Bændablaðið - 10.09.2020, Side 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 45
Í samtölum mínum við fólk víðs
vegar um landið hefur umræða
um ójafnt aðgengi að þjónustu
oftar en ekki skipað stóran sess
í huga fólks. Flestir landsmenn
búa á suðvesturhorninu og hefur
opinber þjónusta byggst þar upp.
Þeir sem búa lengst frá höfuð-
borginni þurfa því að reiða fram
hærri fjárhæðir til að komast á
milli landsvæða en þorri lands-
manna til að fá aðgang að sömu
þjónustu. Þetta er skekkja í kerf-
inu sem þarf að leiðrétta, ekki síst
með það í huga að Reykjavík er
höfuðborg allra landsmanna.
Íbúar á landsbyggðinni sem búa
lengst frá höfuðborginni eiga þess
nú kost að fá lægri flugfargjöld
innanlands. Við höfum undirbúið
verkefnið um nokkurt skeið undir
heitinu skoska leiðin – en skrefið
var stigið til fulls í vikunni þegar
ég opnaði Loftbrú með formlegum
hætti á þjónustuvefnum Ísland.is.
Það var í senn tímabært og sérlega
ánægjulegt að koma þessu í loftið.
Loftbrú veitir íbúum með lög-
heimili á búsetusvæðum fjærst
höfuðborginni 40% afslátt af
heildarfargjaldi í þremur ferðum
á ári (sex flugleggjum) til og frá
höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið
er mjög skýrt, að jafna aðstöðumun
íbúa á landinu og bæta aðgengi
að miðlægri þjónustu í höfuð-
borginni. Heilbrigðisþjónustan
er sú sem flestir þurfa á að halda,
en ekki síður menntun, menning
og afþreying. Með þessu er verið
að auka möguleika íbúa af lands-
byggðinni á félagslegri þátttöku í
borgarsamfélaginu sem til staðar er
á suðvesturhorni Íslands.
Í mínum huga er Loftbrú ein af
mikilvægari byggðaaðgerðum sem
ráðist hefur verið í og með því tekið
stórt skref til að koma á móts við
grunnþarfir fólks sem býr úti á landi.
Ísland ljóstengt er annað gott dæmi
um vel heppnaða byggðaaðgerð sem
leggur áherslu á sem mest jafnræði
landsmanna hvað varðar aðgang að
fjarskiptainnviðum.
Lægri flugfargjöld verða liður
í að gefa fólki kost á því að velja
sér búsetu óháð starfi. Búseta á
landsbyggðinni mun styrkjast sem
hefur jákvæð áhrif á íbúðarverð. Þá
mun leiðrétting þessi hafa víðtæk
samfélagsleg áhrif, auka lífsgæði
fólks sem eiga þess kost að skreppa
til borgarinnar fyrir lægra fargjald,
nýta ferðina og heimsækja ættingja
og vini.
Í Skotlandi hefur flugferðum
fjölgað og ef greiðsluþátttaka
stjórnvalda með þessum hætti
hjálpar flugfélögum að halda uppi
þjónustustigi er það af hinu góða og
stuðlar að öruggum samgöngum.
Einhverjir hafa haft þær áhyggjur
að flugfélögin myndu sjá sér leik
á borði og hækka fargjöldin en
mér er það til efst að það væri góð
ákvörðun að hækka flugfargjöld til
allra hinna sem njóta ekki þessara
mótvægisaðgerða.
Það er afskaplega einfalt að nýta
sér afsláttarkjör með Loftbrú. Á
Ísland.is auðkennir fólk sig með raf-
rænum skilríkjum og sér þar yfirlit
yfir réttindi sín. Þeir sem vilja nýta
afsláttinn sækja sérstakan afsláttar-
kóða sem nota má á bókunarsíðum
flugfélaga þegar flug er pantað. Ég
hvet ykkur til að kynna ykkur málið
frekar á vefnum Loftbru.is.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknarflokksins
og samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðherra.
LESENDABÁS
Óvissa hjá sauðfjárbændum
Það er jafnvíst og þegar blámar
yfir berjamó þá styttist í að lömb
koma af fjalli og sauðfjárslátrun
hefjist. Það hefur haldist óbreytt
um aldir og svo er enn. Þó eru
óvissuþættir sem valda áhyggjum
í sauðfjárrækt núna. Það er
ekki óvissan sem heimsfaraldur
COVID-19 veldur sem er eina
óvissan sem sauðfjárbændur
standa frammi fyrir þetta haustið.
