Bændablaðið - 10.09.2020, Side 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. september 2020 57
Fallegt vesti á herra, prjónað ofan frá og niður úr
Drops Karisma.
DROPS Design: Mynstur u-898
Stærðir: S (M) L (XL) XXL (XXXL)
Yfirvídd: 88 (96) 106 (116) 126 (138) cm
Garn: DROPS KARISMA (fæst í Handverkskúnst)
- Ólífa nr 57: 300 (350) 400 (400) 450 (500) g
Prjónfesta: 21 lykkja x 28 umferðir = 10 x 10 cm
Prjónar: Hringprjónn 80 cm, nr 4 og 40 og 80 cm nr 3
Upplýsingar fyrir uppskrift:
Garðaprjón (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.
Útaukning: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1
sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn
prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Úrtaka (á við um hlið á fram- og bakstykki): Fækkið
um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki,
prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt,
takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana
slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir
lykkjuna sem var prjónuð.
Affelling: Til að koma í veg fyrir að affellingarkantur-
inn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með
grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að
slá uppá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja
lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er
felldur af eins og venjuleg lykkja).
VESTI – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er hvor
öxl prjónuð fyrir sig, fram og til baka, jafnframt því
sem aukið er út/fitjaðar eru upp lykkjur fyrir háls-
máli. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað
fram og til baka hvort fyrir sig þar til útaukning fyrir
handveg er lokið. Síðan eru stykkin sett saman og
fram- og bakstykkið er prjónað í hring. Lykkjur eru
teknar upp fyrir kant í hálsi og kant á ermum, stroff
er prjónað í hring.
BAKSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig.
Hægri öxl: Fitjið upp 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur
(meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna
nr 4. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið slétt
prjón þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón.
Haldið svona áfram fram og til baka (slétt á réttu,
brugðið á röngu).
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju innan
við 1 kantlykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu – sjá
ÚTAUKNING = 19 (20) 20 (21) 21 (22) lykkjur. Geymið
stykkið og prjónið vinstri öxl.
Vinstri öxl: Fitjið upp 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur
(meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr
4. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið slétt prjón
þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið
svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 lykkju
innan við 1 kantlykkju í lok næstu umferðar frá réttu
= 19 (20) 20 (21) 21 (22) lykkjur. Prjónið 1 umferð
til baka frá röngu.
Nú eru bæði stykkin sett saman þannig: Prjónið slétt-
ar lykkjur yfir allar 19 (20) 20 (21) 21 (22) lykkjurnar
á vinstri öxl, fitjið upp 40 (40) 42 (42) 44 (44) lykkjur
í lok umferðar (= hálsmál), prjónið inn 19 (20) 20
(21) 21 (22) lykkjur frá hægri öxl á prjóninn = 78
(80) 82 (84) 86 (88) lykkjur. Haldið áfram fram og
til baka með slétt prjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni
í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 18 (18) 18 (17) 17 (16) cm,
aukið út/fitjið upp lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið
þannig: Aukið út 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í
hverri umferð frá réttu 2 (1) 1 (3) 4 (4) sinnum, síðan
eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverr-
ar umferðar þannig: Fitjið upp 2 lykkjur 0 (2) 2 (3) 3
(4) sinnum og 3 lykkjur 0 (0) 1 (1) 2 (3) sinnum (=
alls 2 (5) 8 (12) 16 (21) lykkjur fleiri fyrir handveg í
hvorri hlið) = 82 (90) 98 (108) 118 (130) lykkjur.
Geymið stykkið og prjónið framstykki.
FRAMSTYKKI:
Hvor öxl er prjónuð fyrir sig.
Vinstri öxl: Fitjið upp 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur
(meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr
4. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið slétt prjón
þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið
svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist
5 (5) 6 (6) 7 (7) cm, aukið út/fitjið upp lykkjur fyrir
hálsmáli þannig: Aukið út um 1 lykkju innan við 1
kantlykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 19
(20) 20 (21) 21 (22) lykkjur. Fitjið síðan upp lykkjur
í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 2
lykkjur 3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 28 (29) 29 (30)
30 (31) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hægri öxl.
Hægri öxl: Fitjið upp 18 (19) 19 (20) 20 (21) lykkjur
(meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr
4. Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, prjónið slétt prjón
þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið
svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist
5 (5) 6 (6) 7 (7) cm, aukið út/fitjið upp lykkjur fyrir
hálsmáli þannig: Aukið út um 1 lykkju innan við 1
kantlykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 19
(20) 20 (21) 21 (22) lykkjur. Fitjið síðan upp lykkjur
í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 2
lykkjur 3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 28 (29) 29
(30) 30 (31) lykkjur.
