Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 25
25
30. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000, með síðari
breytingum.
Þingmannamál.
Starfsreglurnar hafa verði birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
31. mál. Samkomulag um áframhaldandi ráðningu starfsmanns kirkjuþings.
Kirkjuráð bókaði eftirfarandi:
Bókað var á fundi kirkjuráðs í nóvember 2018: Málið var dregið til baka af
flutningsmönnum og hlaut því ekki afgreiðslu kirkjuþings.
Á fundi kirkjuráðs í 10. apríl sl. óskaði Stefán Magnússon eftir lagfæringu á afgreiðslu
kirkjuráðs á kirkjuþingsmáli nr. 31. Eftirfarandi var fært til bókar:
Á 289. fundi kirkjuráðs var bókað að 31. mál kirkjuþings 2018 hefði verið dregið til
baka af flutningsmönnum og hefði því ekki hlotið afgreiðslu kirkjuþings. Forseti kirkjuþings
hefur farið fram á að kirkjuráð veki athygli á að ofangreindar lyktir málsins urðu vegna
samkomulags milli forseta kirkjuþings og biskups Íslands um að biskupsstofa ráði núverandi
lögfræðing kirkjuþings til starfa a.m.k. tímabundið fram að næsta reglulega kirkjuþingi
haustið 2019. Samkomulag þetta var borið undir þingheim sem samþykkti það samhljóða.
Mál þetta er birt í gerðum kirkjuþings.
Fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju.
Viðræður um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju hafa staðið yfir frá árinu 2015.
Viðræðurnar eru grundvallaðar á 4. gr. samkomulags ríkis og kirkju frá 10. janúar 1997
(fylgiskjali kirkjujarðasamkomulagsins). Í viðræðunefnd kirkjunnar sátu eftirfarandi
kirkjuþingsmenn: Magnús E. Kristjánsson, formaður, Óskar Magnússon og Jónína
Bjartmarz. Kirkjuráð samþykkti á fundi sínum 9. janúar 2019 að óska eftir því við
kirkjuþing að núverandi forseti þingsins, Drífa Hjartardóttir, tæki sæti í samninganefnd
kirkjunnar. Það var samþykkt. Með nefndinni starfaði um hríð Skúli Guðmundsson,
lögfræðingur kirkjuþings. Viðræðunefndirnar luku störfum í ágúst sl. og boðaði forseti
kirkjuþings þá til aukakirkjuþings til að leggja fram viðbótarsamning við samning ríkis og
þjóðkirkju frá 1997.
Aukakirkjuþing 2019.
Aukakirkjuþing 2019, 58. kirkjuþing, var haldið í Háteigskirkju 28. ágúst sl. og fór
fyrri umræða fram þann dag. Þinginu var frestað um viku og fór síðari umræða fram í
Grensáskirkju 4. september sl. Þar voru lagðar fram eftirfarandi tvær þingsályktunartillögur:
1. mál. Tillaga til þingsályktunar um viðbótarsamning íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar.
Flutt af forsætisnefnd.
Aukakirkjuþing 2019 samþykkir viðbótarsamning íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar
um endurskoðun á samkomulagi um kirkjujarðir og launagreiðslur presta og starfsmanna
þjóðkirkjunnar frá 10. janúar 1997 og samningi íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um
rekstrarkostnað vegna prestsembætta og prófasta, rekstrarkostnað biskupsstofu, framlag
til Kristnisjóðs og sérframlög til þjóðkirkjunnar frá 4. september 1998.