Blik - 01.05.1957, Page 98
96
B L I K
Sjóðir Gagn-
Innstæða 31. des. 1956.
I. Minningar- og styrktarsjóður
nemenda.
a. Minningarsjóður Þórunnar Frið-
riksdóttur frá Löndum:
Bók nr. 24 í Sparisj.
Vestmannaeyja • ■ • • Kr. 1286 36
Bók nr. 8483 í Útv.b.
Vestmannaeyja .... — 2182.02
Samtals kr. 3468.38
b. Minningarsjóður Hermanns Guð-
mundssonar frá Háeyri:
Bók nr. 25 í Sparisj.
Vestmannaeyja .... Kr. 1982.38
Bók nr. 4927 í Útv.b
Vestmannaeyja .... — 1098 67
Samtals Kr. 3081.05
c. Minningarsj. Hauks Lindbergs:
Bók nr. 265 í Sparisj.
Vestmannaeyja .... Kr. 5548,10
Samtals Kr.5548.10
d. Önnur peningaeign styrktarsj.:
Bók nr. 8484 í Útv.b.
Vestmannaeyjum .... Kr. 2127.43
Bók nr. 4698 í Útv.b.
Vestmannaeyjum .... — 1791.62
Samtals Kr.3918.05
Minningar- og styrktarsjóður nem-
enda nemur því samt. kr. 16015.58
Skólinn þakkar kærlega þær gjaf-
ir, sem sjóðnum hafa borizt undan-
farin 3 ár eða síðan við birtum inn-
stæður hans í Bliki síðast (1954).
II. Sjóður Málfundafélags
Gagnfræðaskólans.
Bók nr. 777 í Sparisjóði
Vestmannaeyja ........ Kr. 9399.20
Alls Kr. 9399.20
Úr þessum sjóði greiðist árlega
ferðastyrkur til nemenda 3. bekkj-
ar og til útgáfu ársrits skólans.
III. Útgáfusjóður Bliks.
Bók nr. 633 í Sparisjóði
Vestmannaeyja ......... Kr. 5839.80
Alls Kr.5839.80
IV. Ferðasjóður nemenda.
Bók nr. 78 í Sparisjóði
Vestmannaeyja _..... Kr. 566 09
Bók nr. 3306 í Útvegsb.
Vestmannaeyjum ........— 963.15
Alls Kr.1529.24
V. Hljóðfærasjóður Gagnfræða-
skólans.
Síðsumars 1955 færði Jón Eiríks-
son skattstjóri Gagnfræðaskólanum
að gjöf á 3. þúsund krónur og mælti
svo fyrir, að með upphæð þessari
skyldi stofna sjóð við skólann til
kaupa á hljóðfærum handa honum
til eflingar tónlist í skólanum.
Með alúðarþakklæti veittum við
þessari góðu gjöf viðtöku. Þessi
sjóður skólans hefur síðan fengið
ýmsar gjafir og ávaxtast alveg ótrú-
lega vel. Hann hefur sem sé þre-
faldazt, síðan hann var stofnaður.
Hann átti í bók nr. 77 í
Sparisj. Vm. 1. jan. s.l. Kr. 6536.46
Alls Kr. 6536.46
Þessi sjóðstofnun leiddi til þess,
að skólinn pantaði 7 blásturshljóð-
færi frá Tékkóslóvakíu og fékk þau
á s.l. hausti. Flestir tollar ríkisins
fengust eftirgefnir af hljóðfærun-
um. Að öðru leyti gaf skólasjóður
skólanum hljóðfærin.
Oddgeir Kristjánsson söngkennari
barnaskólans og stjórnandi Lúðra-
sveitar Vestmannaeyja kennir nem-
endum á hljóðfærin, og standa von-
ir til, að Lúðrasveit Gagnfræðaskól-
ans geti skemmt Eyjabúum með
fagurri lúðrahljómlist, áður en mjög
langt líður.
Mætti fordæmi Jóns Eiríkssonar
um stofnun Hljóðfærasjóðsins verða
íhugunarefni og fyrirmynd öðrum
hér í Eyjum.
Vestmannaeyjum, 4. febr. 1957.
Þorst. Þ. Víglundsson.