Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 87

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 87
87 Í ofangreindri fasteignastefnu kemur fram að þjóðkirkjan skuli varðveita tilteknar sérstakar sögulegar fasteignir þar sem menningarleg eða önnur veigamikil rök hnígi til þess. Kirkjuþing ákveði hvaða fasteignir, aðrar en kirkjur, skuli varðveittar hverju sinni, á þeim grundvelli. Fasteignirnar Möðruvellir í Hörgárdal og Mosfell í Mosfellsdal teljast falla undir að hafa þetta sögulega gildi og því stendur ekki til að selja þær. Í 37. máli kirkjuþings er óskað söluheimildar annarra eigna, sem tilgreindar eru í málinu. Fjárhagsstaða kirkjumálasjóðs er ekki góð og taprekstur viðvarandi. Eitt af hlutverkum sjóðsins er að reka prestssetur kirkjunnar. Rekstur prestssetra er þungur og oft eru prestssetur rekin með tapi fyrir kirkjumálasjóð. Tillögu þessari er ætlað að fækka prestssetrum í samræmi við framangreinda stefnumörkun kirkjuþings. Með sölu eignanna fást fjármunir og dregið er úr taprekstri kirkjumálasjóðs. Jafnframt er gert ráð fyrir að leigutekjur af eignum sem ekki verða seldar, heldur leigðar út á almennum markaði, aukist. Í öllum tilvikum er mjög rúmur frestur sem umráðamenn prestssetranna hafa til að afhenda þau. Um einstakar tillögur: - Kjalarnessprófastsdæmi. Mosfellsprestakall. Prestssetur Mosfellsprestakalls er Mosfell í Mosfellsdal, þ.e. íbúðarhúsið á jörðinni Mosfelli ásamt lóð. Jörðin er að öðru leyti í vörslu kirkjumálasjóðs. Í prestakallinu búa um 11.500 manns sem er langt umfram viðmiðunarmörk kirkjuþings um íbúafjölda. Mosfellsprestakall telst vera á höfuðborgarsvæðinu og er því ekki talin þörf á að halda prestssetur þar, enda ekki lögð til prestssetur í prestaköllum á höfuðborgarsvæðinu og þarf því að gæta samræmis. Núverandi umráðamaður var skipaður árið 2008 og rennur því skipunartími út árið 2023. Útskálaprestakall. Prestssetur Útskálaprestakalls er að Skagabraut 30, Suðurnesjabæ. Í prestakallinu búa um 3.500 manns og eru því umfram viðmiðunarmörk um íbúafjölda. Í nágrannaprestaköllum, þ.e. Keflavíkur-, Njarðvíkur- og Grindavíkurprestaköllum eru ekki lögð til prestssetur. Því er vart sjáanleg ástæða til að halda prestssetur í prestakallinu. Núverandi umráðamaður var skipaður árið 2009 og rennur því skipunartími út árið 2024. - Vestfjarðaprófastsdæmi. Holtsprestakall. Prestssetur Holtsprestakalls er prestssetursjörðin Holt í Önundarfirði. Vegna nálægðar við Ísafjörð þykir eðlilegt, til að gæta samræmingar, að leggja til að skylda til að leggja til prestssetur verði aflögð. Þess má geta að jörðin og mannvirki eru nú leigð út á almennum markaði. - Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Dalvíkurprestakall. Prestssetur Dalvíkurprestakalls eru tvö. Annars vegar prestsbústaðurinn Dalbraut 2, Dalvík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.