Afurðastöðvar hafa enn ekki
gefið út afurðaverð á innleggi frá
sauðfjárbændum. Reikna má með
því að núna verði miklu minna
framboð á lambakjöti á markaði
og það lítur út fyrir að það muni
nokkur hundruð tonnum.
Samdráttur í sauðfjárrækt hefur
verið viðvarandi síðastliðinn
áratug. Margir bændur hafa horfið
úr greininni þar sem afkoma þeirra
er ófullnægjandi og mikil óvissa
fram undan. Enn eitt haustið vita
sauðfjárbændur ekki hvort þeim
verði tryggð lágmarksafkoma. Það
eru skýr skilaboð sem felast í því
að gefa sauðfjárbændum ekki upp
kaupverð á afurðum sem eiga að
koma til slátrunar í haust.
Framsóknarflokkurinn lagði fram
á yfirstandandi þingi frumvarp sem
felur í sér breytingar á þann hátt að
þrátt fyrir ákvæði samkeppnislaga
er afurðastöðvum í kjötiðnaði
heimilt að sameinast og gera með
sér samkomulag um verkaskiptingu
eða annars konar samstarf í þeim
tilgangi að halda niðri kostnaði við
framleiðslu, geymslu og dreifingu
kjötvara. Frumvarpið fékk ekki
afgreiðslu og þar með hefur ekki
verið unnið í þá átt að að auka líkur
á að afurðastöðvar gætu unnið
saman með sameiginlegum hags-
munum neytenda og framleiðenda.
Mikilvægt er að þessar breytingar
nái fram að ganga til þess að hægt
verði að borga sauðfjárbændum
hærra verð fyrir afurðir sínar á kom-
andi árum. Auka skal hagræðingu í
greininni sem á sama tíma verður að
skila sér til bænda. Það er ekki með
nokkru móti ásættanlegt að afkoma
bænda verði áfram í þessari óvissu
og í algjöru lágmarki. Það er ekki
lögmál að bændur eigi að lepja dauð-
ann úr skel sláturleyfishafanna.
Vandi sauðfjárbænda hefur mikið
verið í umræðunni og skipuð var
nefnd í þeim tilgangi að skoða
hvaða úrræði væru í sjónmáli til að
laga stöðu sauðfjárbænda. Í þeim
viðræðum hefur verið nefnt að það
þurfi að kafa ofan í rekstrarum-
hverfi afurðastöðva og framkvæma
breytingar til þess að styrkja vissu
í rekstrarumhverfi sauðfjárbænda.
Sauðfjárbændur eru hornsteinn
byggðar í landinu og standa undir
því að landið allt sé í byggð.
Undirrituð mun leggja sín lóð á
vogarskálar til þess að hægt verði
að ná fram þeim breytingum sem
áður hefur verið farið yfir í þessari
grein. Vonast ég til að þeir flokkar
sem á Alþingi eru muni leggja sig
fram við að aðstoða bændur, þó svo
hljómurinn sé oft holur þegar kemur
að landbúnaði.
Halla Signý Kristjánsdóttir
þingmaður Framsóknarflokksins
Halla Signý Kristjánsdóttir.
Austur vegi 69 // 800 Selfoss // 480 0400 // jotunn.is // jotunn@jotunn.is
Vesturhrauni 3 // 210 Garðabær // 480 0000 // af lvelar. is // sala@aflvelar. is
götuskráð
!
driflæsing framan og aftan / hátt og lágt drif / rafléttistýri / dráttarkúla / spil / stór dekk / stillanleg fjöðrun
Cobalt 550 max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.790.000
iron 450 max ltd
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.590.000
iron 450 max
Götuskráð tveggja manna
Kr. 1.480.000
með vsk.með vsk.með vsk.
Mikil umræða hefur verið í sam-
félaginu undanfarin ár vegna
„jarðasöfnunar“ einstaklinga og
félaga hér á landi. Um margra
ára skeið hefur verið bent á þær
hættur sem fólgnar eru í því að
grípa ekki inn í og stöðva þessa
þróun.
