Bændablaðið - 10.09.2020, Síða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202052
Á FAGLEGUM NÓTUM
Þessa mánuðina hefur á undan
förnum árum verið hvað minnst
um að vera í sæðingum, það er, í
ágúst og september eru sæðingar
hvað fæstar. Það getur verið ágæt
is tímapunktur til þess að staldra
við og líta á hvað er í boði, vega og
meta nautin og skoða kosti þeirra
og galla.
Kynbótamat var keyrt að loknu
uppgjöri maímánaðar og fagráð í
nautgriparækt fundaði um miðjan
júlí og tók ákvörðun um hvaða
naut standa til boða sem reynd naut
á komandi vikum. Ákveðið var að
setja þrjú ný reynd naut í notkun
úr 2015 árgangi og þá voru tvö
naut tekin úr dreifingu sem reynd
naut. Það eru Vals 14087 og Kætir
15004 en þau lækkuðu bæði í mati
auk þess sem notkun á þeim hafði
verið dræm.
Í heildina standa þau naut sem
voru í dreifingu mjög vel við fyrra
mat og tiltölulega litlar breytingar
milli keyrslna. Við skulum líta
aðeins nánar á þau naut sem áfram
verða í dreifingu.
Bakkus 12001, f. Ófeigur 02016,
mf. Frami 05034. Bakkus hefur nú
verið alllengi í notkun en samt engin
ástæða til annars en bjóða hann
áfram. Þar kemur einkum tvennt til.
Bakkus er mjög hár í mati og hefur
haldið sínu auk þess sem hann er lítt
skyldur Laska-línunni sem er mjög
áberandi í kúastofninum um þess-
ar mundir. Styrkur Bakkusar ligg-
ur einkum í mjólkurlagni, góðum
mjöltum og frábæru skapi. Spenar
dætra hans eru hins vegar grann-
ir sem hafa þarf í huga við pörun.
Bakkus lækkaði um eitt stig og er
nú með 111 í heildareinkunn.
Pipar 12007, f. Gyllir 03007, mf.
Flói 02029. Pipar er eitt þeirra nauta
sem lítt tengist Laska og getur því
verið vænlegur kostur á t.d. dætur
Bamba. Pipar er nautsfaðir og sækir
kosti einkum í efnahlultföll, júgur-
og spenagerð og mjaltir. Hann lækk-
aði um eitt stig og stendur nú í 108
í heildareinkunn.
Loki 12071, f. Birtingur 05043,
mf. Þröstur 00037. Loki hefur sótt
á með tímanum og ávallt fengið
nokkra notkun. Hann er lítt skyld-
ur Laska og hans afkomendum en
kosti sækir Loki einkum í júgur- og
spenagerð og mjaltir. Hann bætti í,
hækkaði um eitt stig og stendur nú
með 108 í heildareinkunn.
Sjarmi 12090, f. Koli 06003, mf.
Laski 00010. Sjarmi er enn á lista
yfir reynd naut í dreifingu en hverf-
ur von bráðar úr kútum frjótækna
þar sem sæði úr honum er nánast
uppurið. Það segir sína sögu, hann
hefur ætíð fengið mikla notkun enda
kostir hans áberandi miklir, gríðar-
mikil mjólkurlagni, góð júgur- og
spenagerð, frábær ending, góðar
mjaltir og gott skap. Sjarmi lækk-
aði um eitt stig og stendur nú í 112
í heildareinkunn.
Dúett 12097, f. Birtingur 05043,
mf. Dúllari 07024. Dúett er einn
þeirra kosta sem tengjast Laska lítið
sem ekkert auk þess að hafa til að
bera há efnahlutföll og góðar mjaltir.
Dúett hækkaði um eitt stig og er nú
með heildareinkunn upp á 107.
Jörfi 13011, f. Birtingur 05043,
mf. Skurður 02012. Sæði úr Jörfa
er nánast uppurið og hann mun því
hverfa úr notkun innan skamms.