Prjónið nú hægri og vinstri öxl saman frá réttu
þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir 28 (29) 29 (30)
30 (31) lykkjur á hægri öxl, fitjið upp 22 (22) 24 (24)
26 (26) lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið sléttar lykkjur
yfir 28 (29) 29 (30) 30 (31) lykkjur á vinstri öxl = 78
(80) 82 (84) 86 (88) lykkjur. Haldið áfram fram og til
baka með sléttu prjóni og 1 kantlykkju garðaprjóni
í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 18 (18) 18 (17)
17 (16) cm, aukið út/fitjið upp lykkjur fyrir handveg
í hvorri hlið þannig: Aukið út 1 lykkju innan við 1
kantlykkju í hverri umferð frá réttu 2 (1) 1 (3) 4 (4)
sinnum, síðan eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir
handveg í lok hverrar umferðar þannig: Fitjið upp
2 lykkjur 0 (2) 2 (3) 3 (4) sinnum og 3 lykkjur 0 (0) 1
(1) 2 (3) sinnum (= alls 2 (5) 8 (12) 16 (21) lykkjur
fleiri fyrir handveg í hvorri hlið) = 82 (90) 98 (108)
118 (130) lykkjur. Héðan er nú mælt
FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið nú framstykki og bakstykki saman frá réttu
þannig: Prjónið slétt prjón 82 (90) 98 (108) 118 (130)
lykkjur á framstykki, fitjið upp 11 (11) 13 (13) 15
(15) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi),
prjónið slétt prjón yfir næstu 82 (90) 98 (108) 118
(130) lykkjur á bakstykki, fitjið upp 11 (11) 13 (13)
15 (15) nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi)
= 186 (202) 222 (242) 266 (290) lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju af 11 (11) 13 (13)
15 (15) nýju lykkjum í hvorri hlið. Látið prjónamerkin
fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar
lykkjum er fækkað hvoru megin við prjónamerkin.
Prjónið slétt prjón hringinn. Þegar stykkið mælist 5
cm, fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki í
hvorri hlið – sjá ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið
lykkjum svona með ca 9 (9) 10 (10) 10 (11) cm alls
4 sinnum = 170 (186) 206 (226) 250 (274) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 34 (35) 36 (37) 38 (39) cm,
aukið út um 26 (26) 30 (34) 38 (42) lykkjur jafnt yfir
= 196 (212) 236 (260) 288 (316) lykkjur. Skiptið yfir
á hringprjón nr 3. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2
lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum
lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir
brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Vestið mælist ca
57 (59) 61 (63) 65 (67) cm frá öxl og niður.
FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori.
KANTUR Á ERMUM: Prjónið upp 88-132 lykkjur
innan við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón nr
3. Stillið af að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4.
Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið)
hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir
sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar
lykkjur – sjá AFFELLING! Prjónið hinn kantinn á ermi
alveg eins.
KANTUR Í HÁLSI: Prjónið upp 104-120 lykkjur innan
við 1 lykkju frá réttu á stuttan hringprjón nr 3. Stillið af
að lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 4. Prjónið stroff
(= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og
brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónakveðja,
mæðgurnar í Handverkskúnst, www.garn.is
Georgetown-herravesti
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
8 9 1 4 6
7 3 8 5
5 3 6 4 8 1
6 7 9
4 3 9 5 6
1 2 8
4 9 2 8 3 6
3 9 4 2
7 8 2 5 9
Þyngst
2 1 6 7 8
4 7 5
9 8 3 6
7 2 8 5
3 4 8 9
8 6 3 1
4 2 5 9
5 2 1
6 1 9 3 2
4 2 8 3
3 1 5 9
9 4 1
1 8 7 5
6 1
9 3 6 8
1 8 4
7 6 9 2
5 4 7 9
5
5 9 2
6 2 3
7 5 4
5 3 2 1
4 8 6
9 1 8
7 3 9
1
Ætla að verða
bakari eða leikari
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Guðni Geir Jóhannesson er 11 ára
og miðjubarn, á tvo bræður. Hann
getur látið braka í ökklanum og
kjálkanum. Hann er hraður, góður
bakari og góður leikari.
Nafn: Guðni Geir Jóhannesson.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Hrútur.
Búseta: Akranes.
Skóli: Brekkubæjarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Mér finnst heimilisfræði
skemmtilegast því þá fæ ég að baka.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Simbi, hundurinn minn.
Uppáhaldsmatur: Hakk og
spaghetti.
Uppáhaldshljómsveit: Bruno Mars.
Uppáhaldskvikmynd: Bruce
Almighty.
Fyrsta minning þín? Ég man ekki
neitt.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfði á trompet en er
hættur.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Bakari eða leikari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég stal einu sinni úr
búð en mamma lét mig skila því og
biðjast afsökunar.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór með bróður mínum á
ærslabelginn, sá Gullfoss og Geysi
og fór í sumarbústað. Við fórum líka
í sund úti um allt.
Næst » Ég skora næst á Sigrúnu
Höllu Olgeirsdóttir, vinkonu mína
í Bolungarvík.