Vinnan - 01.09.1946, Qupperneq 57
af rúgi en hveiti. Austurríki hið gamla framleiddi helm-
ingi meiri rúg en hveiti, og varð þó að flytja hann inn
til þess að fullnægja þörfinni.
Þegar sagan greinir frá „erfiöum tímum“ á ferli þess-
ara landa, hafa þau alltaf þraukað af, með því að leggja
megináherzlu á að láta ekkert færi ganga sér úr greip-
um að rækta rúg. „Orkan úr rúgnum“ varð kjörorð,
einnig þeirra manna, sem þótti gott að borða brauð-
hnúða, bollur, vínarbrauð og fransbrauð.
Flesh og malt
Heimsuppskeran af byggi er álíka mikil og af rúgi.
En þó að rúgurinn aðallega haldi sig við Evrópu, hefur
byggið breiðzt út um allan heim. Samt sem áður eru
tveir þriðju hlutar heimsframleiðslunnar í Evrópu og
Rússland. En það er líka mikil byggyrkja í Norður- og
Suðufr-Ameríku, og nær hvarvetna um heim er hún í
smáum stíl.
Byggið er sú tegund brauðkorna, sem er bráðþrosk-
uðust. A norðlægum slóðum má jafnveu rækta bygg,
þar sem harðgerðasta hveiti nær ekki þroska. Það þolir
betur þurran jarðveg en hveiti, eins og sést bezt af því,
hve langt það hefur rutt sér braut til suðurs til þurra
svæða eins og Mið-Afríku, eyöimerkurlendna Asíu og
sléttanna í Vestur-Ameríku. Byggið er eina kornteg-
undin, sem bæði vex fyrir norðan heimskautsbaug og
á vinjum í Sahara. í Ameríku er bygg ræktað í 3000
metra hæð í Colorado, þar sem sumrin eru svöl með
nokkrum næturfrostum. En það er líka ræktað syðst í
Kaliforníu, þar sem pálmar og sítrónur hreykja sér við
hlið þess. Það er aðeins rakt loftslag, sem byggiö þolir
ekki.
Byggrækt er því ekki bundin neinum verulegum örð-
ugleikum, hvað loftslag snertir. Það er hægt að rækta
það, hvar sem er. Spurningin er ekki önnur en sú, hvort
það er nauðsynlegt og borgar sig. Fyrr á tímum rækt-
uðu allar Evrópuþjóðir bygg til manneldis, einkum þó
Norður-Evrópuþjóðirnar. Byggið var étið í grautum
eða vellingum. Bygg er enn notað þannig í Englandi,
Skandinavísku löndunum, Rússlandi, Kína, Japan og
Indlandi. Bygggrautar eða. byggvellingur getur veriÖ
sannarleg guðs blessun, þegar hart er um venjulegt
brauð. Bygggrautar þóttu fyrrum hið mesta hnossgæti
í Þýzkalandi, en nú eru þeir komnir „úr tízku“. Hann
hefur orðið aftur úr í þys nútímans, af því að hann
þurfti svo mikla suðu.
Bygg er óheppilegt til bökunar á gerbrauðum, því að
í mjölinu er lítið límefni, svo að deigið lyftist ekki með
geri. Bygg er aðeins notaö í „hrökkbrauð“ og Þjóð-
verjar neyta þess ekki öðruvísi en í „maltkaffi“.
í pakkhúsinu
VINNAN
247