Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 34
34 35
– Dómsmál
Á starfsárinu hafa verið höfðuð tvö dómsmál á hendur þjóðkirkjunni. Í fyrra málinu
var biskupsembættið dæmt bótaskylt vegna niðurlagningar embættis héraðsprests
Vesturlandsprófastdæmi.
Hitt málið fjallaði annars vegar um það hvort íslenska þjóðkirkjan væri skaðabótaskyld
vegna þess að tiltekin hlunnindi prestssetursjarðar fylgdu henni ekki og hins vegar um
bótaskyldu vegna myglu í prestsbústað sem haldið var fram að hefði kostað prest mikil
fjárútlát vegna leigu á húsnæði. Málinu var lokið með samkomulagi og frekari kröfur
felldar niður. Kirkjuráð er einnig í málaferlum vegna hitaveitulagnar í prestsbústaðnum
í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þar er um að ræða áfrýjunarstefnu sem birt var kirkjuráði
vegna kirkjumálasjóðs 2019 vegna máls frá 2018. Dómur héraðsdóms Reykjavíkur, sem var
uppkveðinn 20. febrúar 2019, í málinu Kirkjumálasjóður gegn Vátryggingarfélagi Íslands
ehf. og Hitaveitufélagi Hvalfjarðar. Hitaveitufélag Hvalfjarðar og Vátryggingarfélag Íslands
ehf., voru dæmd til að greiða kirkjumálasjóði kr. 2.387.000 vegna þess að hitaveitulögn
í prestsbústaðnum gaf sig og olli miklum skemmdum á prestsbústaðnum. Kirkjuráð
samþykkti á fundi 10. apríl 2019 að taka til varna í málinu fyrir Landsrétti með það að
markmiði að fá yfirmat í málinu lagt til grundvallar uppgjöri.
Biskupi Íslands hefur nýlega verið birt stefna sóknar- og byggingarnefndar
Stórólfshvolfssóknar, dags. 29. september 2019, á hendur honum fyrir hönd þjóðkirkjunnar,
kirkjuráðs og Jöfnunasjóðs sókna til ógildingar úrskurðar áfrýjunarnefndar kirkjunnar
vegna meints ágalla á málsmeðferð nefndarinnar. Málið á rót sína að rekja til vilyrðis
kirkjuráðs árið 2010 um framlag úr Jöfnunarsjóði sókna til kirkjubyggingar á Hvolsvelli
og um gildi bókunar kirkjuráðs á afturköllun á því vilyrði árið 2015. Úrskurðarnefnd
kirkjunnar úrskurðaði sókninni í vil en áfrýjunarnefndin felldi úrskurð nefndarinnar
úr gildi og taldi að bókun kirkjuráðs stæði. Þessu vilja sóknar- og byggingarnefnd
Stórólfshvolfssóknar ekki una.
– Fimm alda minning siðbótarinnar.
Undirbúningsnefnd fimm alda minningu siðbótarinnar afhenti biskupi lokaskýrsla sína
sem kynnt var kirkjuráði. Kirkjuráð lýsti yfir ánægju sinni með framkvæmd verkefnisins
og þakkaði nefndinni störf sín. (fskj. 12).
– Ályktanir Prestastefnu 2019.
Prestastefna Íslands 2019 samþykkti fjórar ályktanir sem eru eftirfarandi og biskup Íslands
kynnti kirkjuráði á fundi 8. maí sl.:
1. „Prestastefna 2019 haldin í Áskirkju hvetur kirkjuleg stjórnvöld til að fara af stað með
úttekt á því hvaða jarðnæði í eigu þjóðkirkjunnar geti hentað til skógræktar í stórum stíl
sem og til endurheimtar votlendis. Í framhaldi af úttekt og skilgreiningu á heppilegu landi
skuldbindi kirkjan sig til að leggja a.m.k. 10 af hundraði þess svæðis sem þykir henta árlega
til skógræktar og/eða endurheimtar votlendis. Með því móti má klára verkefnið fyrir 2030
sem er sá tími sem nefndur hefur verið sem svigrúm til viðsnúnings í loftslagsmálum.
Jafnframt skuldbindi Þjóðkirkjan sig til þess að kolefnisjafna allir ferðir á vegum