Bændablaðið - 10.09.2020, Síða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202050
Á hverju ári taka NMSM samtök
in, sem eru samstarfsvettvangur
Norðurlandanna um ýmis málefni
sem snerta mjólkurframleiðslu,
saman margvíslegar áhugaverðar
upplýsingar sem tengjast þróun
mjólkurframleiðslu Norður
landanna. Helstu upplýsingar
má sjá hér í meðfylgjandi töflu
en þar kemur m.a. fram að mjólk
urframleiðslan stóð í stað á milli
ára en alls nam heildarframleiðsla
Norðurlandanna 12,2 milljörðum
kílóa í fyrra.
Þess má geta að bæði á Íslandi
og í Noregi eru takmarkanir í gildi
varðandi heildarframleiðslu en í
hinum löndunum þremur er bændum
frjálst að framleiða mjólk en þó
hefur heildarmagnið staðið nokkuð
í stað undanfarin ár sem bendir
til ákveðins jafnvægis á hinum
frjálsa markaði. Líklegt má telja að
jarðnæði hafi hér töluvert að segja
um heildarframleiðsluna enda hefur
þróunin verið önnur víða í heiminum
þar sem bændur hafa getað bætt við
sig landi og hefur heildarframleiðsla
mjólkur í heiminum öllum aukist
jafnt og þétt undanfarin ár.
Segja má að þrátt fyrir að
heildarframleiðslan standi í stað á
milli ára þá hafi orðið mikil hagræð-
ing í búgreininni á milli áranna
2018 og 2019 en í fyrsta skipti í
sögunni er heildarfjöldi kúabúa á
Norðurlöndunum kominn niður fyrir
20 þúsund og voru þau í árslok 2019
19.637 talsins.
Mjaltaþjónabúum fjölgar áfram
Rétt eins og hér á landi þá hafa kúa-
bændur á hinum Norðurlöndunum
verið duglegir að taka mjaltaþjóna
í notkun í stað hefðbundinnar
mjaltatækni en þróunin hefur þó
verið ólík á milli landanna (sjá
bæði mynd og töflu). Gögnin sýna
að þar sem meðalbústærð er að jafn-
aði minni, þ.e. hér á landi, í Noregi
og í Finnlandi, hefur mjaltaþjóna-
búum fjölgað nokkuð ört en þessi
þróun er mun hægari í Svíþjóð og
í Danmörku hefur þróunin verið
önnur í allmörg ár. Lengi vel var
hlutfall mjaltaþjónabúa í Danmörku
hæst á öllum Norðurlöndunum en
með vaxandi meðalbústærð í
Danmörku hefur mjalta-
þjónabúunum fækkað
jafnt og þétt.
Eins og áður
segir má skýra
þennan mun á
búskaparþróun-
inni innan Norður-
landanna af meðal-
bústærðinni þar sem
afköst hvers mjalta-
þjóns takmarkast við um
það bil 65 kýr og því hentar tæknin
síður stærri búum sem eru í jafnri
stækkun. Með aukinni samkeppni á
milli framleiðenda á mjaltaþjónum
og stöðugri þróun á tækninni sem
slíkri má þó ætla að kostnaðurinn
muni halda áfram að lækka á kom-
andi árum og það gæti vissulega
haft áhrif á þessa þróun á stærri
búunum.
Hlutfallslega mest
mjaltaþjónamjólk í Noregi
Undanfarin ár hefur
hlutfall mjólkur frá
mjaltaþjónabúum
verið mest á Íslandi
en norsku búin
eru nú komin með
hærra hlutfall og alls
var árið 2019 57,2%
mjólkurinnar í Noregi
frá mjaltaþjónabúum.
Íslensku búin eru skammt
undan með 54,5% mjólkurinnar og
þar á eftir koma sænsk bú með 42%
mjólkurinnar. Hlutfall mjaltaþjóna-
mjólkur er lægst í Danmörku þar
sem 23,5% mjólkurinnar kemur frá
mjaltaþjónabúum.
Starfandi mjaltaþjónabú, talin
sem starfandi bú 31. desember 2019,
fjölgaði á árinu úr 5.187 í árs-lok
2018 í 5.565 um síðustu áramót eða
alls um 378 bú. Árið þar á undan
fjölgaði þeim álíka mikið. Í árslokin
voru mjaltaþjónar á rúmlega fjórða
hverju kúabúi Norðurlandanna
(28,3%) en hæsta hlutfallið var hér
á landi en um síðustu áramót var
þessi mjaltatækni á 39,9% af kúa-
búum landsins.
