Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 73

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 73
73 25. mál 2019 Flutt af Axel Árnasyni Njarðvík og Svönu Helen Björnsdóttur Þingsályktun um kolefnisjöfnun ferðalaga á vegum kirkjustjórnarinnar Kirkjuþing ályktar að þjóðkirkjan skuldbindi sig til þess að kolefnisjafna allir ferðir á vegum kirkjustjórnar og prófastsdæma innan þriggja ára, þ.e. fyrir árið 2022. Það verði gert með mótvægisaðgerðum í skógrækt eða endurheimt votlendis á jarðnæði í eigu kirkjunnar, m.a. þar sem boðið verður upp á helgun lands, sbr. helgun lands í Skálholti 16. september 2019. Gerð verði greining á akstri og annarri orkuþörf á árinu 2020 og gerður samningur við fyrirtæki um mælingu á kolefnisútblæstri og mótvægisaðgerðum. Jafnframt verði fundnar leiðir til að hrinda kolefnisjöfnuninni í framkvæmd, annað hvort með þátttöku starfsfólks í skógrækt þar sem það á við eða samningi við fyrirtæki sem taka líkt að sér (endurheimt votlendis sérstaklega). Stefnt er að því að verkefninu „að kolefnisjafna yfirstjórn kirkjunnar“ verði hrint í framkvæmd sem hér segir: 2020 biskupsstofa, biskupsembætti. 2021 kirkjuráð, kirkjuþing. 2022 prófastsdæmi. Einnig verði söfnuðum og starfsemi þjóðkirkjunnar gert kleift að kolefnisjafna starf sitt á þessum jörðum líkt og nú þegar hefur verið lagt upp með í Skálholti. Greinargerð. Nú færist í vöxt að fyrirtæki og stofnanir kolefnisjafni starfsemi sína í samræmi við umhverfissjónarmið og stöðu loftslagsmála. Meira að segja hefur verið rætt um af hálfu stjórnmálamanna að leggja á kolefnisskatt til að hamla gegn útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Í sumum tilvikum eru fyrirtæki og stofnanir farnar að kaupa þjónustu til kolefnisjöfnunar sem er þá tvenns konar: Í fyrsta lagi er um að ræða mælingar á kolefnisfótspori (ferðalög, bílar, orka, vatn, sorp) en nú þegar má með einföldum hætti fá aðgang að slíkri þjónustu þar sem hægt er að sjá í rauntíma kolefnisfótspor starfseminnar og hverjar mótvægisaðgerðir þurfi. Hér er um að ræða grænt bókhald sem færist mjög í vöxt hjá fyrirtækjum og stofnunum sem vilja sýna af sér samfélagslega ábyrgð. Í annan stað leiða slíkar mælingar (grænt bókhald) í ljós hve mikið þarf af mótvægisaðgerðum, t.d. í formi skógræktar eða endurheimtar votlendis, enda hér byggt á mælanlegum stærðum. Nú eru að opnast möguleikar að kaupa slíka þjónustu (mótvægisaðgerðir í skógrækt og endurheimt votlendis – Votlendissjóður, Kolviður). Á hinn bóginn hefur þjóðkirkjan sjálf möguleika á að verða sjálfbær með því að jafna kolefnisfótspor starfseminnar á sínu eigin landi án mikils tilkostnaðar. Segja má að slíka starfsemi hafi þegar hafist með ferð starfsfólks og meðlima frá biskupsstofu og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.