Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 51

Gerðir kirkjuþings - 2019, Side 51
51 10. mál 2019 Flutt af biskupi Íslands Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipulag kirkjunnar í héraði nr. 1026/2007, með síðari breytingum 1. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. starfsreglnanna: Súðavíkursókn, Vatnsfjarðarsókn og Ögursókn sameinist. Heiti hinnar nýju sóknar verði Súðavíkursókn. 2. gr. Starfsreglur þessar, sem settar eru með heimild í 50. gr., sbr. 59. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, með síðari breytingum, öðlast gildi við birtingu. Nefndarálit löggjafarnefndar Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt eins og það birtist á þingskjali 10. Tillagan fjallar um að Súðavíkursókn, Vatnsfjarðarsókn og Ögursókn sameinist. Heiti hinnar nýju sóknar verði Súðavíkursókn. Fram kemur í fylgiskjali með málinu að á héraðsfundi Vestfjarðaprófasts- dæmis, sem haldinn var á Reykhólum 8. september 2019, var samþykkt að sameina Ögursókn, Vatnsfjarðarsókn og Súðavíkursókn í eina sókn og skuli hin nýja sókn heita Súðavíkursókn. Fyrir liggur samþykki aðalfunda viðkomandi sókna, sem allar eru í Bolungarvíkurprestakalli.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.