Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2020, Blaðsíða 46
Dr. helga Bragadóttir hjúkrunarfræðingur, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs
í hjúkrunarstjórnun við hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands og Landspítala, hlaut
inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna (american academy of nursing
(aan)) í október sl. Er hún þar með fjórði hjúkrunarfræðingurinn á Íslandi til að
hljóta inngöngu í akademíuna, en inngöngunni fylgir nafnbótin fellow of the ameri -
can academy of nursing (faan). Áður höfðu dr. Ásta Steinunn Thoroddsen, dr.
Erla kolbrún Svavarsdóttir og dr. helga jónsdóttir hlotið inngöngu í aan, allar pró-
fessorar við hjúkrunarfræðideild háskóla Íslands.
Bandaríska hjúkrunarakademían, sem var stofnuð árið 1973, hefur það hlutverk
að styrkja og efla hjúkrunarmenntun og -störf og vera virkur þátttakandi í stefnu-
mörkun heilbrigðisþjónustu. félagar í aan eru rúmlega 2700 frá fjölmörgum
löndum heims. Þeir sem hljóta inngöngu í Bandarísku hjúkrunarakademíuna hafa
með störfum sínum haft áhrif í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu í heimalandi sínu og
á alþjóðavettvangi.
Frumkvöðull í framsæknum kennsluaðferðum
rannsóknir helgu á sviði hjúkrunarstjórnunar hafa snúist um gæði og öryggi þjón-
ustunnar, nýtingu tækni í heilbrigðisþjónustu, vinnu og vinnuumhverfi í hjúkrun og
síðustu 10 ár hefur helga fyrst og fremst sinnt rannsóknum á gæðum hjúkrunar og
teymisvinnu. helga hefur haft umsjón með og kennt hjúkrunarstjórnun og forystu
við háskóla Íslands og á því sviði verið frumkvöðull í framsæknum kennslu aðferð -
um, svo sem nýtingu tækninnar og hnattrænni nálgun. Í öllum verkum sínum hefur
helga lagt áherslu á þverfræðilegt og alþjóðlegt samstarf og hefur hún stýrt og tekið
þátt í fjölmörgum verkefnum innanlands og utan sem hafa leitt til umbóta á vinnu
og vinnuumhverfi í hjúkrun og heilbrigðisþjónustu og þar með þjónustu við sjúk-
linga.
helga útskrifaðist með BSc-próf í hjúkrunarfræði frá háskóla Íslands 1986 og
starfaði næstu ár við barnahjúkrun sem klínískur hjúkrunarfræðingur, hjúkrunar-
stjórnandi og kennari. hún hélt síðar til Bandaríkjanna þar sem hún lauk MSc-prófi
í barnahjúkrun og hjúkrunarstjórnun og doktorsprófi í hjúkrunarstjórnun frá uni-
versity of iowa. frá heimkomu úr framhaldsnámi árið 2000 hefur helga starfað við
stjórnun, kennslu og vísindi í háskóla Íslands og Landspítala.
46 tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 96. árg. 2020
Dr. Helga Bragadóttir
félagi í Bandarísku hjúkrunarakademíunni
Helga Bragadóttir, prófessor í hjúkrunarfræði.