Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 27
27
19. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000,
með síðari breytingum.
Tillagan fjallar um að kirkjuráð skipi Strandarkirkjunefnd, sbr. 2. gr. reglna um
Strandarkirkju í Selvogi sem samþykktar voru á kirkjuþingi árið 2001.
20. mál. Tillaga að starfsreglum um breytingu á starfsreglum um val og veitingu prestsembætta
nr. 144/2016, með síðari breytingum.
Hér er m.a. lagt til að matsnefnd um hæfni til prestsembættis skili umsögn innan sex
vikna í stað fjögurra og að biskupsstofa standi straum af kostnaði við nefndina í stað
kirkjumálasjóðs. Einnig er lagt til að prófastar geti óskað eftir aðstoð við undirbúning
kjörnefndarfunda ef þeir svo kjósa.
21. mál. Tillaga til þingsályktunar um skipan nefndar til endurskoðunar á starfsreglum um
íslensku þjóðkirkjuna erlendis.
Tillagan fjallar um skipun þriggja manna nefndar til þess að endurskoða starfsreglur um
íslensku þjóðkirkjuna erlendis.
Fasteignir.
Um fasteignir þjóðkirkjunnar gilda starfsreglur um prestssetur og aðrar fasteignir
þjóðkirkjunnar nr. 950/2009, með síðari breytingum og Fasteignastefna þjóðkirkjunnar
sem samþykkt var á kirkjuþingi 2018 og öðlast gildi 1. janúar 2019.
Kirkjuráð annast um rekstur fasteigna kirkjumálasjóðs sem felst m.a. í því að annast
viðhald eignanna í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun, gæta réttinda og varðveita
þau sem tengjast eignunum, sjá um tryggingar og halda uppi lögskilum.
– Samkomulag um úrvinnslu og yfirfærslu á tilteknum eignum.
Ríkissjóður og þjóðkirkjan hafa gert með sér samkomulag um endanlega úrvinnslu og
yfirfærslu á tilteknum lóðum, spildum og öðrum eignum í samræmi við samkomulag
frá árinu 2006 við Þjóðkirkjuna um prestssetur og afhendingu þeirra til kirkjunnar. Með
samkomulagi þessu hefur endanleg úrvinnsla nú farið fram á því samkomulagi ásamt
fullnaðaruppgjöri er tengist eignarhaldi einstakra eigna. Ekki munu verða viðhafðar
frekari kröfur milli aðila um yfirfærslu eigna á grundvelli samkomulagsins frá árinu 2006.
Í samræmi við það sem kemur fram í samkomulaginu frá árinu 2006 eru aðilar sammála
um að lóðir þær og spildur og aðrar eignir, sem þar eru upptaldar, eigi að færast yfir til
kirkjunnar og er sérstaklega vísað til þeirra í samkomulaginu með beinum eða óbeinum
hætti:
Á fundi kirkjuráðs 12. febrúar sl. var samþykkt að fela framkvæmdastjóra kirkjuráðs að
undirrita samkomulagið fyrir hönd kirkjumálasjóðs og jafnframt lýsti ráðið yfir ánægju
sinni með samkomulagið og þakkaði skrifstofustjóra biskupsstofu fyrir aðkomu hans að
því að það hafi náðst eftir áralanga vinnu. (fskj. 3).
– Um fasteignasvið.
Fasteignasvið þjóðkirkjunnar er starfrækt af kirkjuráði. Þar er sinnt daglegum rekstri
þeirra verkefna sem kirkjuráði eru falin í starfsreglum þessum, eftir nánari fyrirmælum