Rúmlega 9 þúsund mjaltaþjónar!
Eins og hér að framan greinir þá
fjölgaði mjaltaþjónabúunum um
378 bú en mjaltaþjónunum sjálfum
fjölgaði mun meira eða um 819. Það
er nærri því tvöfalt meiri aukning en
frá fyrra ári. Það er því ljóst að margir
bændur eru að bæta mjaltaþjónum
við bú sín og í árslok síðasta árs var
fjöldi mjaltaþjóna í notkun kominn í
alls 9.046. Flesta mjaltaþjóna hefur
undanfarna áratugi verið að finna í
Danmörku en nú hafa bæði Noregur
og Svíþjóð tekið fram úr, með annars
vegar 2.558 og hins vegar 2.184
mjaltaþjóna. Í Danmörku voru um
áramótin síðustu 2.170 mjaltaþjónar
í notkun.
Mismunandi nýting
mjaltaþjónanna
NMSM hefur einnig reiknað nú, í
fyrsta skipti síðan samtökin fóru
að taka saman gögn varðandi
þróun mjaltaþjónatækninnar á
Norðurlöndum, hvernig bændum
gengur að nýta mjaltaþjónatæknina.
Þetta er gert með því að bera saman
fjölda mjaltaþjóna í hverju landi
og innvegið mjólkurmagn búanna
en þess má geta að afurðasemi
kúnna hefur hér mikið að segja,
mjaltahraði þeirra sem og hve
mörgum kúm er haldið að hverjum
mjaltaþjóni. Heimsmetið í þessum
efnum eru rúmlega milljón kíló
frá einum mjaltaþjóni sem er með
öðrum orðum tæknileg framleiðslu-
geta þessarar tækni. Þegar þetta er
reiknað út kemur í ljós að dönsku
búin ná að fá flest kíló mjólkur frá
hverjum mjaltaþjóni eða 607 tonn
að jafnaði á ári og eiga því tölvert
inni í nýtingu á tækninni. Þar á eftir
koma sænsku búin með 520 tonn, þá
þeir finnsku með 517 tonn, þá þau
íslensku með um 314 tonn og þau
norsku eru svo skammt undan með
311 tonn að meðaltali frá hverjum
mjaltaþjóni.
Ísland og Danmörk juku
mjólkurframleiðsluna
Líkt og undanfarin ár þá er
danska mjólkurframleiðslan lang-
umsvifamest innan Norðurlandanna
en dönsku kúabúin framleiddu í
fyrra 5,6 milljarða kílóa eða um
46% allrar mjólkur þessara fimm
landa og eru dönsku búin að bæta
hlutfallslega við sig ár frá ári en
danska ársframleiðslan jókst um
121 milljón kíló á árinu 2019.
Miðað við þróunina undanfarin
ár, að því gefnu að hún haldi
áfram á sömu braut, má búast við
því að dönsk mjólkurframleiðsla
verði komin með helming allrar
framleiðslu Norðurlandanna árið
2024. Næststærsta framleiðsluland
mjólkur á Norðurlöndunum er svo
Svíþjóð með 22%. Það sem vekur
þó athygli er að heildarframleiðsla
mjólkur jókst einungis í Danmörku
og á Íslandi en samdráttur varð í
hinum löndunum þremur og nam
hann alls 126 milljón kílóum.
Stærstu kúabúin í Danmörku
Meðalbústærðin á Norðurlöndunum
er nú komin í 69,3 árskýr og er
það aukning um 4% frá fyrra ári.
Meðalbústærðin jókst á öllum
Norðurlöndunum og í fyrsta skipti
er nú meðalbúið í Danmörku komið
yfir 200 árskýr sem er meira en
helmingi stærra meðalbú en er í
Svíþjóð sem er þó með næststærstu
búin að jafnaði eða 94 árskýr.
Þriðju stærstu bú Norðurlandanna
er svo að finna hér á landi með um
48 árskýr, þá kemur Finnland með
45 árskýr og norsku búin reka svo
lestina með ekki nema 28 árskýr
að jafnaði.
