Gerðir kirkjuþings - 2019, Qupperneq 6

Gerðir kirkjuþings - 2019, Qupperneq 6
6 7 fastra nefnda þingsins. Viðbótarsamningurinn var síðan undirritaður af forsætisráðherra, fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra, biskupi Íslands og forseta kirkjuþings. Breytingin felur í sér að íslenska ríkið skuldbindur sig til þess að greiða ákveðna fjárhæð sem gagngreiðslu til þjóðkirkjunnar og er miðað við gagngjaldið 2018. Greiðsla þessi er óháð fjölda biskupa, presta og annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar. Hvað varðar frekari skýringar vísast til inngangs og ákvæða viðbótarsamningsins, ásamt viljayfirlýsingu sem er í höndum kirkjuþingsfulltrúa. Aukakirkjuþingið í ágúst samþykkti einnig að fara þess á leit við kirkjuráð að skipuð yrði nefnd til að koma með tillögur að útfærslu á samningnum. Sú nefnd hefur verið skipuð og hlotið heitið Framtíðarnefnd. Hún mun vinna tillögur til kirkjuþings um það hvernig viðbótasamningurinn verði útfærður. Nefndin hefur þegar hafið störf og er Anna Guðrún Sigurvinsdóttir, kirkjuþingsfulltrúi, formaður hennar. Forseti kirkjuþings situr fundi nefndarinnar sem hittist vikulega. Ljóst er að kirkjuþing mun þurfa að setja nýjar starfsreglur og nýjar samþykktir þar sem með þessum samningi verður fjárhagslegt sjálfræði þjóðkirkjunnar stóraukið eins og fyrr segir. Í samræmi við það mun einnig þurfa að einfalda mjög allt lagaumhverfi þjóðkirkjunnar og fyrirkomulag á þeim greiðslum sem þjóðkirkjan fær úr ríkissjóði. Nú verður þjóðkirkjunni í sjálfsvald sett hvort og þá hvernig hún heldur áfram starfsemi þeirra sjóða sem reknir hafa verið á grundvelli laga og ber nú fulla ábyrgð á eigin fjármálum og ákveður sjálf fjölda starfsmanna sinna. Þessi breyting á samspili ríkis og kirkju mun skýra og styrkja starfsemin þjóðkirkjunnar og má segja að nú sé hún komin í ákveðna höfn til allt að 17 ára sem gefur tækifæri til að efla kirkjulegt starf og laða fólk til samstarfs. Þjóðkirkjan er, ásamt Alþingi, ein af elstu máttarstólpum þjóðarinnar og hafa verið samferða alla tíð og verða það vonandi enn þrátt fyrir þennan aðskilnað sem orðinn er með fyrr greindum samningi. Ég vil minna hér á að kristni og íslensk þjóð hafa átt samleið í eitt þúsund ár. Kristni var lögtekin á Alþingi Íslendinga á friðsamlegan hátt. Kristni er svo samofin menningu og sögu íslenskrar þjóðar að ekki verður skilið þar á milli. Ákvæði um þjóðkirkju kom í fyrstu stjórnarskrá fyrir Ísland árið 1874 og hefur verið í stjórnarskrá landsins eftir það. Skipulag og starfsemi þjóðkirkjunnar grundvallast á lögum settum af Alþingi. Löggjöf hefur þó verið einfölduð talsvert á undanförnum árum og áratugum. Þrátt fyrir það eru grunn stoðir kirkjunnar og helstu starfsþættir hennar lögmælt í dag, þótt kirkjan ráði miklu um skipulag sitt, starf og forgangsröðun verkefna. Almennt má telja að vilji sé til þess að fela kirkjunni enn meiri ábyrgð eigin mála með einföldun löggjafar og skýrari aðgreiningu kirkju og ríkis. Í því felst þó ekki endilega vilji til að minnka stuðning og vernd ríkisins gagn- vart kirkjunni heldur fyrst og fremst það að þjóðkirkjan ráði sínum eigin málum. Mig langar einnig til að rifja það upp hér að árið 2012 var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs en ráðið hafði það hlutverk að endurskoða stjórnarskrána og koma með tillögur að breytingu á henni. Ein af spurningunum tók á málefnum þjóðkirkjunnar, hvort fólk vildi hafa ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskránni. Rúmlega helmingur kjósenda vildi halda inni ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskránni. Kosningin var dræm en að mínu mati skipti það máli að vera með þessa spurningu um stöðu þjóðkirkjunnar í stjórnarskrá til að höfða til kjósenda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.