Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 65
65
18. mál 2019
Flutt af kirkjuráði
Starfsreglur um breyting á starfsreglum
um prestssetur og aðrar fasteignir kirkjunnar nr. 950/2009, með síðari breytingum
a. 2. mgr. 21. gr. starfsreglnanna orðast svo:
Leiga af prestssetrum, þ.e. jörðum og húsum, auk hlunninda, ítaka og annarra réttinda
sem prestur nýtur vegna embættis síns, skal nema 5% af fasteignamati hins leigða á ári
á þeim svæðum þar sem gildistalan er 1,0 skv. reglum ríkisskattstjóra um skattmat af
hlunnindum hvað varðar afnot af fasteignum, 4% á þeim svæðum þar sem gildistalan er
0,8 og 3,5% á þeim svæðum þar sem gildistalan er 0,7.
b. 3. mgr. 21. gr. starfsreglnanna orðast svo:
Leiga prestssetra í eigu kirkjunnar á svæðum með gildistöluna 0,8 og 0,7 skal ekki vera
lægri en kr. 52.000 á mánuði og ekki hærri en kr. 108.000 og tekur sú fjárhæð breytingum
árlega samkvæmt neysluvísitölu. Um leigu fyrir aðrar eignir skal samið.
2. gr.
22. gr. starfsreglnanna fellur brott.
3. gr.
Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti
þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu.
Nefndarálit fjárhagsnefndar
Nefndin hefur fjallað um málið á þingskjali 18 og leggur til að kirkjuþing samþykki það
með breytingartillögu á sérstöku þingskjali.