum þeirra.
Plantan er notuð sem puntplanta
í görðum þar sem aðstæður henta og
sem kerplanta.
Ræktun
Plantan dafnar best í rökum, en
ekki blautum, og súrum jarðvegi
með pH 4,5 til 5,5. Þolir ekki mikla
köfnunarefnisgjöf. Klippa skal
burt kal á hverju vori og gott er að
fjarlægja gamlar greinar á nokkurra
ára fresti til að örva nývöxt. Einnig
er gott að nota hey sem þekju í beð
umhverfis runnann.
Þar sem plantan er ekki
sjálffrjóvgandi þarf tvö yrki sem
frjóvgast saman til að myndi ber.
Yfirleitt fjölgað með græðlingum.
Uppskera á amerískum bláberjum
í stórræktun er að mestu vélvædd
og eru berin annaðhvort hrist eða
burstuð af runnunum í safnpoka og
laufi og smágreinar blásnar burt fyrir
pökkun.
Amerísk bláber á Íslandi
Í dálki í Mánudagsblaðinu árið
1978, sem kallast Úr einu í annað,
segir að flestar matvöruverslanir
hafi á boðstólum amerísk bláber,
afar góð og furðulega billeg. Í
framhaldinu segir svo: „Hótelin eru
sein á sér að vanda og hafa þau ekki
á boðstólum og veitir þó ekki af að
auka fjölbreytnina þar.“
Áhugasamir ræktendur hafa reynt
fyrir sér með ræktun amerískra
bláberjaplantna hér í talsvert mörg
ár og mörgum tekist það ágætlega.
Plantan er almennt skálaplanta
sem þrífst illa utandyra og gefur
sjaldan ber úti þótt þar geti verið
undantekningar á. Utandyra hentar
plantan í potti eða ker yfir hásumarið
sem setja má inn í kalt gróðurhús
yfir veturinn.
Meðal yrkja sem reynd hafa verið
eru 'Northland' sem gefur meðalstór
og sæt ber og er líklega harðgerðasta
yrkið hér, 'Earlyblue', sem myndar
aldin snemma, og 'Reka', 'Patriot'
og 'Toro' sem þroska berin á miðju
sumri.
Bláber eru sælgæti.
Grasafræðingarnir Fredrerick Vernon Coville og Elizabeth White voru fyrst til að benda á nauðsyn súrs jarðvegs
fyrir bláber og að plantan vær ekki sjálffrjóvgandi og saman tókst þeim með bættum ræktunaraðferðum að tvöfalda
stærð berja í ræktun. Myndin er tekin árið 1916.
Uppskera á amerískum bláberjum í stórræktun er að mestu vélvædd og eru
berin annaðhvort hrist eða burstuð af runnunum.
Óskum e�ir landi sem hentar vel �l ræktunar e�irfarandi skógargerða:
- Asparskóga; ríkt graslendi og annað frjósamt land, t.d. framræst land og
lúpínubreiður
- Birkiskóga; flestar landgerðir
- Greni- og furuskóga; mólendi og melar
- Lerkiskóga; mólendi og melar norðan- og austanlands
Óskað er e�ir löndum með viðunandi aðgengi �l plöntunar, að veðurfar hen�
trjárækt, að hægt sé að koma við jarðvinnslu og að ekki sé hæ�a á ágangi bú�ár.
Lönd um allt land eru áhugaverð. Stærð samhangandi ræktunarlands helst yfir
100 hektara og það þarf að liggja fyrir að það fáist samþykkt í skipulagi sem
skógræktarland og að framkvæmdarleyfi fáist.
Það er markmið Kolviðar að gróðursetning í samhangandi ræktunarland eigi sér
stað innan fimm ára.
Óskað er e�ir að áhugasamir landeigendur sendi tölvupóst á kolvidur@kolvidur.is
eða hafi samband í síma 551-8150.
Markmið Kolviðar er binding kolefnis í gróðri og jarðvegi í þeim tilgangi að draga úr styrk koltvíoxíðs
(CO2) í andrúmslofti. Sjóðurinn vinnur að þessu markmiði með því m.a. að:
a. Gefa fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum tækifæri til þess að binda kolefni er vegur á
móti losun þeirra.
b. Fjármagna aðgerðir til bindingar kolefnis með landgræðslu og skógrækt.
c. Stuðla að verndun jarðvegs og gróðurs.
d. Stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um losun gróðurhúsalofttegunda.
e. Draga úr heildar losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi.
Kolviður óskar e�ir leigu á landi �l skógræktar
Bláberjakaka.
Ungur bláberjarunni.