Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 41

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 41
41 millj. kr. Í lok árs 2018 var biskupsstofa skuldlaus við aðra sjóði kirkjunnar og átti þá reyndar kröfu á kirkjumálasjóð. Kirkjumálasjóður Ársreikningur kirkjumálasjóðs er ekki tilbúinn en vinna við ársuppgjör 2018 er á lokaspretti. Lausafjárstaða kirkjumálasjóðs er ekki góð, halli ársins voru um 60 millj. kr. en sjóðurinn hefur verið rekinn með viðvarandi halla undanfarin ár. Tekjur ársins jukust en gjöld einnig. Vaxtagjöld eru lægri en árið áður, þ.e. árið 2017, því krafa jöfnunarsjóðs á kirkjumálasjóð og krafa Biskupsstofu voru ekki vaxtareiknaðar á árinu. Kostnaður vegna stjórnar, starfsskipunar og þjónustumálefna lækkaði, kostnaður þjónustumálefna hækkaði og rekstrarkostnaður fasteigna hækkaði. Hækkun fastafjármuna kirkjumálasjóðs er vegna hækkunar fasteignamats fasteigna. Sú hækkun endurspeglar þó ekki raunvirðishækkun fasteigna því viðhaldskostnaði hefur verið ábótavant í nokkur ár. Veltufé kirkjumálasjóðs lækkar um 40% frá árinu 2017 og er greiðslustaða sjóðsins verulega slæm. Kirkjumálasjóður tók fé að láni hjá Biskupsstofu til að fjármagna greiðsluvandann. Til stóð að gera upp skuldir sjóðsins með sölu á Laugavegi 31 en um áramót 1.1.2020 falla niður allar skuldir og kröfur á milli sjóða og fastafjármunir verða sameiginlegir. Lausafjárhlutfall sjóðsins er komið niður í 0,44 sem flokkast sem slæm staða og traust fjármálastofnana á sjóðunum hefur minnkar. Á sama tíma og lausafjárhlutfallið lækkar er eiginfjárhlutfallið það sama eða 0,9. Þegar rekstrarhalli er varanlegur ætti eiginfjárhlutfallið að lækka en það stendur í stað vegna hækkunar á fasteignamati eigna. Eins og áður segir ætti fasteignamat að endurspegla raunvirði fasteigna en gerir það ekki nema fasteignum sé haldið vel við. Kristnisjóður Ársreikningur kristnisjóðs er endurskoðaður. Tekjur kristnisjóðs eru hluti af kirkjujarðasamkomulaginu og eiga að jafngilda 15 prestslaunum. Rekstur kristnisjóðs skilaði tæpum 10,5 millj. kr. í tekjuafgang. Tekjur sjóðsins voru 148,8 millj.kr. sem er hækkun frá fyrra ári. Veittir styrkir úr sjóðnum voru 66,7 millj. kr. allt frá 200 þús. kr. til 11,0 millj. kr. Launakostnaður kristnisjóðs er innheimtur frá biskupsstofu með kostnaðarhlutdeild en starfsmenn sjóðsins fá laun sín greidd með launakeyrslu fjársýslu ríkisins. Allar eignir kristnisjóðs eru veltufjármunir. Jöfnunarsjóður sókna Ársreikningur jöfnunarsjóðs er enn í vinnslu. Tekjur jöfnunarsjóðs sókna eru 18,5% af sóknargjöldum til þjóðkirkjusafnaða, tekjurnar eru viðbót við önnur sóknargjöld sem ríkið greiðir sóknum landsins. Tekjuafgangur jöfnunarsjóðs var 59 millj. kr. sem leggjast við sjóð til úthlutunar styrkja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.