Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 46
46 47
5. mál 2019
Flutt af biskupi Íslands
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna:
Digranes- og Hjallaprestaköll, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, sameinist í eitt prestakall,
Digranes- og Hjallaprestakall.
2. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Greinargerð.
Í hinu nýja Digranes- og Hjallaprestakalli þjóna sóknarprestur og tveir prestar og hálft
stöðugildi prests verður lagt til að auki. Komi ekki fram athugasemdir við það hyggst biskup
Íslands skipa núverandi sóknarprest Digranesprestakalls sem sóknarprest í væntanlegu
prestakalli og sóknarprest og prest Hjallaprestakalls (50%) sem presta í kallinu. Verður því
ein staða prests auglýst þegar sameining hefur öðlast gildi. Gert er ráð fyrir að afgreiða
tillöguna á framhaldskirkjuþingi 2020.
Nefndarálit löggjafarnefndar
Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið.
Lagt er til að Digranes- og Hjallaprestaköll, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, sameinist
í eitt prestakall, Digranes- og Hjallaprestakall.
Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september
2019.
Í fundagerð biskupafundar frá 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja prestakalli
þjóni sóknarprestur og tveir prestar og hálft stöðugildi prests verður lagt til að auki.
Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og
annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur
sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020.
Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt.
Stefán Magnússon sat hjá við afgreiðslu málsins.