Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 64
64 65
framkvæmd starfa sem starfsfólki er veittur heldur einnig við fyrirlagningu
starfsánægjukannana og samantekta úr starfsmannaviðtölum hvað snertir
starfslíðan starfsfólk.
Ábyrgð: Þjónustusvið biskupsstofu, kirkjuráð og vígslubiskupar.
Tímamörk: 2019-2023.
7. Endurskoðun framkvæmdaáætlunar.
Jafnréttisnefnd leggi mat á jafnréttisstefnuna og endurskoði framkvæmdaáætlun
hennar reglulega.
a. Fyrir 1. september 2023 skili nefndin tillögu að nýrri framkvæmdaáætlun til
biskups Íslands og kirkjuráðs. Hún verði lögð fyrir kirkjuþing haustið 2023 og
taki gildi 1. janúar 2024.
Ábyrgð: Jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúar.
Tímamörk: 1. september 2023.
IV. KAFLI
Niðurlag.
Biskup Íslands ber ábyrgð á jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar. Biskup, vígslubiskupar,
kirkjuráð, prófastar, vígðir þjónar kirkjunnar, sóknarnefndir og stofnanir kirkjunnar bera
sameiginlega ábyrgð á að farið sé að jafnréttislögum og að jafnréttisstefnunni sé framfylgt,
hver á sínu starfssvæði.
Á vegum kirkjunnar er starfandi teymi um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni,
kynbundinni áreitni, ofbeldi og um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar. Teymið
starfar samkvæmt starfsreglum kirkjuþings um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri
áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar
nr. 330/2019.
Jafnréttisstefna þjóðkirkjunnar var samþykkt á kirkjuþingi 6. nóvember 2019.