Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 18
18 19
sjóðunum á grundvelli umsókna og fjárhagsáætlana stofnana. Í fjármálaumsýslunni felst
m.a. að gera fjárhagsáætlanir og fjárlagatillögur og árita ársreikninga þeirra sjóða sem ráðið
stýrir og leggur fram á kirkjuþingi. Kirkjuráð hefur forræði og forsjá um Skálholtsstað og
hefur einnig afskipti af málefnum Skálholtsskóla.
Kirkjuráðsfundir.
Kirkjuráð heldur fund að jafnaði einu sinni í mánuði á biskupsstofu og á þessu starfsári
hefur ráðið haldið 16 fundi. Í maí var haldinn fundur í Skálholti en þar voru málefni
staðarins sérstaklega tekin til umræðu. Auk kirkjuráðsmanna og framkvæmdastjóra sitja
að jafnaði fundi ráðsins skrifstofustjóri biskupsstofu, fjármálastjóri biskupsstofu þegar
umræða um fjármál eru sérstaklega á dagskrá og biskupsritari sem ritar fundargerðir.
Forseti kirkjuþings situr fundi kirkjuráðs þegar málefni kirkjuþings eru til umfjöllunar
og formenn fastra nefnda kirkjuþings. Vígslubiskupar sitja fundi ráðsins þegar málefni
biskupsstólanna eru til umfjöllunar. Samvinna er góð og samstarfsandi einnig.
Starfsfólk kirkjuráðs.
Starfsfólk kirkjuráðs: Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs. Hann lét af störfum
1. október sl. og eru honum þökkuð störfin. Guðrún Finnbjarnardóttir fulltrúi, Arnór
Skúlason, arkitekt, verkefnastjóri viðhaldsmála á fasteignasviði og Skúli Guðmundsson,
lögfræðingur kirkjuráðs og kirkjuþings og sviðsstjóri fasteignasviðs. Skúli lét af störfum
fyrir kirkjuráð 31. mars sl. en starfar nú tímabundið fyrir kirkjuþing og biskupsstofu.
Starfshópar kirkjuráðs.
Samkvæmt reglum um stjórnsýslu og starfshætti kirkjuráðs eru þrír starfshópar kirkjuráðs
starfandi, lagahópur, fjármálahópur og kirkjustarfshópur. Einn til tveir kirkjuráðsmenn
starfa í hverjum hópi, ásamt starfsmanni frá biskupsstofu og formanni fastanefnda
kirkjuþings. Skúli Guðmundsson, lögfræðingur kirkjuþings, hefur starfað með lagahópi,
Sigurbjörg Nielsdóttir Hansen, fjármálastjóri biskupsstofu með fjármálahópi og séra Sigfús
Kristjánsson, verkefnastjóri fræðslumála með kirkjustarfshópi. Stefán Magnússon starfar
með lagahópi, Svana Helen Björnsdóttir og séra Axel Árnason Njarðvík með fjármálahópi
og séra Arna Grétarsdóttir með kirkjustarfshópi kirkjuráðs.
Fundur Samstarfsnefndar Alþingis og þjóðkirkjunnar.
Samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar starfar á grundvelli laga nr. 12/1982.
Samstarfsnefndina skipa af hálfu Alþingis, forseti Alþingis og einn fulltrúi tilnefndur
af hverjum þingflokki, en af hálfu þjóðkirkjunnar kirkjuráð. Forseti Alþingis og biskup
landsins fara með formennsku nefndarinnar sitt árið hvor. Tilgangur nefndarinnar er að
vinna að auknum skilningi í löggjafarstarfi á verkefnum kirkjunnar. Samstarfsnefndin
getur annars vegar sent ályktanir og tillögur til Alþingis eða einstakra nefnda þess, en hins
vegar til kirkjuþings.
Haldinn var fundur í nefndinni þann 13. mars sl. í Alþingishúsinu. Eftirfarandi málefni
voru á dagskrá: