Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 11

Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 11
11 einnig þeirrar skoðunar að margir muni fylgja kirkjunni að málum þótt fullkominn aðskilnaður verði á endanum á milli hennar og ríkisvaldsins. Ég mun halda áfram að tilheyra kristinni kirkju þótt leiðir skilji á milli hennar og ríkisins. Nýlegt samkomulag milli ríkisvaldsins og þjóðkirkjunnar felur í sér að hún verður ekki lengur eins og hver önnur ríkisstofnun heldur mun hún fremur líkjast frjálsu trúfélagi sem ber ábyrgð á eigin rekstri og fjárhag. Þessar breytingar eru til mikilla bóta og óhjákvæmilegt að stefna áfram á sömu braut í átt að fullum aðskilnaði með farsæld þjóðarinnar og þjóðkirkjunnar að leiðarljósi. Þangað til og þrátt fyrir samkomulagið sem ég hef hér vísað til mun þjóðkirkjan áfram njóta stuðnings og verndar íslenska ríkisins á grundvelli ákvæðis stjórnarskrárinnar Áfram verður gert ráð fyrir menningarlegum og fjárhagslegum tengslum. Með samningnum er ekki verið að hækka eða lækka þær greiðslur sem renna til þjóðkirkjunnar skv. kirkjujarðasamkomulaginu frá árinu 1997, en samningurinn felur í sér nýja viðmiðun fyrir þessar greiðslur, mikla einföldun á fjárhagslegum samskiptum og að starfsmannamál verða á hendi kirkjunnar. Allt er þetta skynsamlegt og til mikilla bóta fyrir þjóðkirkjuna en það ríður á að kirkjunnar fólk taki höndum saman og axli ábyrgðina á framkvæmd samningsins. Hjá þessu ferli verður ekki komist og að þessu hefur verið stefnt lengi. Við skulum hins vegar vanda okkur í þessu ferli. Það er mikilvægt að hugsa til þess að jafnvel þó svo að hin lútherska kirkja verði ekki Þjóðkirkja, þá er það undir henni sjálfri komið hvort hún verði áfram þjóðarkirkja. Það er undir henni komið að halda tengslum við þjóðina og viðhalda þeirri stöðu sem hún hefur nú þegar í þjóðarsálinni. Að endingu vil ég vitna aftur í prédikun afa míns, en hann flutti hana við vígslu Grundarfjarðarkirkju 31. júlí árið 1966. Orðrétt sagði hann: „Vér höfum lagt oss fram um að vanda gerð kirkjunnar allt frá því grundvöllur hennar var lagður hér á þessum stað. Vér höfum líka kappkostað að gera búnað hennar allan sem bestan. Og þó er enn margt eftir. En ég segi í dag eins og einn af biskupum kirkju vorrar sagði þegar minnst var á að nýreista kirkju skorti enn ýmislegt. Hann sagði: „Kirkjur eru alltaf í smíðum.“ Þessi síðustu orð geta vel átt við um þjóðkirkjuna í heild sinni. Hún er alltaf í smíðum og hún verður að finna réttan samhljóm við þjóðina svo hún fái að vaxa og dafna. Ef vel tekst til mun henni vegna vel, óháð því hvernig tengslum hennar verður hagað við ríkisvaldið í framtíðinni. Ef kirkjan miðlar boðskap sem hefur vægi og þýðingu í aðstæðum hversdagsins og gagnvart álitamálum framtíðarinnar; ef fólkið ber traust til kirkjunnar og leitar til hennar í betri tíð og verri - þá verður kirkjan áfram þjóðkirkja. Hver svo sem laga- og stjórnskipunarleg staða hennar verður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.