Bændablaðið - 17.12.2020, Blaðsíða 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2020 39
Í mars nk. kemur út Tímarit Bændablaðsins.
Tímaritið tekur á helstu málefnum landbúnaðarins og eru efnistökin
fjölbreytt. Það verður prentað í 8.000 eintökum og dreift til allra
áskrifenda, á öll lögbýli landsins og í fyrirtæki sem tengjast landbúnaði.
Lengd ritsins er yfir 100 síður og það er prentað á glanstímaritapappír í
stærðinni A4.
Þetta er kjörinn vettvangur til að koma starfsemi sinni á framfæri.
Tímaritið liggur á borðum landsmanna svo mánuðum skiptir og því
má segja að auglýsingar í slíkum blöðum séu langlíf.
Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í ritinu en í seinni hluta þess
er pláss fyrir kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í samvinnu við
blaðamenn.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 563-0303 og í gegnum netfangið
gudrunhulda@bondi.is
TÍMARIT BÆNDABLAÐSINS 2021
TRYGGÐU ÞÉR
AUGLÝSINGAPLÁSS Í TÍMA
„ ÞAÐ ER UNUN AÐ LESA ÞESSA BÓK.“
GAGNRÝNENDUR KILJUNNAR
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
KEÐJUR OG
KEÐJUVIÐGERÐAREFNI
GOTT ÚRVAL
Uppskera verður 15 sinnum á ári í nýju stöðinni þrátt fyrir að plönturnar sjái
aldrei dagsljós eða næringarríka jörð.
Stærsta bú fyrir lóðrétta
ræktun í Danmörku
Fjórtán röðum með salati, krydd
jurtum og káli er staflað upp á
hver aðra í nýju lóðréttu búi í
Kaupmannahöfn sem er eitt hið
stærsta sinnar tegundar í heim
inum. Raðirnar ná frá gólfi og
upp í þak hjá fyrirtækinu Nordic
Harvest en hin nýja stöð nær yfir
sjö ferkílómetra.
Uppskera verður 15 sinnum
á ári í nýju stöðinni þrátt fyrir að
plönturnar sjái aldrei dagsljós eða
næringarríka jörð en þess í stað er
fjólublátt ljós beint að þeim allan
sólar hringinn frá 20 þúsund sérút-
búnum LED-lömpum. Á þessari
framtíðarstöð sjá litlir róbótar um
að sá fræjum frá hillurekka til
hillurekka. Áætlað er að um 200
tonn af grænmeti verði uppskorið á
stöðinni á fyrsta ársfjórðungi næsta
árs og síðan um þúsund tonn á ári
þegar framleiðslan verður komin á
fullt. Þetta verður því ein stærsta
stöð þessarar tegundar í Evrópu og
raunar heiminum.
Nýja stöðin hefur mætt efa-
semdum frá mörgum sem stunda
hefðbundinn landbúnað þar sem
vangaveltur hafa sprottið upp um
framleiðslugetu og rafmagnsnotkun.
Forsvarsmenn fyrirtækisins benda
á að stöðin hafi ákveðið loftslags-
forskot með vörum sem afhentar
eru í nálægð við framleiðslustaðinn
og með notkun á grænu rafmagni
frá vindmyllum. Þar að auki skaðar
láréttur landbúnaður ekki umhverfið
þar sem allt vatn, næring og áburð-
ur er endurnýtt. Hafa forsvarsmenn
Nordic Harvest einnig bent á að í
stöðinni þurfi einungis að nota einn
lítra af vatni á hvert kíló sem fram-
leitt er en á stórum akri þyrfti til
dæmis að nota 250 sinnum meira
magn. /ehg - Nationen
Eðlur og snákar
stoppa Tesla
Tesla bílaframleiðandinn hefur
neyðst til að stöðva fram kvæmdir
við byggingu á nýrri rafbílaverk
smiðju skammt utan við Berlín.
Ástæða stöðvunarinnar er að
umhverfisverndarsamtök sem fóru
í mál við fyrirtækið vegna vanefnda
sem tengjast búsvæði eðla og snáka
í ræktuðum skógi sem stóð til að
ryðja unnu málið.
Meginrökin fyrir stöðvun skógar-
fellingarinnar eru að í sgóginum er
að finna bú- og dvalarsvæði friðaðra
sandeðla sjaldgæfrar snákategundar.
Samkvæmt samningnum sem gerð-
ur var átti Tesla að sjá um að flytja
dýrin burt af svæðinu þar sem á að
fella skóginn en ekki var staðið við
þá framkvæmd.
Aðdragandi málsins er að Elon
Musk, eigandi Tesla, hefur gert samn-
ing um að byggja risastóra rafbíla-
verksmiðju skammt suður af Berlín.
Samkvæmt áætlun eiga um 12 þús-
und manns að starfa við verksmiðjuna
og á hún að framleiða um 50 þúsund
rafbíla á ári. Til að reisa verksmiðj-
una og helgunarsvæði hennar þarf
að fella um 90 hektara af ræktuð-
um furuskógi og til stóð að fyrstu
rafbifreiðarnar yrðu tilbúnar í júlí
á næsta ári.
Tvenn umhverfisverndarsamtök
í Þýskalandi höfðuðu mál á hend-
ur fyrirtækinu og kröfðust þess að
felling skógarins yrði stöðvuð vegna
umhverfissjónarmiða. Í síðustu viku
féll dómur umhverfissamtökunum í
vil og framkvæmdir stöðvaðar. Að
minnsta kosti tímabundið.
Dómurinn féll þrátt fyrir að búið
sé að fella talsvert mikið af trjám
og að fyrirtækið hafi lofað að planta
á næstu árum þrisvar sinnum fleiri
trjám en það kemur til með að fella.
/VH