Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 12
12 13
Ávarp biskups Íslands, Agnesar M. Sigurðardóttur
Dómsmálaráðherra, forseti kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúar, vígslubiskupar, góðir gestir.
Ég vil byrja á því að þakka sóknarnefnd og starfsfólki hér í kirkjunni fyrir aðstöðuna
og tónlistarfólkinu fyrir flutninginn. Einnig vil ég þakka forsætisnefnd, kirkjuráði og
starfsfólki sem undirbúið hefur þingið.
Nú fer kirkjuþingið fram í nýjum húsakynnum kirkjunnar að Katrínartúni 4 hér í borg.
Biskupsstofa, kirkjuráð og kirkjugarðaráð eru nýflutt þar inn og verður kirkjuþingið fyrsti
stóri fundurinn sem þar er haldinn. Við sem þar vinnum hlökkum til að taka á móti ykkur
og vonum að ykkur eigi eftir að líða eins vel þar og okkur sem höfum verið þar í tvær vikur.
Viðbótarsamkomulag
Nýir tímar fara nú í hönd í þjóðkirkjunni. Viðbótarsamkomulag ríkis og kirkju sem
samþykkt var í byrjun september s.l. felur í sér breytingar á skipulagi kirkjunnar. Mörgum
spurningum er ósvarað þó mynd sé að komast á stærstu áskoranirnar. Bið ég þess að
þjóðkirkjan eflist og dafni vel í þessu nýja skipulagi. Margt breytist þegar lög verða felld
niður og kirkjuþingið ákveður enn fleira en áður. Hins vegar vil ég leyfa mér að minna á
að enn stendur í stjórnarskránni að ríkið skuli styðja og vernda þessa evengelísku lútersku
kirkju. Því hefur ekki verið breytt. 62. grein sem skilgreinir hina „evangelísku lútersku
kirkju“ sem þjóðkirkju Íslands má breyta með lögum, en 1. málsgrein 79. greinar segir að
auki, að slík breyting þurfi samþykki í leynilegri þjóðaratkvæðagreiðslu.
Öll stefnum við að sama marki og höfum okkar hlutverk í kirkjunni til að ná því. Mér
komu í hug orð sr. Matthíasar þegar ég undirbjó mig fyrir kirkjuþingið í ár.
Legg þú á djúpið eftir Drottins orði
og æðrast ei, því nægja mun þinn forði,
þótt ómaksför þú farir marga stund.
Ef trú og dáð og dugur ei þig svíkur,
er Drottinn lífs þíns ennþá nógu ríkur
og mild hans mund.
Nú leggjum við á djúpið og treystum því að Drottinn sé með okkur í verki. Það liggja mörg
mál fyrir kirkjuþingi eins og ævinlega og mér sýnist á málaskránni að þingsályktanir séu
14 og breyting á starfsreglum 21, þar af 12 um skipulag kirkjunnar í héraði.
Hjálparstarf kirkjunnar
Þann 9. janúar 2020 fagnar Hjálparstarf kirkjunnar 50 ára afmæli sem hjálparstofnun en á
prestastefnu sumarið 1969 hvöttu prestar landsins kirkjuna til að koma á legg hjálparstofnun
er sinnti hjálparstarfi og líknarmálum á vegum hennar. Þeir ákváðu jafnframt að leggja 1%
af launum sínum til hjálparstarfsins.
Á fundi kirkjuráðs 9. janúar 1970 var formlega ákveðið að stofna Hjálparstofnun
kirkjunnar. Séra Jónas Gíslason var ráðinn sem framkvæmdastjóri og hóf hann strax að