Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 20

Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 20
20 21 málsliðar eftir gagnvart umsjónaraðilum heimasíðunnar og þeim sem sinna tæknimálum og gefa kirkjuráði skýrslu um stöðu mála á næsta fundi. Haldinn hefur verið fundur með fulltrúum frá Þjóðskrá Íslands og málið er enn í vinnslu. Kirkjuþing þakkar skírnarnefnd hennar störf og leggur til að hún haldi áfram og kynni söfnuðum tillögur sínar. Kirkjuráð samþykkti að fela fjármálahópi að taka málið fyrir og gera tillögu um það til næsta fundar kirkjuráðs, þar sem fjárhagsáætlanir kirkjunnar verða afgreiddar. Framlag til nefndarinnar í drögum að fjárhagsáætlun 2019 er kr. 725.000 en það verkefni sem meta skal snýr að samþykkt kirkjuþings 2018 þess efnis að skírnarfræðslunefnd kynni söfnuðum tillögur sínar. Kirkjuráð samþykkti að skírnarfræðslunefnd geri tillögur um kynningarmál sín þannig að unnt verði að meta kostnaðinn við verkefnið. Í skírnarhópi kirkjuþings eru þau: sr. Kristján Valur Ingólfsson, Drífa Hjartardóttir og sr. Sjöfn Jóhannesdóttir. Hópurinn hefur skilað skýrslu skírnarhóps kirkjuþings 2018-2019. (fskj. 2). Kirkjuþing ályktar að kirkjuráð geti framvegis um stöðu og framvindu mála í ársskýrslu sinni. Kirkjuráð samþykkti að taka ábendinguna til greina. Kirkjuþing ályktar að þjóðkirkjan taki upplýsinga- og kynningarmál föstum tökum og læri af þeim kostnaðarsömu mistökum sem gerð hafa verið. Kirkjuráð lýsir yfir ánægju með hina nýju heimasíðu kirkjan.is og nýjan þjónustuvef, en hvetur umsjónaraðila til að sinna af hraða og festu því að lagfæra og útfæra vefina í samræmi við þær ábendingar sem borist hafa. Kirkjuráð hefur þegar slitið samstarfinu sem lýtur að verkefninu leitandi.is. Kirkjuþing fagnar því að kirkjuráð hafi loks ákveðið að auglýsa eftir jafnréttisfulltrúa sem kirkjuþing 2017 samþykkti að ráða. Kirkjuráð samþykkti að fela fjármálahópi að taka málið fyrir og gera tillögu um það til næsta fundar kirkjuráðs, þar sem fjárhagsáætlanir kirkjunnar verða afgreiddar. Kirkjuþing metur störf kirkjuþings unga fólksins og hvetur þingfulltrúa KUF til að láta rödd sína heyrast áfram. Kirkjuráð tekur undir hvatningu kirkjuþings í garð unga fólksins í kirkjunni. Rödd þeirra er kirkjunni mikilvæg. Gerð er grein fyrir kirkjuþingi unga fólksins síðar í skýrslunni. Kirkjuþing hvetur til þess að stutt verði við starfsemi Skálholtsútgáfunnar og rekstar um- hverfi hennar verði tryggt svo hún geti áfram sinnt sínu hlutverki við útgáfu, boðun og fræðslu. Kirkjuráð mun leitast við í verkum sínum að styðja við starfsemi Skálholtsútgáfunnar

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.