Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 56

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 56
56 57 15. mál 2019 Flutt af Agnesi M. Sigurðardóttur, Solveigu Láru Guðmundsdóttur og Kristjáni Björnssyni Þingsályktun um mótun stefnu þjóðkirkjunnar í málefnumfólks á flótta, hælisleitenda og innflytjenda Kirkjuþing 2019 samþykkir að skipaður verði þriggja manna starfshópur til að móta stefnu og verklagsreglur þjóðkirkjunnar í málefnum hælisleitenda, fólks á flótta og innflytjenda. Biskup Íslands skipi starfshópinn. Nefndin skili tillögum sínum á framhaldsþinginu í mars næstkomandi. Greinargerð. Prestur innflytjenda hóf störf hjá þjóðkirkjunni í nóvember árið 1996. Síðustu ár hefur starf hans aukist í takt við fjölgun hælisleitenda til Íslands. Er nú svo komið að hann þjónar hælisleitendum í þremur kirkjum, Háteigskirkju, Breiðholtskirkju og Keflavíkurkirkju. Frá haustdögum 2018 hefur hann haft skrifstofuaðstöðu í Breið- holtskirkju og alþjóðlegur söfnuður er að myndast með reglulegu helgihaldi og auknu safnaðarstarfi, s.s. skírnarfræðslu og safnaðarkvöldum. Árið 2015 fór prestur innflytjenda af stað með reglulegt helgihald og móttöku hælisleitenda í fjórum kirkjum undir nafninu Seekers. Fjórir prestar á höfuðborgarsvæðinu vinna nú náið með presti innflytjenda. Frá 2015 hefur prestur innflytjenda skírt um 60 flóttamenn. Af þeim voru 19 sendir utan en 28 fengu hæli á Íslandi. Þessir 28, ásamt tugum annarra kristinna flóttamanna, eru kjarni þess safnaðar sem er að vaxa í Breiðholtskirkju. Nefnd á vegum þjóðkirkjunnar fór utan og kynnti sér málefni fólks á flótta hjá Alkirkjuráðinu og Lúterska heimssambandinu. Þá voru mynduð tengsl við CCME (The Church‘s Commission for Migrants in Europe), sem eru samtök kirkna í Evrópu sem sinna málefnum innflytjenda og fólks á flótta. Mikilvægt er að starfshópurinn svari þeirri spurningu hvernig best sé að kirkjan taki á móti hælisleitendum og flóttafólki og hvernig kirkjan vill búa að þeim sem koma til landsins, ásamt þeim sem snúist hafa til kristinnar trúar og látið skírast. Einnig kanni hópurinn hvernig megi skipuleggja starf stuðningsaðila og stuðningsfjölskyldna sem aðstoða flóttafólk, ásamt annarri aðstoð. Nefndarálit allsherjarnefndar Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt með breytingartillögu á þskj. 42 Allsherjarnefnd telur nægilegt að starfshópurinn sé skipaður þremur einstaklingum enda sé það almenna reglan varðandi nefndarskipan. Kirkjuþing 2019 samþykkir að skipaður verði þriggja manna starfshópur til að móta stefnu og verklagsreglur þjóðkirkjunnar í málefnum hælisleitenda, fólks á flótta og innflytjenda. Biskup Íslands skipi starfshópinn. Nefndin skili tillögum sínum á framhaldsþinginu í mars næstkomandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.