Gerðir kirkjuþings - 2019, Blaðsíða 75
75
26. mál 2019
Flutt af Bryndísi Möllu Elídóttur, Gísla Jónassyni,
Guðmundi Þór Guðmundssyni og Önnu Guðrúnu Sigurvinsdóttur
Þingsályktun um úttekt á aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra
Kirkjuþing beinir því til kirkjuráðs að gerð verði úttekt á aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra
að kirkjum og öðru því húsnæði þar sem starf þjóðkirkjunnar, stofnana hennar og
einstakra safnaða fer fram. Í framhaldi af því verði síðan unnin áætlun um það, hvernig
bæta megi aðgengið þar sem því er áfátt. Kirkjuráð skili niðurstöðum þessarar úttektar og
áætlunargerðar til kirkjuþings 2020.
Greinargerð.
Ljóst er að aðgengi fatlaðra og hreyfihamlaðra að kirkjum og öðru húsnæði þar sem
starf þjóðkirkjunnar, stofnana hennar og safnaða fer fram, er víða ófullnægjandi.
Á þetta sérstaklega við um eldra húsnæði, en því miður einnig í einhverjum tilvikum
um nýtt eða nýlegt húsnæði. Of oft virðist sem hugsunarleysi og/eða vanþekking valdi
því, að í þessu húsnæði og umhverfi þess leynast erfiðar eða jafnvel óyfirstíganlegar
hindranir, sem í mörgum tilfellum mætti bæta úr með tiltölulega auðveldum hætti. Á
þetta hefur framsögumaður þessarar tillögu margoft rekið sig á eftir að hann varð sjálfur
hreyfihamlaður.
Því miður virðist sem við Íslendingar séum almennt nokkuð á eftir nágrannaþjóðum
okkar hvað aðgengismál hreyfihamlaðra og fatlaðra varðar. Hlýtur það því að vera
mikilvægt að kirkjan sýni gott fordæmi með því að hafa frumkvæði að því að bæta úr
þessum málum í húsnæði sínu.
Sem dæmi um þau atriði sem þarf að huga að má nefna:
Sérmerkt bílastæði, kantsteina, óþörf og/eða handriðalaus þrep (utandyra sem innan),
rampa að inngöngum, erfiðar og þungar hurðir, háa þröskulda, aðgengi að snyrtingum
og öll aðstaða á þeim, aðgengi milli hæða, þar sem um fleiri en eina hæð er að ræða, og
möguleiki á þátttöku hreyfihamlaðra í altarisgöngum og öðrum athöfnum.
Til að hrinda þeirri úttekt af stað, sem hér er lögð til, mætti t.d. hugsa sér að fela
sérstökum starfshópi að útbúa gátlista, með leiðbeiningum, sem próföstum væri síðan falið
að fylla út í samráði við sóknarnefndir og aðra aðila (ef við á) í sínum prófastsdæmum.
Síðan mætti vinna aðgerðaráætlun um úrbætur út frá niðurstöðum slíkrar úttektar.
Nefndarálit fjárhagsnefndar
Nefndin hefur fjallað um málið og leggur til að það verði samþykkt óbreytt.