Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 60

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 60
60 61 17. mál 2019 Flutt af kirkjuráði Þingsályktun um jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar Kirkjuþing 2019 samþykkir eftirfarandi jafnréttisstefnu þjóðkirkjunnar: Jafnréttisstefna þjóðkirkjunnar I. KAFLI Inngangur Jafnréttisstefna kirkjunnar á að stuðla að jafnrétti eins og rétt og skylt er í samræmi við líf og boðskap Jesú Krists. Undirstöðuatriði kristins boðskapar fela í sér jafnréttishugsjón og skírn inn í kristið samfélag gerir engan greinarmun á kyni eða stöðu einstaklinga. Því er jafnréttisstefna viðurkenning manngildis og jafnréttis allra einstaklinga. Jafnréttisstefna kirkjunnar tekur mið af gildandi jafnréttislögum á Íslandi, lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, með síðari breytingum. Þar er meðal annars lögð áhersla á að kynjasamþætting sé fest í sessi sem mikilvæg leið til að koma á jafnrétti. Þá mun kirkjan vinna eftir lögum um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019 og gæta að því í öllu sínu starfi að fylgt sé ákvæði 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Jafnframt er tekið mið af því að þjóðkirkjan er aðili að Alkirkjuráði, Kirknaráði Evrópu og Lúterska heimssambandinu. Samtökin hafa hvatt kirkjur sínar til að gæta að jafnréttissjónarmiðum til hins ýtrasta. Jafnréttisstefna kirkjunnar tekur annars vegar til stjórnkerfis kirkjunnar og starfsmanna hennar og hins vegar til starfsemi og þjónustu sem kirkjan veitir. II. KAFLI Hlutverk jafnréttisnefndar kirkjunnar Jafnréttisnefnd kirkjunnar samanstendur af fimm aðalmönnum og fimm varamönnum, sem kirkjuþing hefur kosið til fjögurra ára í senn. Jafnréttisfulltrúar starfa með jafnréttisnefnd og sitja fundi hennar. Þeir hafa starfsstöð á þjónustusviði biskupsstofu og sinna fræðslu út í söfnuðum. Helstu hlutverk jafnréttisnefndar kirkjunnar eru eftirfarandi: 1. Að vera ráðgefandi fyrir biskup Íslands og kirkjuráð í málefnum er varða jafnrétti kynjanna. 2. Að hafa frumkvæði að fræðslu og aðgerðum, til að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna innan kirkjunnar. 3. Að fylgjast með framkvæmd jafnréttisstefnunnar fyrir hönd biskups og kirkjuráðs og gera tillögu til kirkjuráðs um endurskoðun framkvæmdaáætlunarinnar til þriggja ára í senn, sbr. 2. mgr. 18. gr. laga nr. 10/2008.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.