Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 46

Gerðir kirkjuþings - 2019, Page 46
46 47 5. mál 2019 Flutt af biskupi Íslands Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna: Digranes- og Hjallaprestaköll, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, sameinist í eitt prestakall, Digranes- og Hjallaprestakall. 2. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Greinargerð. Í hinu nýja Digranes- og Hjallaprestakalli þjóna sóknarprestur og tveir prestar og hálft stöðugildi prests verður lagt til að auki. Komi ekki fram athugasemdir við það hyggst biskup Íslands skipa núverandi sóknarprest Digranesprestakalls sem sóknarprest í væntanlegu prestakalli og sóknarprest og prest Hjallaprestakalls (50%) sem presta í kallinu. Verður því ein staða prests auglýst þegar sameining hefur öðlast gildi. Gert er ráð fyrir að afgreiða tillöguna á framhaldskirkjuþingi 2020. Nefndarálit löggjafarnefndar Löggjafarnefnd hefur fjallað um málið. Lagt er til að Digranes- og Hjallaprestaköll, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, sameinist í eitt prestakall, Digranes- og Hjallaprestakall. Biskupafundur sendi sóknarnefndum og prófasti tillöguna til kynningar 3. september 2019. Í fundagerð biskupafundar frá 9. október 2019 kemur fram að í hinu nýja prestakalli þjóni sóknarprestur og tveir prestar og hálft stöðugildi prests verður lagt til að auki. Nefndin bendir á mikilvægi þess að tekið verði tillit til vígslualdurs, menntunar og annarrar reynslu svo og jafnréttisáætlunar kirkjunnar við mat á því hver verði sóknarprestur sameinaðs prestakalls. Gert er ráð fyrir að sameining öðlist gildi 1. október 2020. Löggjafarnefnd leggur til að tillagan verði samþykkt. Stefán Magnússon sat hjá við afgreiðslu málsins.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.