Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 24
24 25
16. mál. Starfsreglur um breytingu á siðareglum vígðra þjóna og annars starfsfólks
þjóðkirkjunnar, sem samþykktar voru á kirkjuþingi 2009, sbr. breytingu á kirkjuþingi 2013.
Þingmannamál.
Um er að ræða breytingu á inngangi siðareglna þjóðkirkjunnar til að tryggja að þessar
reglur nái einnig til kjörinna fulltrúa s.s. kirkjuþings- og kirkjuráðsfulltrúa og þeirra sem
valin eða kosin eru til trúnaðarstarfa í nefndum og ráðum kirkjunnar.
Starfsreglurnar hafa verði birtar á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
20. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði.
Þingmannamál.
Vesturlandsprófastsdæmi: Kirkjuþing samþykkti að leggja Saurbæjarprestakall niður.
Sóknir hins niðurlagða prestakalls tilheyra eftirleiðis Garðaprestakalli sem nefnist Garða-
og Hvalfjarðarstrandarprestakall.
Niðurlagning og sameining prestakallanna hefur tekið gildi og hefur biskup skipað þar
sóknarprest. Auglýst mun verða fljótlega eftir tveimur prestum til að þjóna í prestakallinu.
Starfsreglurnar hafa verði birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
25. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins nr. 952/2009,
með síðari breytingu.
Kirkjuþing unga fólksins.
Breytingin fjallar um málfrelsi og tillögurétt fulltrúa á Kirkjuþing unga fólksins og um
aldursmörk þeirra.
Starfsreglurnar hafa verði birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
26. mál. Starfsreglur um breytingu á starfsreglum um þingsköp kirkjuþings (þóknananefnd).
Þingmannamál.
Nefndin ákveður þóknun fyrir störf í ráðum, nefndum og starfshópum á vegum
kirkjunnar. Enn fremur ákveður nefndin þingfararkaup kirkjuþingsfulltrúa. Nefndin skal
birta ákvarðanir sínar um þóknanir á opnu vefsvæði þjóðkirkjunnar.
Ákvarðanir þóknananefndari hafa verið birtar á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
Starfsreglurnar hafa verði birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
28. mál. Starfsreglur um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni,
ofbeldi og um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar.
Þingmannamál.
Starfsreglurnar hafa verði birtar í Stjórnartíðindum og á vefsíðu þjóðkirkjunnar.
29. mál. Stefna þjóðkirkjunnar um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni
áreitni, ofbeldi og um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar.
Þingmannamál.
Stefnan hefur verði birt á vefsíðu þjóðkirkjunnar.