Gerðir kirkjuþings - 2019, Síða 35
35
kirkjustjórnar og prófastsdæma innan 3ja ára, m.a. með mótvægisaðgerðum í skógrækt
eða endurheimt votlendis á jarðnæði í eigu kirkjunnar. Einnig verði söfnuðum og starfsemi
Þjóðkirkjunnar gert kleift að kolefnisjafna starf sitt á þessum jörðum. Jafnframt yrðu
umhverfisvænir virkjunarkostir jarðanna kannaðir. Þá hvetur Prestastefna 2019, haldin í
Áskirkju, kirkjustjórnina, sóknir og presta að stíga skref til orkuskipta í samgöngum. Komið
verði upp rafmagnstenglum við fasteignir kirkjunnar til að hlaða bíla. Akstursgreiðslur verði
aflagðar og prestsembættum úthlutað rafmagnsbílum eða öðrum umhverfisvænum kostum
í samræmi við akstursþörf.
Einnig tekur Prestastefna 2019 undir með Landvernd að lýsa beri neyðarástandi vegna
stöðunnar í loftslagsmálum og að áætlun ríkisstjórnarinnar verði magnbundin og tímasett.
Þá hvetur Prestastefna 2019 þau flugfélög/ferðaþjónustuaðila sem selja flugferðir til og
frá landinu, svo og innanlands að innleiða í kaupferli flugmiða kolefnisjöfnun á viðkomandi
flugferð.
Einnig hvetur Prestastefna 2019 verslanir til að draga úr sóun matvæla svo og
matvælaframleiðendur til að minnka notkun plastpakkninga á matvælum þar sem því
verður við komið.“
□ Kirkjuráð samþykkti að taka undir umhverfisályktun Prestastefnu.
□ Kirkjuráð samþykkti að láta setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla á eftirfarandi
fjórum stöðum á þessu ári; Biskupsgarði Bergstaðastræti, í Skálholti, á Hólum og við
þjónustumiðstöð biskupsstofu í Háteigskirkju.
□ Kirkjuráð samþykkti að hvetja sóknarnefndir til að koma upp tenglum til
rafmagnshleðslu við kirkjur og safnaðarheimili.
□ Kirkjuráð samþykkti að stefna að því að koma upp hleðslutenglum við prestssetur eftir
óskum ábúenda.
□ Kirkjuráð samþykkti að fela starfshópum kirkjuráðs að taka ályktunina til umfjöllunar
og skila kirkjuráði tillögum sínum.
2. „Prestastefna Íslands, sem haldin er í Áskirkju 30. apríl-2. maí 2019 hefur fengið fræðslu
um einstaklinga með ódæmigerð kyneinkenni og réttindi þeirra. Frumvarp til laga hefur
verið lagt fram á Alþingi um kynrænt sjálfræði. Það felur í sér réttarbót fyrir einstaklinga með
ódæmigerð kyneinkenni. Prestastefna þakkar fyrir framlagningu þess og hvetur þingheim til
að styðja það.“
3. „I. Prestastefna 2019 ályktar að rétt og tímabært sé að ræða framtíðarsýn fyrir þjóðkirkjuna
og að móta henni heildarstefnu líkt og gert var með samþykktri stefnumótun fyrir kirkjuna
fyrir árin 2004-2010. Leiðarljós í þeirri vinnu verði einkum markviss umræða um áherslur,
starfshætti, starfsmannahald og skipulag kirkjunnar á 21. öld. Ennfremur að tryggja að
kirkjan nýti ávallt sem best auðlindir sínar í þágu þess málstaðar sem hún boðar og stendur
fyrir, þjóð og kirkju til heilla.
II. Að lokinni stefnumótun komi til skoðunar hvort ræða þurfi breytingar á skipulagi
kirkjunnar og starfsemi hennar, þ.m.t. lagalega stöðu þjóðkirkjunnar og stofnana hennar,
samband þjóðkirkjunnar og ríkisins og hvort þörf sé á breytingum þar á.
III. Prestastefna 2019 telur að þær viðræður kirkjunnar og ríkisins sem staðið hafa frá 2015
um einföldun fjárhagslegra samskipta skuli leiddar af þeim þremur stjórnvöldum sem veita