Blik - 01.05.1957, Blaðsíða 125
B L I K
123
10. Ingunn Katrín, f. 27. nóv. 1885;
d. 17 febr.1888
(Heimild ÁA. og vasabók Lárusar
hreppstjóra í Byggðarsafni Vest-
mannaeyja).
Föðursystkini Lárusar voru:
1. Einar, f. Steig 1800, Ólafsson.
2. Anna, f. Steig 1793, Ólafsdóttir.
Móðursystkini Lárusar voru:
1. Ólafur Eiríksson, f. 1795. Af hon-
um kominn Þorsteinn faðir Helgu
húsfreyju á Kirkjubæ.
2. Ketill Eiríksson, f. 1798. Af hon-
um komin Þórunn sál., í Litlabæ,
Ketilsdóttir og Heiða í Gerði.
3. Sesselja Eiríksdóttir, f. 1810. Af
henni kominn Gísli Geirmunds-
son, faðir Guðlaugs bæjarstjóra.
Lárus flutti til Eyja alfarinn 1863
og settist að í Kornhól. Þar lézt
Ólöf móðir hans 1867, sem fyrr
greinir. Þar fæddust börn hans
Gísli, Jóhanna og Steinvör. — Að
Búastöðum flutti svo Lárus 1869 í
gamla bæinn, eitthvað lagfærðan til
íbúðar. Bæinn byggði hann upp
1888. Aftur var bærinn byggður upp
1904. Þá bjó Pétur Lárusson þar
með Kristínu móður sinni. Þess ut-
an bjó þar Sturla Indriðason frá
Vattarnesi, kvæntur Fríði Lárus-
dóttur. Þau bjuggu í tvíbýli á Búa-
stöðum frá giftingu, 1904, fyrst móti
Kristínu og Pétri, en síðan með
Pétri og Júlíönu til ársins 1923, er
þau Fríður fluttu í sitt eigið hús
,,Hvassafell“ við Helgafellsbraut.
Búastaðir voru stór jörð á fyrri
tíma mælikvarða. Lárus bætti hana
mjög með sléttun og stækkun. Hann
hafði 2 kýr, 12 ær og nokkuð af
lömbum, 1 hross Þess utan fé 1 ful'-
um högum í Elliðaey, en þar á
jörðin hagagöngur o. fl. nytjar. —
Önnur hlunnindi jarðarinnar voru
m. a. fýlatekja úr Stórhöfða, reka-
fjara í Brimurð, lundatekja o. fl. úr
Elliðaey, súlutekja og fýla- úr
Súlnaskeri og Hellisey o. fl. hlunn-
indi.
Lárus kom mjög við sögu Eyj-
anna. Hann var góður bpndi og vel
stæður, smiður ágætur á skip og
hús, formaður heppinn og fiskisæll,
mikill umbótamaður á opinberum
vettvangi, hafnsögumaður og hrepp-
stjóri. Kunnastur sem formaður með
skipin „Enok“ (t. d. í útilegunni
miklu 1869) og mörg ár með ,,Frið“.
Þá var og Lárus kunnur lundaveiði-
maður, bæði í holu og með háf
og einn af þeim, er komu austan úr
Mýrdal til fuglaveiða hér 1857 —
1860. Veiddi hann 17—32 kippur
árlega frá byrjun lundaveiða til
sláttarbyrjunar. Þótti það gott búsí-
lag fyrir bændur þar eystra.
Lárus drukknaði á skipinu
„Hannibal" á innsiglingunni 9. febr.
1895, sem kunnugt er. Var þá kveð-
ið m. a.:
Hreppstjóri Lárus nú sefur í sæ
þó sjáist ei grafreitar merkin,
en lítum við skipin og lítum hans
bæ
þá lítum við handanna verkin.
Nú horfinn er snillingur, hnípin er
sveit,
því Heimaey grætur þann öðling
um aldir.
Árni Árnason.
Niðurstöðutölur skýrslunnar á
bls. 106 og 107.
Tala heimilisfólks þeirra, er
tíund greiddu samtals 372 manns.
(Alls bjuggu hér þá um 500 manns).
Kýr alls...................... 36
Kvígur ........................ 4
Ær með lömbum ............... 370
Tvævetlur og eldri........... 106
Eins árs kindur ............. 178
Hestar ....................... 12
Hryssur ...................... 23
8-æringar...............6 eða 7
10-æringar ................... 1
6-æringar .................... 2
4-æringar .................... 7
2ja manna för................. 16
2ja manna för voru einnig 4-ær-
ingar en minni en hinir fyrr nefndu.