Jörfi er eitt þeirra fáu nauta sem
státa af jákvæðu kynbótamati hvað
nánast alla þætti varðar en hvað
júgurgerð snertir er hann flagg-
skip nautaflotans en um hana er
ekkert annað að segja en að hún er
frábær. Hvað aðra þætti snertir er
Jörfi mjög öflugur í efnahlutföll-
um, spenagerð og endingu. Jörfi
stóð í stað og er með 112 í heildar-
einkunn.
Hálfmáni 13022, f. Vindill
05028, mf. Laski 00010. Hálfmáni
er að hverfa úr notkun, sæði að klár-
ast og hann mun því aðeins standa
til boða um skamma hríð. Hálfmáni
er afurða- og efnahlutfallanaut en
þó sýnu öflugastur hvað mjaltir og
framúrskarandi skap snertir. Hafa
þarf í huga að dætur Hálfmána eru
alla jafna með stutta spena. Hálfmáni
lækkaði um eitt stig og er nú með
110 í heildareinkunn.
Bárður 13027, f. Baldi 06010,
mf. Laski 00010. Bárður hefur fengið
drjúgmikla notkun enda býður hann
upp á gríðarhátt fituhlutfall í mjólk
og frábæra skapgerð dætra. Hvað
aðra þætti snertir er Bárður sterkur
hvað júgur- og spenagerð snertir.
Bárður er hálfbróðir Kláusar 14031
að móðurinni til. Heildareinkunn
Bárðar breyttist ekki og er 106.
Ýmir 13051, f. Baldi 06010, mf.
Laski 00010. Ýmir hverfur von bráð-
ar úr kútum frjótækna en sæði er
nánast uppurið þegar þetta er skrifað.
Ýmir sækir sinn mikla styrk eink-
um í úrvalsgóða júgur- og spena-
gerð ásamt mjög góðum mjöltum
og skapi ásamt júgurhreysti. Nefna
verður að efnahlutföll í mjólk dætra
Ýmis eru undir meðallagi. Ýmir hélt
sínu milli keyrslna og stendur í 111
í heildareinkunn.
Steri 13057, f. Koli 06003, mf.
Aðall 02039. Steri er gríðarmikið
afurðanaut þar sem saman fara mikil
mjólk og há efnahlutföll. Hann er
fyrst og fremst í boði sem slíkur
enda eru mjaltir undir meðallagi auk
þess sem júgurdýpt dætra er meiri en
æskilegt væri. Þá gefur Steri kýr sem
eru í lágfættari kantinum og því ber
að nota hann með það í huga. Steri
lækkaði um tvö stig nú og stendur
með 109 í heildareinkunn.
Hæll 14008, f. Kambur 06022,
mf. Hræsingur 98046. Hæll hefur
stöðugt verið að bæta í og því var
ákveðið að taka hann í flokk nauts-
feðra. Hann er tiltölulega lítið skyld-
ur flestum hinna mest notuðu nauta
Nafn og nr. Faðir Móðir, uppruni og móðurfaðir M
jó
lk
Fi
tu
%
Pr
ót
ei
n%
Af
ur
ði
r
Pr
ót
.ú
th
al
d
Fr
jó
se
m
i
Fr
um
ut
al
a
Gæ
ða
rö
ð
Sk
ro
kk
ur
Jú
gu
r
Sp
en
ar
M
ja
lti
r
Sk
ap
En
di
ng
He
ild
Hæ
ð
dæ
tr
a
Bakkus 12001* Ófeigur 02016 Mæja 727, Auðsholti, Hrunamannahreppi, Frami 05034 117 90 94 111 104 121 100 119 104 103 104 116 123 110 111 5,4
Pipar 12007* N Gyllir 03007 759, Espihóli, Eyjafirði, Flói 02029 103 122 118 115 101 81 108 100 105 113 115 111 99 104 108 5,4
Loki 12071 Birtingur 05043 Huppa 356, Bakka, Kjalarnesi, Þröstur 00037 111 100 102 112 85 106 90 98 105 113 109 111 95 110 108 5,5
Sjarmi 12090 Koli 06003 Baula 474, Hrepphólum, Hrunamannahr., Laski 00010 124 91 100 117 97 87 115 116 105 106 113 110 109 120 112 5,4
Dúett 12097 Birtingur 05043 Dúlla 593, Egilsstaðakoti, Flóa, Dúllari 07024 105 111 112 114 81 105 92 103 99 106 101 109 97 107 107 6,0
Jörfi 13011 N Birtingur 05043 Gústa 643, Jörfa, Borgarbyggð, Skurður 02012 102 122 113 111 111 106 106 105 108 136 110 104 103 120 112 5,7
Hálfmáni 13022 N Vindill 05028 Gríma 468, Brjánsstöðum, Grímsnesi, Laski 00010 107 110 116 113 96 90 100 114 99 108 114 113 126 112 110 5,7
Bárður 13027 Baldi 06010 Klaufa 248, Villingadal, Eyjafirði, Laski 00010 94 122 106 105 106 98 87 114 102 115 104 103 129 110 106 5,9
Ýmir 13051 N Baldi 06010 Slóð 692, Klauf, Eyjafirði, Laski 00010 115 92 84 105 84 89 124 116 105 125 115 116 122 116 111 5,4
Steri 13057 T Koli 06003 731, Stóru-Mörk, Eyjafjöllum, Aðall 02039 113 123 116 121 116 117 92 103 106 94 101 89 101 114 109 4,9
Hæll 14008 N Kambur 06022 Skýla 474, Hæli 1, Eystrihrepp, Hræsingur 98046 100 114 111 107 103 112 103 92 98 127 115 105 101 108 109 5,4
Hnykkur 14029* Lögur 07047 Píla 483, Hlöðum, Hörgársveit, Stígur 97010 96 110 111 102 83 96 108 94 104 121 102 99 106 109 104 5,5
Kláus 14031* N Hjarði 06029 Klaufa 248, Villingadal, Eyjafirði, Laski 00010 118 103 105 117 102 100 87 105 99 105 105 99 117 103 108 5,5
Stáli 14050* Lögur 07047 Birna 805, Hlemmiskeiði 2, Skeiðum, Reykur 06040 111 103 100 113 95 94 89 108 106 107 99 105 103 109 105 5,6
Bjarki 15011 Laufás 08003 Fura 505, Akri, Eyjafirði, Ás 02048 116 94 94 110 98 100 82 116 101 112 105 116 117 100 107 5,7
Risi 15014 N Laufás 08003 Móa 414, Syðri-Bægisá, Öxnadal, Hjarði 06029 114 108 97 114 96 99 105 108 102 103 108 108 118 104 109 5,3
Golíat 15018* Laufás 08003 Emma 738, Keldudal, Hegranesi, Bolti 09021 120 83 105 117 83 84 104 125 105 112 101 111 106 97 107 5,9
Köngull 15019* Toppur 07046 Fura 933, Auðsholti, Hrunamannahreppi, Bambi 08049 93 121 116 104 104 99 114 90 95 127 107 106 112 106 108 5,5
Jólnir 15022* Bambi 08049 Borgey 638, Reykjahlíð, Skeiðum, Sússi 05037 109 104 110 112 95 101 98 96 105 103 109 101 102 104 106 5,2
Svampur 15027 Bambi 08049 Komma 379, Bakka, Kjalarnesi, Skurður 02012 102 102 97 101 100 94 118 97 106 104 114 108 119 100 106 5,0
Ábóti 15029* Bambi 08049 Abbadís 469, Skipholti 3, Hrunamannahr., Þollur 99008 107 100 99 107 95 113 114 102 104 122 118 104 95 97 108 5,0
NAUT 2020 Reynd naut Nautastöðvar BÍ sem fyrirhugað er að nota sæði úr sumarið 2020
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í nautgripa-
rækt
mundi@rml.is
Ábóti 15029. Myndir / Sveinbjörn Eyjólfsson
Köngull 15019.
Naut til notkunar næstu vikurnar