Á lokadögum Alþingis í júní
sl. voru samþykkt lög sem er
meðal annars ætlað að stöðva
slík jarðauppkaup. Þar er einnig
kveðið á um að kaupverð jarða
verði gefið upp við þinglýsingu
kaupsamninga en frumvarpið
var unnið að frumkvæði Katrínar
Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Í samræmi við þær ábendingar
sem settar hafa verið fram á undan-
förnum árum um neikvæð áhrif
jarðasöfnunar tókst að leiða í lög
nauðsynleg ákvæði sem hafa það
að markmiði að stuðla að því að
landbúnaður geti þrifist með eðli-
legum hætti. Í því sambandi má
nefna að bændur sem eru leiguliðar
eru í mikilli óvissu með að þróa
sinn rekstur. Þeir eru háðir veðleyf-
um frá landeigendum og þannig
getur samþjöppun eignarhalds á
landi hamlað eðlilegri þróun land-
búnaðarins sem atvinnugreinar.
Dreift eignarhald á landi er
mun líklegra til að þjóna þeim
sjálfsögðu þörfum samfélagsins
að tryggja fæðuöryggi fólks eins
vel og kostur er. Fæðuöryggi er jú
einn mikilvægasti hornsteinn sjálf-
stæðis þjóða og því er varhugavert
að örfáir einstaklingar ráði yfir svo
miklu landi að það sé háð duttlung-
um þeirra hvort viðkomandi land
nýtist samfélaginu til að tryggja
fæðuöryggi og þar með sjálfstæði.
Ein meginástæða samþjöppunar
þeirrar sem orðið hefur á eignarhaldi
á landi er að viðkomandi aðilar
ásælast ýmis hlunnindi sem fylgja
ýmsum jörðum. Í því sambandi
hefur mest borið á þeim sem
ásælast laxveiðihlunnindi. Einnig
er um að ræða ýmiskonar önnur
veiðihlunnindi s.s. silungsveiði
og skotveiði. Ljóst er að mikil
eftirspurn eftir jörðum sem ráða
yfir hlunnindum hækkar verð
viðkomandi jarða og dregur þar
með úr möguleikum þeirra sem
vilja stunda búskap að kaupa
slíkar jarðir. Þá sérstaklega þeirra
sem vilja hefja búskap. Önnur
hlunnindi/landgæði sem sóst hefur
verið eftir er aðgangur að vatni sem
mögulegt er að virkja. Jafnframt
hefur ásókn í land sem vel er fallið
til ýmiss konar ferðaþjónustu
aukist verulega sem og eftirspurn
eftir landi þar sem möguleikar eru
á vindraforkuverum.
Það sem hér að framan hefur
verið rakið styður að mínu mati að
hömlur eigi að vera á jarðasöfnun
og er einnig mikilvægt til þess að
halda landinu í byggð og að þau
gæði sem landið býr yfir séu nýtt
til búsetu og skapi fólki möguleika
á lífsviðurværi.
Auk framangreinds er ákvæði
um að upplýsa skuli verð jarða
við eigendaskipti mikilvægt í
því sambandi að koma betra
skipulagi á fasteignamat bújarða.
Þar með skapast möguleiki á því
að skattleggja með réttlátari hætti
þessar eignir og að landeigendur
greiði eðlilega þóknun til
nærsamfélagsins fyrir þá þjónustu
sem sveitarfélögin bjóða upp á
óháð búsetu eigendanna. Það
er óréttlátt að eigendur greiði
fyrir fasteignamat upp á nokkra
þúsundkalla fyrir jarðir sem seldar
voru fyrir hundruð milljóna.
Ég tel að þetta sé farsælt skref
sem hér var stigið og verði til að
efla búsetu og ræktun til sveita.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingflokksformaður Vinstri
grænna
Farsælt skref í rétta átt
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir.
Loftbrú jafnar aðstöðumun
íbúa landsins
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Sími: 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is
41,9% fólks
á landsbyggðinni
les Bændablaðið
21,9% 41,9%
á landsbyggðinni
á höfuðborgarsvæðinu
29,2%
landsmanna lesa
Bændablaðið
Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND
EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI
Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2019. Aldur 12-80 ára.
Hvar auglýsir þú?