Meðalbúið með 621 þúsund kíló
Ársframleiðsla norrænu kúabúanna
er auðvitað nátengd bústærðinni
en að jafnaði lagði hvert bú inn
621 þúsund kíló á síðasta ári sem
er aukning um 33 þúsund kíló
á einu ári. Eins og undanfarin ár
bera dönsku búin höfuð og herðar
yfir önnur bú á Norðurlöndunum
og raunar í allri Evrópu en þau
voru að jafnaði að leggja inn 2,0
milljónir kílóa sem er rúmlega tífalt
meira mjólkurmagn en norsku búin
voru að leggja inn að meðaltali, en
þau eru að framleiða langminnsta
mjólkurmagnið á Norðurlöndum og
meðalinnlögnin þar var ekki nema
192 þúsund kíló árið 2019.
Kúnum fækkaði
Samhliða fækkun kúabúa hefur
kúnum líka fækkað en afurðasemin
hefur þó aukist á sama tíma. Þannig
fór fjöldi þeirra úr 1.382 þúsund
kúm í árslok árið 2018 í 1.361
þúsund kýr í árslok 2019 sem er
þó ekki nema fækkun um 1,6% á
milli ára.
Meðalkýrin að skila 8.966 kg í
afurðastöð
Þegar horft er til afurðasemi kúnna
á milli landanna er staðan nokkuð
ólík eftir því hvaða land á í hlut
enda hefur þar áhrif bæði kúakynið
sem er notað við framleiðsluna og
það umhverfi sem kúabúin starfa
við.
Þegar meðalafurðir eru metn-
ar er oft notast við skýrsluhalds-
afurðir, þ.e. uppgefnar afurðir búa
sem taka þátt í skýrsluhaldi og þá
er ekki tekið tillit til heimanota á
mjólk eða mögulegra áfalla vegna
sjúkdómameðhöndlunar svo dæmi
sé tekið. Í samanburði NMSN er
hinsvegar notast við upplýsingar
um alla innvegna mjólk til afurða-
stöðvanna í löndunum og svo
heildarfjölda skráðra mjólkurkúa
í löndunum. Þegar þetta er reikn-
að þannig út kemur í ljós að sem
fyrr eru mestar afurðir að finna í
Danmörku, þar sem hver kýr er að
skila að jafnaði 9.913 kílói í afurða-
stöð og þar á eftir koma finnsku
kýrnar með 9.016 kíló og þá þær
sænsku 8.852 kíló. Norsku kýrnar
eru þær fjórðu afurðamestu með
6.828 kíló sem er lægri innvegin
mjólk á hverja kú en árið á undan
og þær íslensku eiga enn nokkuð í
land með að ná hinum með 5.950
kíló að jafnaði.
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Mjólkurframleiðsla Norðurlandanna stóð í stað á milli ára
Mjólkurframleiðsla Norðurlandanna, ýmsar stærðir
2018 2019 2018 2019 2018 2019 2018 2019 2018 2019 2018 2019 Breyting milli ára, %
Fjöldi kúabúa alls 3.106 2.810 6.250 5.783 556 542 7.481 7.249 3.350 3.253 20.743 19.637 -5,3%
Fjöldi kúabúa með mjaltaþjóna 722 691 1.138 1.201 197 216 2.012 2.301 1.118 1.156 5.187 5.565 7,3%
Fjöldi mjaltaþjóna 2.132 2.170 1.729 1.863 249 271 2.052 2.558 2.065 2.184 8.227 9.046 10,0%
Fjöldi mjólkurkúa, þúsundir 575 566 264 258 26 26 204 204 313 306 1.382 1.361 -1,6%
Meðalbústærð 185,1 201,6 42,2 44,7 47,5 48,4 27,3 28,1 93,4 93,9 66,6 69,3 4,0%
Heildarmjólkurframleiðsla, milljónir kg. 5.494 5.615 2.354 2.330 152 156 1.439 1.392 2.760 2.705 12.199 12.198 0,0%
Meðalframleiðsla pr. bú, þúsundir kg 1.769 1.998 377 403 273 288 192 192 824 832 588 621 5,6%
Meðalinnvigtun mjólkur í afurðastöð pr. kú 9.555 9.913 8.929 9016 5.761 5.950 7.053 6.828 8.817 8.852 8.827 8.966 1,6%
Heimild: Tæknihópur NMSM
Svíþjóð NorðurlöndinDanmörk Finnland Ísland Noregur
-
500
1.000
1.500
2.000
1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Danmörk Finnland Ísland Noregur Svíþjóð
Þróun útbreiðslu mjaltaþjónabúa á Norðurlöndunum frá 1998.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf