Bændablaðið - 10.09.2020, Qupperneq 54
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 202054
Þann 6. júní var frumsýndur nýj-
asti Land Rover Defender jepp inn.
Ég var lítillega búinn að skrifa um
hann í Bændablaðið sem kom út
4. júní eftir stutta prufu nokkrum
dögum fyrir frumsýningu og eftir
þá keyrslu fannst mér að ég yrði
að prófa þennan bíl betur.
Í þetta sinn voru það rétt tæpir
300 km við ýmsar aðstæður.
Vel hljóðeinangraður fyrir
umhverfishljóðum
Defender bíllinn sem ég prófaði
var í grunninn ódýrasti bíllinn,
með 240 hestafla dísilvél, á 18
tommu stálfelgum. Þó að þessi
bíll væri með minnstu vélinni var
alltaf nægur kraftur og 18 tommu
stálfelgurnar gefa betri fjöðrun en
19 og 20 tommu álfelgurnar. Búið
var að setja undir hann grófustu
gerð af Cooper dekkjum sem eru
ekki skemmtilegustu dekk til að
keyra á malbiki sökum grófleika, er
almennt leiðinda hvinur í dekkjunum
á hraða á bilinu 70–100. Eins og
í öllum bílum þá hávaðamældi
ég hljóðið inni í bílnum á 90 km
hraða og er greinilegt að bíllinn er
vel hljóðeinangraður og mældist
hávaðinn inni í bílnum ekki nema
70,9 db. Við Sultartangavirkjun var
hið mesta rok, en ekki varð maður
var við að bíllinn tæki vindinn neitt á
sig eins og margir aðrir bílar, maður
fann ekkert fyrir vindinum.
Fjöðrun góð á grófum malarvegi
Innst í Þjórsárdalnum er vegurinn
upp að Stöng og að öllu jöfnu er
hann holóttur og laus í sér, en það
var ekki að finna á þessum bíl, hann
einfaldlega át holurnar og var sem
límdur við veginn þrátt fyrir laust
yfirborð og þurrt. Frá Stöng og upp
að Hólaskógi er grýttur troðningur,
frekar vondur slóði og ekki boðlegur
fyrir marga bíla þótt umferð sé þar
mikil, en á Land Rover Defender
var þessi leið bara mjúk og þægileg.
Greinilegt að rafræna loftfjöðrunin er
að virka vel í aðstæðum sem þessum.
Tíu milljónir á milli
dýrasta og ódýrasta Defender
Ódýrasti Defenderinn nefnist Base
og kostar 12.790.000 (bíllinn sem
ég prófaði kostar 13.390.000, var
með smá aukabúnaði), hins vegar
er hægt að fá 400 hestafla bensín/
M-HYBRID Defender 110X sem
kostar 22.190.000 (ódýrasti 400
hestafla bensín Defenderinn kostar
15.690.000). Þó að ég hafi „bara
verið á 240 hestafla bíl“ var alltaf
nægur kraftur, heyrðist lítið sem
ekkert í vélinni á ferð og í alla
staði gott að keyra bílinn, hámarks
dráttargeta er 3.500 kg. (í sumum
gerðunum er hægt að „para“ bílinn
við kerruna sem er dregin). Það
eina sem ég get sett út á bílinn er að
maður þarf að kveikja ljósin í hvert
sinn sem bíllinn er settur í gang til
að vera löglegur í umferðinni því
ökuljós framan og aftan kvikna ekki
sjálfkrafa.
Íslensk „jeppadella“
kallar á breytta jeppa
Ég veit fyrir víst að Arctic Trucks er
að skoða breytingu á þessum bíl og
að tiltölulega auðvelt sé að breyta
þessum bíl í 35 tommu bíl, en búið
var að stækka dekkin undir þessum
bíl um tvö númer, en hann kemur á
255/70/18 og var settur á 275/70/18
(sem samsvarar 33 tommu dekkjum).
Miðað við hvað bíllinn fer vel
með sjálfan sig og farþega á 33
tommu dekkjum verður spennandi
að sjá framhaldið. Allavega er þessi
jeppi einhver sá mest spennandi
jeppi sem ég hef prófað, virkar
sterkbyggður og er stór, kraftmik-
ill, rúmgóður og gott að keyra.
Alls fór ég 289 km, meðalhraði
65 km og eyðsla á hundraðið ekki
nema 10,2 lítrar. Nánar er hægt
að fræðast um bílinn á vefsíðunni
www.landrover.is.
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Land Rover Defender
Staldrað og kíkt í Gjána í Þjórsárdal. Myndir / HLJ
Í rokinu var gott að fá skjól frá Defender til að ná þessu skilti niður.
Lítill hávaði þrátt fyrir mjög gróf
dekk.
Þessa mynd í mælaborðinu var ég ekki að skilja, en samkvæmt bæklingi og
kynningu um bílinn er hægt að para bílinn við þá þyngd kerru sem dregin er.
Er aldrei sáttur við bíla sem þarf að kveikja handvirkt ljósin til að fá afturljós
á bíl fyrir umferð.
Fyrri bíllinn sem ég prófaði var á 20 tommu álfelgum, en sá seinni á 18 tommu
stálfelgum og mikill munur var á mýkt bílanna á malarvegi.
Helstu mál og upplýsingar
Lengd 4.583 mm
Hæð 1.967 mm
Breidd 2.105 mm