Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 17
17
1. mál kirkjuþings 2019
Flutt af kirkjuráði
Skýrsla kirkjuráðs
Inngangur
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, er forseti kirkjuráðs lögum samkvæmt.
Auk biskups sitja í ráðinu fjórir fulltrúar kjörnir af kirkjuþingi til fjögurra ára, tveir
leikmenn og tveir guðfræðingar. Kjörnir fulltrúar í kirkjuráði eru sr. Arna Grétarsdóttir,
sóknarprestur á Reynivöllum, Kjalarnesprófastsdæmi, sr. Axel Árnason Njarðvík,
héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi, Stefán Magnússon, bóndi í Fagraskógi, Eyjafjarðar-
og Þingeyjarprófastsdæmi og Svana Helen Björnsdóttir, rafmagnsverkfræðingur og
framkvæmdastjóri hjá Klöppum, Grænum Lausnum hf., Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra. Varamenn eru Anna Guðrún Sigurvinsdóttir og Berglind Hönnudóttir, fulltrúar
leikmanna; sr. Guðrún Karls Helgudóttir og sr. Hreinn S. Hákonarson, fulltrúar vígðra.
Kjörtímabili þess kirkjuráðs sem nú situr lýkur í lok kirkjuþings 2022 en það var kosið á
kirkjuþingi 2018.
Starfsemi kirkjuráðs
Almennt.
Störf kirkjuráðs byggjast á lögum um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr.
78/1997, með síðari breytingum svo og starfsreglum um kirkjuráð nr. 817/2000 með síðari
breytingum. Kirkjuráð fer með framkvæmd sameiginlegra málefna þjóðkirkjunnar, þar á
meðal verkefna sem lög og stjórnvaldsreglur ætla því og erinda sem vísað er til þess m.a. af
hálfu kirkjuþings, prestastefnu, samtökum leikmanna, Alþingis og ráðherra. Ákvörðunum
kirkjulegra stjórnvalda, sem heyra undir lögsögu kirkjuráðs, má skjóta til kirkjuráðs til
endanlegrar úrlausnar. Undanskildar eru ákvarðanir úrskurðar- og áfrýjunarnefnda svo
og ákvarðanir biskups er varða agavaldið og lausn ágreiningsefna svo og um kenningu
kirkjunnar. Ákvörðunum kirkjuráðs á framkvæmdasviði kirkjulegrar stjórnsýslu verður
eigi áfrýjað til kirkjuþings en fjalla má um málefnið á kirkjuþingi að frumkvæði einstakra
kirkjuþingsmanna. Um málsmeðferð í kirkjuráði, svo og meðal annarra kirkjulegra
stjórnvalda, skal fylgt ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, eftir því sem við getur átt,
leiði annað eigi af ákvæðum laga eða starfsreglna sem kirkjuþing setur. Hið sama á almennt
við um sérstakt hæfi kirkjulegra stjórnvalda til meðferðar einstakra mála.
Kirkjuráð undirbýr kirkjuþing í samráði við forseta þingsins og forsætisnefnd. Þá
undirbýr ráðið þingmál sín og veitir kirkjuþingsfulltrúum sem þess óska aðstoð við
framsetningu þingmála. Kirkjuráð annast almennt framkvæmd ákvarðana þingsins ef
annað er ekki ákveðið af kirkjuþingi. Kirkjuráð undirbýr af hálfu þjóðkirkjunnar tillögur
til fjárveitinga til hennar á fjárlögum og hefur yfirumsjón með ráðstöfun fjár sem veitt er
af opinberri hálfu til kirkjulegrar starfsemi svo og fasteignamálum þjóðkirkjunnar.
Kirkjuráð fer með stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og kirkjumálasjóðs og úthlutar úr